Austurlandsmót í fimleikum
Laugardaginn 13. maí verður haldið Austurlandsmót í fimleikum í íþróttahúsinu á Höfn. Að þessu sinni koma keppendur frá þremur félögum; Sindra, Hetti og Neista. Fimleikafólki Sindra hefur gengið vel á þeim mótum sem sótt hafa verið í vetur en það sem iðkendur hafa tekið eftir á þeim mótum, er að áhöldin sem við höfum hér á Höfn eru sum hver að verða úr sér gengin. Það er á óskalista deildarinnar að geta í nánustu framtíð eignast fiberglass gólf og stökkborð. Gamla stökkgólfið er orðið all slitið og nýtt myndi minnka álag á liði í höndum og fótum. Stökkborð er hægt að stilla hærra en núverandi hestur, sem er og lágur fyrir einhver stökkin. Fimleikadeildin þarf á mörgum áhöldum að halda og eru þetta allt hlutir sem kosta sitt. Krakkarnir eru boðnir og búnir til að fara í fjáraflanir til að láta þennan draum verða að veruleika, og ætla til að mynda að vera með veitingasölu á mótinu um helgina. Kannski á líka eftir að sjást eitthvað til þeirra í sumar.
Þeir sem vilja styðja við bakið á Fimleikadeild Sindra er bent á reikning deildarinnar, 0172-05-62209.
ÁFRAM SINDRI.



Skrifa athugasemd