Sindra fréttir
Gestur við tölvuna góðu
Gestur við tölvuna góðu

02.06.2006 Sindra fréttir

Getraunastofa Sindra - 13 réttir

Eins og flestum er kunnugt þá rekur Knd. Sindra öflugt getraunastarf. Getraunastarfið er mikilvægt fyrir starfið í Sindra vegna þess að það aflar knattspyrnudeildinni töluverða tekna og þess vegna gott þegar fólk ákveður að styðja við bakið á Sindra í gegnum getraunirnar. Tekjurnar sem skapast við rekstur tippstofunnar eru knattspyrnudeildinni og þar myndast frábær stemmning þegar tipparar eru að bera saman bækur sínar og sitt sýnist hverjum. Margir taka sér frí yfir sumarið en ekki allir sem betur fer. Einn frægur tippari hér á staðnum sem tippar reglulega og datt heldur betur í lukkupottin nú fyrir stuttu. Varð hann rúmum 500 þúsund krónum ríkari og óskar getraunaþjónusta Sindra honum hjartanlega til hamingju. Eins og sjá má þá er það stundum fleiri en Sindri sem græðir á getraunastarfseminni.

Gleymum því ekki að tippa yfir sumarið, mætum í kaffi á tippstofuna, spjöllum saman og styðjum við bakið á knattspyrnudeildinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica