Sindra fréttir
Fernur eiga framhaldslíf
Fernur eiga framhaldslíf
Fernur eiga framhaldslíf

28.09.2006 Sindra fréttir

Söfnum og styðjum - fernur eiga sér framhaldslíf

Þetta er heiti samstarfsverkefnis Sveitarfélagsins Hornfjarðar og Ungmennafélagsins Sindra. Verkefnið fellst í að safna umbúðarfernum og koma til endurvinnslu. Sveitarfélagið hefur staðið fyrir söfnum á fernum með grenndargámum, en það hefur ekki skilað ásættanlegum árangri. Því er hér um að ræða endurvakningu á þessu brýna verkefni og nú geta bæjarbúar stutt við bakið á íþróttahreyfingunni með sínu framtaki. Valdemar Einarsson framkvæmdarstjóri Sindra segir að með þessu verkefni sé verið að gera virkilega góða hluti, í því felst að Fimleikadeild Sindra fær greitt 35 kr. fyrir hvert kíló sem deildin nær að safna og koma til endurvinnslu. "Við bindum því miklar vonir við að heimili á Höfn taki sig á í umhverfismálum og styrki um leið gott málefni. Kveikjan að þessu máli er að Fimleikadeildin er að kaupa ný áhöld og þarf á töluverðu fjármagni að halda. Við leituðum til sveitarfélagsins með þessa hugmynd þar sem við vissum af því að þarna væri góður möguleiki á fjáröflun" . Valdemar segir jafnframt að verkefnið verði kynnt mjög vel á næstu dögum. Dreifibréfi verði dreift í heimili og söfnunin kynnt.

Verkefnið gengur útá að bæjarbúar safna saman fernum, skola og setja í poka. Hálfsmánaðarlega setur fólk svo fernupokana út við lóðarmörk og þeir svo hirtir upp þar af Fimleikadeildinni. Jafnframt þessu getur þó fólk losað sig við fernurnar áfram í grenndargámana við Sindrahúsið, Rafveituskúrinn hjá Essó Vesturbraut og í fernugám í gámaportinu.

Össur Imsland deildarstjóri á Tækni- og umhverfissviði sagði að samningur sem þessi væri gríðarlega mikilvægur og ávinningurinn mikill, hann vonaðist til að fólk sýndi þessu verkefni áhuga með virkri þátttöku. "Söfnun á fernum til endurvinnslu er ein leið til þess að nýta verðmæti sorps. Við drögum úr sorpurðun og minnkum það landsvæði sem fer undir sorphauga. Vonandi er þetta bara kveikjan að virku samstarfi milli Sveitarfélagsins og þeirra félaga sem geti haft af því tekjur að safna saman endurvinnanlegum úrgangi. Það er jafnframt von okkar að við getum náð til fleiri endurvinnanlegra sorpflokka á þennan máta." Við Valdi gerum miklar væntingar til íbúa sveitarfélagsins og vonum að sem flestir taki þátt og komi þessum verðmætum úr sorpinu í áþreifanleg tæki og tól í eigu Fimleikadeildarinnar"  segir Össur að lokum.

Fyrst til að byrja með verður einungis náð í fernur á heimili á Höfn og í Nesjahverfi en þeir félagar segja að allir sem vilji geti tekið þátt og stefnan sé sett á það að virkja alla sýslubúa í þetta skemmtlega og þarfa framtak.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica