Sindra fréttir
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005
Sindri Ragnarsson í harðri baráttu um boltann í leik við Leikni Fáskrúðsfirði um laust sæti í 2. deild. (úr myndasafni)

11.08.2006 Sindra fréttir

Grátlegur endir fyrir heimamenn

Það voru kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar þegar Sindramenn tóku á móti sameinuðu liði KS/Leifturs á Mánavelli. Völlurinn rennisléttur, logn og úði. Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu og miðjuhnoði. Fátt var um færi og því gengu liðin til hálfleiks án þess að hafa skorað. Í þeim seinni byrjuðu Sindramenn á að pressa Norðlendinga. Áttu þeir meðal annars stangarskot sem og fleiri dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Á meðan lágu Norðanmenn til baka og freistuðu þess að beita skyndisóknum með Ragnar Hauksson sem sinn fremsta mann. Það var ekki fyrr en fimm mínútur voru til leiksloka að dró til tíðinda. Þá fengu Sindramenn aukaspyrna sem Seval Zahirovic tók. Hann þrykkti boltanum inn í teig beint á kollinn á Birni Pálssyni sem sneiddi boltann laglega í netið við mikinn fögnuð heimamanna. En eins og stundum áður var Adam ekki lengi í Paradís.

Þegar komið var í uppbótartíma fengu KS/Leiftur vítaspyrnu þegar Ragnar Hauksson féll í teig Sindramanna. Hann fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi. Grátlegur endir fyrir heimamenn sem voru farnir að sjá glitta í annan heimasigur sinn í röð.
Næsti leikur er gegn Selfossi á útivelli laugardaginn 19. ágúst en næsti heimaleikur er hins vegar gegn Njarðvík laugardaginn 26. ágúst.

- Björn Pálsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica