Sindra fréttir
Meistaraflokkur
Meistaraflokkur
Cober fær gula spjaldið

10.08.2005 Sindra fréttir

Línur farnar að skýrast í flestum flokkum

Sindrapistill | Gísli Örn

Nú er langt liðið á sumarið og línur farnar að skýrast í flestum flokkum. Yngri flokkarnir hafa staðið sig frábærlega í sumar einsog þeir gera alltaf. Báðir meistaraflokkarnir eru að keyra á heimamönnum að mestu leyti þetta sumarið og eru að gera flotta hluti í sínum riðlum. 7.flokkur kvenna fór á Símamót í sumar og gerðu góða ferð til Reykjavíkur og stóðu stúlkurnar sig einsog sannar hetjur og töpuðu aðeins einum leik..! 7.flokkur karla fór á Akranes í sumar og stóðu sig með stakri prýði og lentu í 2. og 3.sæti í sínum riðlum. Þeir geta verið stoltir af sjálfum sér eftir sitt framlag þetta sumarið. 6.flokkur kvenna var einnig á Símamótinu einsog 7.fl.kvenna og voru sér og bæjarfélaginu til mikils sóma á mótinu og eiga þær hrós skilið fyrir árangur sinn.

6.flokkur karla hélt austur á Fáskrúðsfjörð núna í júlí og spilaði gegn liðum frá Austurlandi í árlegu Íslandsmóti KSÍ og lentu bæði A og B lið í öðru sæti í sínum riðlum. - 6.flokkurinn fór á KB-Banka mót í sumar og stóðu sig ansi vel og komu heim með tvo bikara.

5.flokkur karla hafa verið að gera góða hluti í sumar, þeir hafa unnið alla leiki í A-liðum nema einn og er markatalan hjá þeim 56 mörk í plús. Síðast unnu þeir LeikniF 11-1. B-lið 5.flokks er líka að gera glimrandi hluti í sínum riðli og leiða þann riðil og lýtur allt út fyrir það að 5.flokkur sé á leiðinni í úrslitakeppnina núna í lok ágúst.
A-liðið hefur verið ansi markheppið núna í sumar og hafa sett´ann 62 í markið hjá andstæðingnum í níu leikjum sem gera tæp 7 mörk í leik að meðaltali, einnig komu þeir heim með stærðar bikar heim af Esso-mótinu á Akureyri í sumar.

5.fl.kvenna hafa líka staðið sig með prýði í sínum riðlum, bæði í A og B liðum. A-liðið spilaði síðast gegn ÞróttiNes en tapaði þeim leik 4-1, B-liðið vann hinsvegar sinn leik gegn Þrótti örugglega 5-1, og eru efstar í riðlinum. Ekki er útséð hvernig fer með úrslitakeppnina í þessum riðli en það mun koma í ljós á næstu dögum.
B-liðið er að gera það mjög gott í sínum riðli í sumar og hafa aðeins þurft að sækja boltann 2 í netið það sem af er sumri.

4.flokkur karla stendur sig mjög vel í frekar erfiðum riðli. Þeir léku síðast gegn KR-ingum á Sindra-völlum 17.júli og gerðu 1-1 jafntefli í þeim leik, þeir standa nú í 4 sæti í riðlinum. Næsti leikur hjá þeim er gegn KFR núna næsta fimmtudag á Sindravöllum kl.17:00, allir að mæta!
Strákarnir í 4.flokki unnu KR2 fyrr í sumar 6-1 á KR vellinum, það er ekki oft sem Sindri vinnur KR-inga, og það á heimavelli þeirra.

4.flokkur kvenna er að gera glæsilega hluti í riðlinum sínum og eru þær öruggar um að komast í úrslitakeppnina, stúlkurnar spiluðu við Hugann 21.júlí og unnu þann leik 1-0, 25.júlí léku þær svo gegn Þrótti á Neskaupstað og gerðu 1-1 jafntefli. Næsti leikur þeirra er mánudaginn 15.ágúst gegn á Hetti á Egilsstöðum.
Stelpurnar í 4.flokki hafa ekki tapað leik í Íslandsmótinu og hafa m.a unnið Hött 9-0 og Huginn 10-1 í sumar.


