Sindri Íslandsmeistari í 4. flokka kvenna
Sindri varð í gær Íslandmeistari í 7 manna bolta í 4. flokki kvenna, en úrslitamótið fór fram á Grundafirði um helgina. Sindrastelpur byrjuðu á að leggja Víking Rvk. 4-2 og er það einhver albesti leikur sem þessar dömur hafa spilað þar sem lið Víkinga var mjög gott og endað til dæmis í öðru sæti á Símamóti Breiðabliks. Næst voru það stelpurnar í Tindstól sem lágu fyrir okkur 3-2 þar sem við vorum undir þegar tvær og hálf mínuta voru eftir, en Sindrastúlkur voru samt miklu betri allan tímann og sóttu stíft. Þessir leikir vorum spilaðir á laugardaginn í frábæru fótboltaveðri.
Í gær var svo norðan strekkingur og byrjuðum við á að spila við heimasæturnar frá Grundafirði og unum við 4-1 í hörkuleik og áttum við þá bara eftir að mæta Leiftri/KS og mikill spenna var í loftinu. Sindrastelpur blésu hins vegar strax á alla spennu og settu mark á fyrstu mínutu og alls fjögur mörk í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik bættu þær svo við tveimur mörkum á móti strekkings vindi, 6-0 lokastaða og Íslandsmeistaratitill í höfn. Móttökur og aðstaða var til fyrirmyndar á Grundó og Sindri þakkar kærlega fyrir sig.
Liðið var þannig skipað um helgina: Árdís Drífa, Bjarney Jóna, Bríet, Brynja Rut, Guðlaug Margrét, Iðunn Tara, Karitas Björt, Kristjana Hafdal, Lára Björg, Lejla, og Róslín Alma. Auk þess eru í þessum flokki Amna, Íris ,Mist, Sveinbjörg og Þórdís. Þjálfari Hajrudin Cardaklija og liðstjórar Sif og Valdi



Skrifa athugasemd