Sindra fréttir
Æfingar hjá sunddeild Sindra
Æfingar hjá sunddeild Sindra
Æfingar hjá sunddeild Sindra
Mynd 1 af 2
1 2

19.06.2006 Sindra fréttir

Mikið um að vera í sunddeildinni

Námskeiðum fyrir 5-6 ára nýlokið, æfingar að fara af stað og sundfatnaður kominn fyrir deildina.

Síðasta föstudag lauk þremur 10 daga sundnámskeiðum fyrir börn 5 og 6 ára á vegum sunddeildar Sindra. Hulda Laxdal sá um að leiða börnin í gegnum námskeiðin af alkunnri snilld og það voru ánægð börn sem luku námskeiðinu og eiga þau örugglega eftir að verða tíðir gestir í sundlauginni í sumar. Í dag hófust síðan sundæfingar fyrir 7 ára og eldri en vegna smæðar laugarinnar gátu þær ekki hafist á meðan á námskeiðunum stóð. 7 og 8 ára börn æfa á þriðjudags og fimmtudagsmorgnum en 9-12 ára börn á mánudags-, miðvikudags-, og föstudagsmorgnum. Báðir aldurshópar æfa kl. 9:00 og 10:00 og á skráninga sér stað á fyrstu æfingu. 12 ára og eldri æfa á mánudags-, miðvikudags,- og fimmtudagskvöldum kl. 20:00. Þjálfari hjá yngri hópunum er Sigurborg Jóna Björnsdóttir en Arnar Guðjónsson þjálfara elsta hópinn.

Sú nýbreytni á sér stað hjá sunddeildinni í sumar að valinn hafa verið sundföt fyrir sunddeildina. Um er að ræða sundboli og sunddskýlur í keppnislitum Sindra, rauðu og hvítu, auk hvítrar sundhettu. Verslunin Tangó og Speedo styrkja sunddeildina með sundfötin og verður hægt að máta þau og panta í Tangó fram til 2. júlí. Sundfötin eru á góðu verði og er öllum áhugasömum bent á að nýta sér þetta tilboð.

Raunar verður öllum sem greiða æfingagjöldin í sumar gefin sundhetta og er styrkur frá Skinney- Þinganes notaður til að greiða fyrir þær sundhettur.

Um leið og stjórn sunddeildarinnar þakkar styrktaraðilum kærlega fyrir hvetur hún sem flesta til að mæta á sundæfingar. Framundan eru Sumarhátíð ÚÍA og unglingalandsmót á Laugum, spennandi viðburðir fyrir alla fjölskylduna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica