Sindra fréttir
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005
Hart barist um boltann á Sindravöllum

22.02.2006 Sindra fréttir

Þrír nýir kosnir í stjórn knattspyrnudeildar Sindra

Ályktað um uppbyggingu íþróttamannvirkja í tengslum við landsmót 2007

Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra var haldinn mánudaginn 13. febrúar síðastliðinn í Nýheimum. Mjög góð mæting var á fundinn og var það mjög gleðilegt. Greinilegt er að mikill áhugi er á starfi knattspyrnudeildarinnar um þessar mundir. Stjórnin var endurkjörin og einnig urðu þau gleðilegu tíðindi að þrír nýir einstaklingar gáfu kost á sér til þess að setjast í stjórn knattspyrnudeildarinnar. Það voru þeir Gunnar Ingi Valgeirsson, Miralem Haseta og Gunnar Þorláksson. Fyrir voru Árni Rúnar Þorvaldsson, Halldóra Guðmundsdóttir og Jóhanna Stígsdóttir. Miklar umræður spunnust á fundinum um skýrlsu stjórnar og ekki síður reikninga deildarinnar. Umræðurnar voru mjög málefnalegar, gagnlegar og munu eflaust efla starf deildarinnar á komandi ári. Fyrir fundinum lá tillaga frá stjórninni um að vinna beri að tvískiptingu bókhalds og rekstrar deildarinnar á næsta starfsári, þ.e. annars vegar í yngri flokka og hins vegar í eldri flokka. Tillagan var samþykkt og er nýkjörin stjórn er þegar farin að leggja drög að tvískiptingunni. Megintilgangurinn með þessu er að gera starf knattspyrnudeildarinnar einfaldara og skilvirkara. Einnig er mikilvægt að geta með þessu fyrirkomulagi dreift álagi og ábyrgð á stjórnarmönnum.

Á fundinum var einnig samþykkt ályktun frá stjórninni þar sem skorað er á byggingarnefnd íþróttamannvirkja í tenglsum við Unglingalandsmót UMFÍ 2007 að hafa samráð við knattspyrnudeildina þegar kemur að uppbyggingu knattspyrnumannvirkja. Í vetur hefur komið í ljós hversu mikilvægt er að bæta aðstöðu knattspyrnumanna til þess að iðka íþrótt sína utandyra yfir vetrartímann.

Þegar íþróttahúsið er jafnvel nýtt og í dag er lífsnauðsynlegt fyrir knattspyrnuna að geta leitað á önnur mið en íþróttahúsið svo knattspyrnan geti með betra móti lifað í sátt og samlyndi við aðrar íþróttagreinar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica