Stafganga í sumar
Stefnt er að því að bjóða upp á tíma í stafgöngu í sumar. Leiðbeinandi verður Matthildur Ásmundardóttir, sjúkraþjálfari. Um skemmtilega og góða líkamsþjálfun er að ræða fyrir konur og karla. Boðið verður upp á átta tíma byrjendanámskeið í stafgöngu þar sem farið verður í tækni og grunnþjálfun í stafgöngu. Lögð er áhersla á rétta líkamsbeitingu, auk þess er makmiðið að auka þol, styrk og liðleika.
Síðasta sumar var einnig boðið upp á stafgöngu og gekk það mjög vel. Þetta námskeið er nátengt verkefni Ólympíu ? og Íþróttasambands Íslands sem nefnist Ísland á iði. Verum því virk í sumar og bætum líkamlegt hreysti og þá líka andlega líðan.
Kennt verður þriðjudaga og fimmtudaga kl: 17:30-18:30. Fyrsti tími verður 13. júní. Verð 4000 kr. fyrir námskeið. Uppl. og skráning í síma 692-9015/588-4277. Ef áhugi er fyrir námskeiði fyrir lengra komna má skoða það. Þeir sem hafa áhuga á því geta haft samband við leiðbeinanda námskeiðsins Matthildi Ásmundardóttur.



Skrifa athugasemd