Sindra fréttir
Tippdeild_Sindra
Tippdeild_Sindra
Tippdeild 16.maí 2006
Mynd 2 af 2
1 2

17.05.2006 Sindra fréttir

Sindri Íslandsmeistari sölufélaga Getrauna

Tíu söluhæstu getraunasalar á Íslandi hafa undanfarin tvö ár keppt í getraunum innbyrðis í fyrstu og annarri deild og voru það KR sem sigraði í fyrra en að þessu sinni voru það Sindramenn sem sigruðu eftir harða baráttu við KFS úr Vestmannaeyjum og hljóta þeir því titilinn Íslandsmeistari sölufélaga Getrauna. Að sögn Gests Halldórssonar það er ávalt mikil þátttaka í tippinu hjá Sindra og hittast menn í Sindrahúsinu á laugardögum en þar er opið alla laugardaga frá kl. 11-13. Enski boltinn er nú búinn og þá tekur við Sænski og Brasaboltinn við. Gestur segir að þetta sé skemmtileg viðbót sölumanna getrauna til að auka áhuga á getraunum og taka þátt í skemmtilegum leik.

Fyrir þá sem eru í tippinu þá er leikurinn eins og aðrar deildarkeppnir 1.deild og 2. deild, 3 stig fyrir sigur 1 fyrir jafntefli og 0 fyrir tap. Leiknar eru 18 umferðir heima og að heiman. 1 stig er gefið í forskot fyrir heimaleik.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica