Tap gegn Reyni Sandgerði
Kári settur heldur betur svip sinn á leik Sindra og Reynis á Hornafirði í dag. Reynismenn byrjuðu betur á móti vindi og sóttu hart að marki Sindramanna. Múrinn brast eftir um tuttugu mínútna leik með sjálfsmarki Sindramanna. Algjörlega óverjandi fyrir Nezir Ohran í markinu sem var að leika sinn síðasta leik fyrir Sindra. Eftir það var jafnræði með liðunum en þegar um tíu mínútur voru til leikhlés dró til tíðinda. Þá fengu Sindramenn vítaspyrnu þegar brotið var á Seval Zahirovic. Seval tók spyrnuna sjálfur og skoraði úr henni. Staðan 1-1 í hálfleik.
Reynismenn léku með vindinn í bakið í seinni hálfleik. Fá færi litu dagsins ljós en eftir um 25 mínútna leik skoruðu Reynismenn eftir að leikmaður þeirra náði að rífa sig lausan frá varnarmanni, snúa sér við og leggja hann í markhornið. Sindramenn freistuðu þess að jafna leikinn og björguðu Reynismenn meðal annars á línu eftir fyrirgjöf frá hægri. Korteri fyrir leikslok stráðu Reynismenn salti í sár Sindramanna með því að bæta við sínu þriðja marki við eftir klafs fyrir framan vítateig Sindra.
Úrslitin voru nokkuð sanngjörn þó að sigurinn hefði getað dottið hvorum megin sem er. Reynismenn létu boltann ganga betur og svei mér þá ef Sandgerðingar kunnu ekki bara vel við sig í rokinu á Sindravöllum.




Skrifa athugasemd