Sindra fréttir
Fimleikadeild Sindra
Fimleikadeild Sindra
Glæsilegt fimleikafólk Sindra (úr myndasafni)

27.02.2006 Sindra fréttir

Aðalfundur UMF. Sindra

Að undanförnu hafa deildir Sindra keppst við að halda sína aðalfundi. Þar hafa stjórnir deildanna gert grein fyrir starfi síðasta árs og reynt að manna sínar stjórnir. Eins og gengur og gerist hefur mætingin á þessa fundi verið misjöfn og misvel hefur gengið að fá fólk til þess að starfa í stjórnum næsta starfsár. Mikilvægt er að fólk átti sig á því að án stjórna missa deildirnar stöðu sína innan Sindra og gætu misst af Lottó tekjum sem standa undir rekstri sumra deilda.
Nú er komið að Aðalstjórn Sindra að halda sinn aðalfund. Fundurinn fer fram í Nýheimum þriðjudaginn 28. febrúar og hefst hann kl. 19:00. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem blakdeild Sindra fær sæmdarheitið Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Eftir mikið og gott uppbyggingarstarf hlýtur blakdeildin nú laun erfiðisins að fá að bera heitið Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Þetta er mikill heiður fyrir blakdeildina og ekki síður fyrir Sindra sem heild. Ljóst er að verið er að vinna mjög gott starf hjá blökurunum okkar og geta þeir verið öðrum fyrirmynd í þessum efnum.
Það er nú sem alltaf mikilvægt að fólk sýni starfi Sindra áhuga og því fólki virðingu sem vinnur hörðum höndum í sjálfboðavinnu að vexti og viðgangi okkar ástkæra félags. Hluti af því er að mæta aðalfund félagsins og kynnar sér það starf sem þar fer fram.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica