Sindra fréttir
Tekist á í boltanum í sumar  (úr myndasafni)
Tekist á í boltanum í sumar (úr myndasafni)
Tekist á um boltann (úr myndasafni Sindra)

27.08.2006 Sindra fréttir

4. flokkur kvenna Íslandsmeistari

Stelpurnar í 4. flokki Sindra náðu þeim frábæra árangri í dag að verða Íslandsmeistarar í keppni 7 manna liða í fótbolta. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1997 sem Sindra eignast Íslandsmeistara í fótbolta. Úrslitakeppnin fór fram á Grundarfirði þannig að stelpurnar þurftu að ferðast langa leið til þess að klára dæmið. Þar kepptu þær fjóra leiki og skemmst er frá því að segja að Sindri vann alla sína leiki og enduðu úrslitakeppnina með markatöluna 17 ? 5. Sannarlega glæsilegur árangur hjá stelpunum og greinilegt að þær eiga framtíðina fyrir sér á knattspyrnuvellinum. Á Grundarfirði var haft orð á því að Sindraliðið væri einstaklega vel spilandi knattspyrnulið þar sem liðsheildin væri í fyrirrúmi.

Þess má líka geta að stelpurnar fóru í gegnum Austurlandsriðilinn án þess að tapa stigi þannig að þær unnu alla sína leiki í sumar. Af þessu að dæma má ljóst vera að kvennaknattspyrnan á sér bjarta framtíð á Hornafirði. Til hamingju stelpur!!!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica