Sindra fréttir
Sindragallar
Sindragallar
Meistaraflokkur karla 2006 (úr myndasafni).

11.09.2006 Sindra fréttir

Sindri bjargaði sér frá falli

Síðasta laugardag spilaði meistaraflokkur karla við Aftureldingu úr Mosfellsbæ á Mánavelli. Þetta var hörkuleikur þar Sindramenn þurftu að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni. Með sigri á Mánavelli var vonin um það að halda sér upp til staðar en Sindramenn þurftu líka að treysta á það Seyðfirðingar töpuðu sínum leik á móti Njarðvík sem fram fór á Seyðisfirði á sama tíma. Ljóst var að spennustig leikmanna var hátt í upphafi leiksins. Sindri sótti undan sterkum vindi í fyrri hálfleik og réð gangi leiksins að mestu án þess að skapa sér umtalsverð marktækifæri. Jón Haukur átti þó eitt gott færi sem hann náði ekki að nýta sér. Í seinni hálfleik hélt baráttan áfram en þegar um 20 mín. voru eftir af leiknum var dæmt víti á Aftureldingu þegar Steinari var hrint þegar hann stökk upp til að skalla boltann í upplögðu færi. Seval tók vítið og brást ekki bogalistin frekar en fyrri daginn.

Þær mínútur sem í hönd fóru eftir að Sindri náði forystunni voru sannarlega spennuþrungnar. Afturelding sótti nokkuð stíft síðustu mínúturnar og átti m.a. stangarskot og Matjaz Kastelic markvörður Sindra greip líka vel inn í leikinn nokkrum sinnum. Það var því þungu fargi létt af Sindramönnum þegar góður dómari leiksins, Ingólfur Hjaltason flautaði leikinn af og ljóst var að Njarðvík hafði unnið öruggan sigur á Huginn 3 ? 1. Þar með var ljóst að sæti Sindramanna í 2. deild að ári var tryggt og mikil fagnaðarlæti brutust út á meðal Sindramanna.

Knattspyrnudeild Sindra og leikmenn meistaraflokks karla vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína á völlinn síðastliðinn laugardag til að styðja við bakið á leikmönnum í þessum erfiða leik. Einnig viljum við þakka Hótel Höfn þann stuðning að bjóða bæjarbúum á völlinn. Það borgaði sig greinilega.

Þess má líka geta að fyrir leikinn var Gunnari Inga Valgeirssyni veittur blómvöndur frá knattspyrnudeildinni þar sem hann hefur spilað 300 leiki fyrir Sindra sem er mjög merkilegur áfangi. Einnig er vert að minnast á það að Ingólfur Hjaltason, dómari frá Fáskrúðsfirði sem margoft hefur komið til Hornafjarðar til þess að dæma eða standa á línunni var að dæma sinn síðasta alvöru leik. Knattspyrnudeild Sindra vill koma á framfæri þakklæti til Ingólfs fyrir samstarfið í gegnum árin og fyrir ómetanlegt framlag til knattspyrnunnar á Austurlandi undanfarin ár.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica