Stórtap gegn ÍR
Sindramenn tóku á móti ÍR-ingum á mánudaginn á Sindravöllum. ÍR-ingar byrjuðu leikinn betur og þjörmuðu að marki Sindra í upphafi leiks. Ekki tókst þeim þó að skora og var leikurinn í járnum langt fram eftir hálfleiknum. Þegar um fimm mínútur voru til leikhlés fengu ÍR-ingar hins vegar aukaspyrnu. Traustur varnarmaður ÍR-inga, Ernest Essombe, tók spyrnuna. Hann þrumaði að markinu og beint í þvöguna í teignum. Boltinn hrökk af Sindramanni og í markið algjörlega óverjandi fyrir Daníel Karlsson í marki Sindra. Staðan því 0-1 í hálfleik.
Eftir hlé færðist heldur betur fjör í leikinn. Sævar Gunnarsson átti þrumuskot í þverslá ÍR-inga eftir um tveggja mínútna leik. Sindramenn ætluðu greinilega að pressa ÍR stíft. Það var því eins og blaut tuska í andlit þeirra þegar ÍR-ingar skoruðu sitt annað mark eftir um tíu mínútna leik. Í kjölfarið fylgdi strax þriðja mark ÍR-inga og þeir því heldur betur komnir í vænlega stöðu. Um miðjan seinni hálfleik bætti ÍR svo fjórða markinu við og því fimmta skömmu síðar þegar vörn Sindramanna var orðin fáliðuð. Ekki lögðu Sindramenn þó árar í bát og þegar um korter var til leiksloka skoraði Sævar Gunnarsson þegar hann fylgdi á eftir vítaspyrnu sinni sem hann hafði sjálfur fiskað. Fimm mínútum fyrir leikslok stráðu ÍR-ingar svo endanlega salti í sár Sindramanna með sjötta marki sínu og unnu því öruggan 1-6 sigur.
Vörn ÍR-inga virkaði mjög traust og gaf fá færi á sér. Var Kamerúninn Ernest Essombe sérstaklega sterkur í návígjum og spili út úr vörninni. Sindramenn lögðu hins vegar allt í sölurnar í seinni hálfleik og það nýttu ÍR-ingar sér til fullnustu og sölluðu inn mörkum.
Næsti leikur Sindramanna er á móti KS/Leiftri og fer hann fram á Siglufirði næstkomandi laugardag. Næsti heimaleikur er hins vegar á móti Selfyssingum laugardaginn 24. júní kl. 13:00.



Skrifa athugasemd