Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra
Mánudaginn 13. febrúar kl. 20:00 fer fram aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra í Nýheimum. Þegar litið er yfir skýrslu stjórnar er ljóst að mikið starf fer fram innan Knattspyrnudeildarinnar Sindra. Það er mikil vinna að halda þessu öllu gangandi svo vel megi vera. Þess vegna er orðiði löngu tímabært að ræða það af fullri alvöru hvað rekstrarform á að vera á deildinni. Með þessu er auðvitað átt við hvort ekki sé skynsamlegt tvískipta rekstri deildarinnar, annars vegar í rekstur yngri flokka og hins vegar í rekstur meistaraflokka. Þetta mál verður á dagskrá fundarins og tekin afstaða til þess. Einnig verður rætt um fyrirhugaða uppbyggingu íþróttamannvirkja í tenglsum við Unglingalandsmóti UMFÍ 2007 sem haldið verður hér á Hornafirði. Mikilvægt er að aðkoma knattspyrnudeildarinnar að því verkefni sé skýr því hjá henni og um 200 iðkendum hennar eru gríðarlegir hagsmunir í húfi.
Dagskrá fundarins verður annars sem hér segir:
1. Fundarstjóri og fundarritari kjörnir
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar
4. Umræður um skýrlsu stjórnar og reikninga
5. Kosningar
6. Umræður um stofnun yngri flokkaráðs
7. Umræður um uppbyggingu knattspyrnumannvirkja í tengslum við Unglingalandsmót UMFÍ 2007
8. Önnur mál
Framboði til stjórnar er hægt að skila inn til Árna Rúnars Þorvaldssonar, formanns knattspyrnudeildar Sindra eða á fundinum sjálfum.
Sjá skýrslu stjórnar 2006



Skrifa athugasemd