B-lið 6.flokks kvenna komið í úrslit
Hnátumót KSÍ, austurlandsriðill var haldið þriðjudaginn 4.júlí. Mótið er fyrir 6.flokk stelpna og sendi Sindri A-lið, skipað stelpum á eldra ári og B-lið, skipað stelpum á yngra ári til keppni. Til að gera það mögulegt að senda bæði A og B lið og hafa einn skiptimann í hvoru liði komu þrjár stelpur úr 7.flokk með í ferðina og stóðu þær sig allar mjög vel. Upphaflega átti mótið að vera á Fáskrúðsfirði en þegar við mættum á staðinn var grenjandi rigning og rok og var því ákveðið að færa mótið til Egilsstaða, en þar var blíðskapar veður. Fjögur lið kepptu í flokki A-liða og sigraði Höttur en okkar stelpur enduðu í fjórða sæti þrátt fyrir vaska baráttu og eiga stelpurnar hrós skilið fyrir að láta aldrei deigan síga þó á móti blési. Þrjú lið kepptu í flokki B-liða og þar stóðu Sindrastúlkur uppi sem sigurvegara. Þær unnu fyrst Hött 6-1 og lögðu síðan sameiginlegt lið Austra, Leiknis og Vals 6-2.
Með sigri í flokki B-liða tryggði Sindri sér rétt til að taka þátt í úrslitakeppni Hnátumóts KSÍ sem fram fer dagana 19. og 20. ágúst, en leikstaður hefur enn ekki verið ákveðinn. Takk fyrir ferðina stelpur, þið voruð frábærar.
Björn Sigfinnsson þjálfari 6. flokks kvenna




Skrifa athugasemd