Heimasíða Sindra á hornafjordur.is
Innan Umf. Sindra er öflugt starf í gangi um þessar mundir. Það hefur vafalítið ekki farið fram hjá neinum hversu mikil uppbygging hefur átt sér stað hér að undanförnu í körfubolta og blaki. Það er ánægjulegt fyrir Hornfirðinga að sjá Það að mögulegt er að byggja upp og halda úti boltaíþróttum yfir vetrartímann. Mikil gróska er einnig í frjálsum íþróttum um þessar mundir. Vafalítð á vonin um betri aðstöðu í tengslum við Unglingalandsmót UMFÍ sinn þátt í þeim áhuga. Ekki má heldur gleyma öðrum deildum Sindra eins og fimleika -, sund - og knattspyrnudeild sem ennþá halda sínu striki og halda uppi þróttmiklu starfi.



Skrifa athugasemd