Sindra fréttir
Fimleikadeild Sindra
Fimleikadeild Sindra
Glæsilegt fimleikafólk Sindra (úr myndasafni)

14.09.2006 Sindra fréttir

Opið hús hjá Fimleikadeild Sindra

Í tilefni af 125 ára afmæli FIG (Alþjóða fimleikasambandið) hefur FIG óskað eftir því að öll fimleikasambönd heimsins minnist tímamótanna með sérstökum fimleikadegi sem mun verða laugardaginn 16. september hér á Íslandi. Af þessu tilefni mun Fimleikadeild Sindra verða með "opið hús" á laugardaginn frá kl. 12:00 til 15:00 í íþróttahúsinu á Höfn.  Nesjaskóli frá kl. 12:00-13:00, Hafnarskóli frá kl. 13:00-14:00, og Heppuskóli frá kl. 14:00-15:00. Þjálfarar og stjórn Fimleikadeildar Sindra vonast eftir að sjá sem flesta iðkendur mæta á æfingu og einnig gefst öllum tækifæri til að koma og prófa fimleika þó þeir séu ekki að æfa.

Allir eru velkomnir til að sjá hvað er í boði hjá Fimleikadeild Sindra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica