Aðalafundur UMF. Sindra
Aðalfundur UMF. Sindra var haldinn þriðjudaginn 28. febrúar síðastliðinn. Ágætis mæting var á fundinn og fólk frá hinum ýmsu deildum Sindra mætt. Farið var yfir starf Sindra á síðasta ári og kom í ljós hversu öflugt og mikið starf fer fram innan Sindra. Deildirnar innan Sindra voru allar búnar að halda sína aðalfundi þannig að á þessum fundi þurfti bara að fara yfir reikninga aðalstjórnar Sindra og var það fljótgert. Sá gleðilegi atburður átti sér stað á fundinum að blakdeild Sindra hlaut nafnbótina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Hulda Laxdal Hauksdóttir, formaður blakdeildarinnar tók við viðurkenningunni fyrir hönd blakdeildarinnar. Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ og Petrún Bj. Jónsdóttir, verkefnisstjóri fyrirmyndarfélags ÍSÍ mættu á fundinn og afhentu Huldu viðurkenninguna auk fjölda fána og merkja sem fylgja þessari vegtyllu. Allar stjórnir Sindra óska stjórn blakdeildarinnar til hamingju með þennan góða árangur.
Mikil umræða fór fram á fundinum um heilsársstarfsmann á vegum Sindra og USÚ. Óhætt er að segja að fundurinn hafi talið mikla þörf á því að starfsmaður UMF. Sindra verði ráðinn. Þeir stjórnarmenn sem þarna voru staddir og tóku til máls lýstu því yfir að vinna þyrfti þetta mál hraðast og best. Að hafa launaðan starfsmann myndi létta öllum þeim sjálfboðaliðum í stjórnum Sindra lífið mjög mikið og styrkja starfið sem auðvitað er aðalatriðið.
Aðalstjórn Sindra var endurkjörin á fundinum en hana skipa: Magnús Jónasson, formaður, Valdemar Einarsson, gjaldkeri og Ásgrímur Ingólfsson, ritari. Auk þeirra sitja í aðalstjórn Sindra allir formenn starfandi deilda innan Sindra. Greinilegt er á öllu að starfið innan Sindra öflugt um þessar mundir og margir eru tilbúnir til þess að leggja hönd á plóginn til þess að gera starfið enn betra.



Skrifa athugasemd