Blakdeild Sindra Fyrirmyndardeild ÍSÍ
Á aðalfundi Sindra sem fram fór þriðjudaginn 28. febrúar síðastliðinn afhenti Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ Blakdeild Sindra gæðaviðurkenningu sambandsins og hlaut þar með blakdeildin rétt til þess að kalla sig Fyrirmyndardeild ÍSÍ til næstu fjögurra ára. Þáttur í því ferli að sækja um þessa viðurkenningu felst í því að vinna handbók þar sem nálgast má ýmsar upplýsingar sem styrkja starfsemi deildarinnar og gera starfið markvissara. Sem dæmi um efni handbókarinnar má nefna að þar er fjallað um íþróttastefnu, kennsluskrá, fjármálastjórn, þjálfaramál, fræðslu- og forvarnarstarf og foreldrastarf. Blakdeildin er ung að árum en barna og unglingastarf deildarinnar hófst haustið 2004. Blakdeildin er fyrsta deildin innan Sindra og um leið USÚ sem hlýtur þessa viðurkenningu. Haukur Helgi Þorvaldsson, æskulýðsfulltrúi sveitarfélagsins, afhenti blakdeildinni viðurkenningarskjal þar sem fram kom að sveitarfélagið óskaði deildinni innilega til hamingju með blómlegt starf og að hljóta þessa viðurkenningu ÍSÍ.
Tilkoma handbókarinnar er mikill stuðningur fyrir þá sem starfa innan deildarinnar og um leið fyrir börnin sem þar æfa. Er það von blakdeildarinnar að aðrar deildir innan Sindra nýti sé þá vinnu sem unnin hefur verið á þessu sviði innan félagsins og stefni að því að gerast Fyrirmyndardeildir ÍSÍ.




Skrifa athugasemd