3.flokkur karla eru í 4 sæti í sínum riðli sem verður að teljast mjög gott og ennþá er nóg eftir af mótinu hjá þeim, svo það eru allir vegir færir fyrir þá að koma sér ofar í deildina, þeir léku núna síðast gegn Ægi/Hamar á laugardaginn var og sigruðu þann leik 5-2 þar sem Atli Arnarson skoraði 4 mörk, þeir áttu svo að spila á móti Haukum á sunnudeginum en þeim leik var aflýst vegna veðurofsa á Ásvöllum í Hafnarfirði, sá leikur verður leikinn 12.ágúst kl. 17:00 og hvetjum við Hornfirðinga sem staddir eru í nágrenni við Ásvelli að kíkja á drengina og hvetja þá til sigurs.
- Atli Arnarson er langmarkahæsti leikmaðurinn í riðlinum með 14 mörk, næsti maður kemur með 7 mörk.

3.flokkur kvenna hafa aðeins leikið 3 leiki í sínum riðli og síðast léku þær gegn Leikni F á Sindravöllum 11.júlí og gerðu 2-2 jafntefli. Stelpurnar hafa þó ekki setið auðum höndum því þær eru nýkomnar frá Osló þar sem þær voru í æfinga- og keppnisferð og heppnaðist sú ferð mjög vel í alla staði, þrátt fyrir smá vætu nokkra daga. Næsti leikur þeirra er núna, miðvikudaginn 10.júlí kl.17:00 á Sindravöllum gegn Huginn/Hetti. Allir að mæta og hvetja stúlkurnar áfram því þær eiga góðan möguleika að komast í úrslit.
Allar stelpurnar í 3.flokki kvenna eru að spila með meistaraflokknum og er ljóst að þær næla sér í góða reynslu þar fyrir komandi ár í boltanum, þær eru seigar skvísurnar í 3.flokki.

Meistaraflokkur kvenna á ennþá smá möguleika á að komast í úrslitakeppni um sæti í úrvalsdeild að ári, þær skvísur eru núna í 4 sæti í riðlinum. Síðast léku þær gegn Fjarðarbyggð og töpuðu þeim leik 6-1. Næsti leikur sem þeir eiga er gegn Hetti á fimmtudaginn 11.ágúst á Sindravöllum kl.19:00 og auðvitað eiga allir bæjarbúar að mæta og hvetja þær.
Stelpurnar í meistaraflokki eru mjög ungar að árum núna í sumar og eru nokkrar skvísur úr 4.flokki að spila með þeim.

Meistaraflokkur karla eru að gera mjög góða hluti í B-riðlinum. 28.júlí sl. fóru þeir til Hveragerðis og léku við Hamarsmenn, það þarf ekkert að fara mörgum orðum um það að þetta var auðveldur 7-1 sigur stráksunum í vil, þar sem Kristinn gerði 2 mörk, Einar Smári setti 1, Gísli Freyr 1, Jón Haukur 1, Seval skoraði 1 og svo setti Steinar eitt mark. Sindra-strákarnir eru núna í öðru sæti í riðlinum, stigi á eftir Reynismönnum. Þeir eiga tvo leiki eftir í sumar sem eru mjög þýðingamiklir, og ráða því hvort þeir komist í úrslitakeppnina um sæti í 2.deild að ári. Næsti leikur er gegn Árborg á Sindravöllum laugardaginn 13.ágúst kl.16:00 og hvetjum við alla til að koma á Sindravelli og styðja við bakið á strákunum bæði með nærveru sinni og fagnaðarlátum þegar boltinn syngur í neti andstæðingsins.
Strákarnir hafa verið á miklu skriði í sumar og verður leikur liðsins betri með hverjum leik þeirra. Þeir hafa aðeins þurft að sækja boltann 13 sinnum í markið í allt sumar sem er einu marki meira en Reynis-menn og eru með næstbestu markatöluna í riðlinum. Steinar Kristjánsson er markahæsti leikmaður riðilsins með 9 mörk úr 10 leikjum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica