Styttist í aðalfund Sindra
Aðalástæðurnar fyrir knattspyrnudeildin fer nú fram með sinn eigin aðalfund eru þær að stjórnin vill ræða um stofnun yngri flokka ráðs annars vegar og stofnun meistaraflokkaráðs hins vegar. Hin ástæðan er sú að það er einfaldlega um svo stóran og mikinn rekstur að ræða. Staðan varðandi stjórnarmál þetta árið er keimlík stöðunni önnur ár, þ.e. að það bráðvantar fólk til stjórnarstarfa. Sérstaklega kemur til með að vanta fólk í stjórnina ef sú ákvörðun verður tekin að skipta rekstri deildarinnar í tvennt, þ.e. í yngri flokka ráð og meistaraflokkaráð.
Aðalstjórn og aðrar deildir Sindra halda svo líka sína aðalfundi í febrúar. Mjög mikilvægt er að fólk síni starfi Sindra áhuga og mæti á aðalfundi og láti sig málin varða.



Skrifa athugasemd