Sindra fréttir
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

29.05.2006 Sindra fréttir

Sindri 2-2 Huginn

Sindramenn fóru á Seyðisfjörð á kjördag og mættu liði Hugins í þriðju umferð annarrar deildar. Nýr markvörður stóð í markinu og heitir kappinn Daníel Karlsson og kemur frá Þrótti Reykjavík. Athygli vakti einnig að í fyrsta skipti í áratug var Sindraliðið eingöngu skipað íslenskum leikmönnum. Sindri komst yfir eftir um hálftíma leik þegar Jón Haukur Haraldsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Leikurinn var að því er virtist algjörlega í höndum Sindramanna og því kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Sveinbjörn Jónasson jafnaði leikinn við mikla kátínu mikils fjölda áhorfenda sem lét sjá sig á leiknum. Ekki voru árar lagðar í bát hjá Sindramönnum því skömmu fyrir leikhlé kom Halldór Steinar Kristjánsson þeim aftur yfir eftir frábært spil og fyrirfjöf Óskars Guðjóns Óskarssonar. Staðan 1-2 í hálfleik. Leikurinn var býsna rólegur eftir te og fátt um fína drætti. Sindramenn héldu sig frekar til baka og freistuðu þess að verja forskot sitt. Um miðbik seinni hálfleiks náði Friðjón Gunnlaugsson að jafna fyrir Huginsmenn með skoti rétt fyrir utan teig og má í raun segja að skotið hafi verið önnur þruma leiksins sem kom úr heiðskíra loftinu á Seyðisfirði.

Baráttan var í fyrirrúmi á lokamínútunum og undir lok leiksins fengu Sindramenn ákjósanlegt færi til að stela sigrinum en markvörður Hugins varði skot Sævars Gunnarssonar eftir glæsilegan undirbúning Jóns Hauks. Lokaniðurstaðan 2-2 jafntefli.
Gaman var að sjá ágæta frammistöðu Daníels í markinu sem og endurkomu Kristins Þórs Guðlaugssonar eftir alltof langa fjarveru. Næsti leikur Sindramanna er í VISA-bikarnum fimmtudaginn 1. júní kl. 20:00 á Sindravöllum gegn Hetti frá Egilsstöðum. Tilvalið að gera sér dagamun og kíkja á knattspyrnukappleik milli austurlandsliðanna!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica