Húllum hæ um Hornafjörð
Opna íþróttavikan fór rólega af stað í gær. Örfáir mættu til að taka þátt á æfingum hjá krökkunum og enginn lét sjá sig í kynningu á stafagöngu hjá Matthildi. Einhverir mættum í kynningu á Robe - Jóga. Það er von þeirra sem standa að þessari viku að betri mæting verði í dag og næstu daga og að fólk verið ekki feimið við að láta sjá sig. Það sem er í boði í dag er: Í Mánagarði kl. 14.00- 14.45 Opið hús hjá 6-7 ára krökkum í bolta tíma með orkuboltunum Arnari og Skúla endilega látið sjá ykkur sérstaklega foreldrar 14.30 - 20.30 Opið hús í Íþróttahúsinu knattspyrnutímar kynnið ykkur hvaða aldurshópar og mætið endilega með krökkunum. 22.00 - 23.00 Opið hús Körubolti kvenna 13 ára + komið og takið þátt
Miðvikudagur
Takið daginn snemma og mætið í spinning kl. 6.30 í boði Sporthallarinnar eða í tækin
Frítt allan daginn í Sporthöllin fyrir þá sem hafa aldur til 8 bekkur og upp úr
9.00-11 og 17.00-19.00 Kynning á Robe Jóga í Orkuvershúsinu látið sjá ykkur og prufið.




Skrifa athugasemd