Frábær byrjun á fótboltasumrinu á Hornafirði
Sindri – Völsungur 4-1
Sindri byrjaði með góðum sigri í sínum fyrsta leik í 2. deildinni á móti Völsungi frá Húsavík, en leikurinn fór fram á sunnudaginn síðastliðinn í bíðskaparveðri á Sindravöllum.
Okkar menn byrjuð nokkuð vel og fékk Einar Smári ákjósanlegt færi á fyrstu mínutu, en lét verja frá sér. Eftir það komust Völsungar betur inn í leikinn en strax á 9. mínútu skoraði
Halldór Steinar Kristjánsson fínt mark eftir hornspyrnu. Völsungurinn Guðmundur Óli Steingrímsson jafnaði úr vítaspyrnu en okkar maður í markinu var ekki langt frá því að verja. Undir lok hálfleiksins á Óskar Guðjón frábæra fyrirgjöf sem Einar Smári skallaði að marki en markmaður Völsungs varði vel.
Það var síðan eins og nýtt lið hefði komið inn á völlinn í seinni hálfleik, en það var ekki fyrr en á 69 mín. að Óskar Guðjón skoraði gott mark eftir töluverða pressu. Eftir það var sem allur vindur væri úr Völsungi og á 84 mín skorað Oggi glæsilegasta mark leiksins með þrumuskoti fyrir utan teig og það með vinstri! Það var síðan Jón Haukur sem rak síðast naglann í kistu Völsunga með fínu marki eftir frábæran sprett úr vörninni og niðurstaðan 4 -1.
Liðið var þannig skipað:
Nezir Ohran, Seval Zahirovic(86), Gunnar Auðunn Jóhannsson, Sindri Ragnarsson , Frans Elvarsson Gunnar Ingi Valgeirsson Óskar Guðjón Óskarsson Jón Haukur Haraldsson Eysteinn Sindri Elvarsson(90), Halldór Steinar Kristjánsson (63) Einar Smári Þorsteinsson
Bekkurinn:
Ólafur Ingi Guðmundsson (90), Sævar Gunnarsson (63), Ágúst Ragnar Reynisson (86) , Ólafur Einir Birgisson
Á fimmtudaginn ætlum við hjá Sindra að keppa við Silvíu Nótt um áhorfendur en þá kemur Boltafélag Norfjarðar í heimsókn og er sá leikur í Visa bikarnum. Á sunnudaginn kl 14.00 verður toppslagur þegar tvö efstu lið í 2. deildar mætast á Sindravöllum en þá kemur Reynir Sangerði í heimsókn. Meistarflokkur kvenna hefur svo keppni 24. maí þegar þær fara í heimskókn á Fáskrúðsfjörð og spila við Leikni.
Næstu leikir;
Visabikarinn Sindri ? Boltafélag Norðfjarðar fimmtudaginn 18 maí kl. 20.00
Íslandsmótið 2. deild kk Sindri ? Reynir Sangerði Sunnudaginn 21. maí kl 14.00
Íslandsmótið 1. deild kvenna Leiknir ? Sindri Miðvikudagurinn 24. maí kl 20.00




Skrifa athugasemd