Sundnámskeið fyrir 5 og 6 ára börn
Sunddeild Sindra ætlar að standa fyrir sundnámskeiði fyrir 5 og 6 ára börn og fer námskeiðið fram í Sundlaug Hafnar 2.? 16. júní n.k. Um er að ræða 10 skipti sem börnin mæta og stendur hver tími í eina klukkustund í senn alla virka daga kl. 9:00, 10:00 eða 11:00. Ætlast er til að foreldrar aðstoði börnin sín eftir þörfum fyrstu dagana en á staðnum verða aðstoðarmanneskjur sem geta tekið við þegar börnin hafa öðlast nægilegt öryggi. Mikilvægt er að skrá börnin hjá Huldu Laxdal í síma 478 2552 eða 864 4952 því fjöldi á hvert námskeið er takmarkaður.
Námskeiðsgjald er 4.500 kr. og greiðist í fyrsta tíma.




Skrifa athugasemd