Sindra fréttir
Sindrabuningar-LI_2006
Sindrabuningar-LI_2006
4.flokkur karla hjá Sindra ásamt Jónu Ingólfsdóttur

21.07.2006 Sindra fréttir

Landsbankinn gefur 4.flokk karla hjá Sindra peysur og töskur

Í næstu viku heldur 4. flokkur karla hjá Sindra á stórt mót í Noregi og munu þeir dvelja þar í 9 daga. Þetta eru 22 strákar ásamt 4 fararstjórum. Af tilefni utanlandsferðarinnar afhenti Jóna Ingólfsdóttir útibússtjóri Landsbankans á Höfn strákunum í gær peysur og töskur. Þetta er góð gjöf sem á eftir að nýtast strákunum vel. Við þökkum Landsbankanum fyrir þessa gjöf og um leið fyrir að styðja vel við bakið á unga fólkinu.

Takk fyrir okkur - 4. flokkur karla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica