Sindra fréttir
Sindragallar
Sindragallar
Landsbanki Íslands styrkir knattspyrnudeild Sindra rausnarlega með kaupum á upphitunargöllum fyrir meistaraflokka karla og kvenna.
Mynd 2 af 2
1 2

07.06.2006 Sindra fréttir

Landbankinn styrkir knattspyrnudeild Sindra

Eins og allir vita er rekstur allra deilda kostnaðarsamur og erfitt að halda starfinu gangandi ef ekki kæmu til sterkir styrktaraðilar. Þess er það þeim standa að málefnum íþrótta hér í bæ alltaf sérstakt ánægjuefni þegar stór og öflug fyrirtæki ákveða að styrkja starfið með myndarlegum hætti. Landsbanki Íslands styrkir einmitt knattspyrnudeild Sindra núna rausnarlega með kaupum á upphitunargöllum fyrir meistaraflokka karla og kvenna. Þeir gömlu voru algjörlega úr sér gengnir og því mikilvægt fyrir félagið að fá stuðning til þess að endurnýja gallana. Það hefur nú gengið eftir þannig að eftir er tekið. Yfirbragð og útlit knattspyrnufólks á Hornafirði hefur þess vegna stórbatnað sem skiptir gríðarlegu máli.

Þá hefur Landsbankinn líka gefið 4. flokka karla og kvenna íþróttatöskur sem koma að góðu gagni. Gjafir sem þessar gefa þeim starfa að málefnum íþróttahreyfingarinnar hér á staðnum í sjálfboðavinnu aukinn vilja og kraft til þess að halda áfram að vinna að málefnum íþróttanna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica