5. flokkur Sindra Esso meistari
Nýliðna helgi fór fram 19. Essómót á Akureyri. Nokkuð stór hópur Sindramanna og aðstandanda þeirra streymdu norður yfir heiðar til að taka þátt. Sindri var með 2 lið, A og E. Bæði lið náðu nokkuð góðum árangri í sínum riðlum en það má þó segja að árangur E-liðsins hafi toppað þessa fínu helgi. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu alla leikina sína nema einn en þá gerðu þeir jafntefli. Spennan var gríðarleg fyrir úrslitaleikinn, á móti Breiðablik, bæði hjá strákunum og aðstandendum. Leikurinn fór fjörlega af stað, sótt á báða bóga en ekkert var skorað í venjulegum leiktíma. Og þá varð að ljúka leiknum með vítaspyrnukeppni. Og þá fyrst hófst nú spennan.
Sindra menn skoruðu úr öllum þremur vítaspyrnum en Breiðablik aðeins úr einni. Markmaður Sindra gerði sér lítið fyrir og varði eina spyrnuna hjá Blikum. Var þá komið í ljós að E-lið Sindra var Essómeistari 2005 við mikil fagnaðarlæti viðstaddra.
Á laugardagskvöldið var lokahóf í KA heimilinu þar sem verðlaun voru veitt. Þar á meðal fyrir bestu leikmennina í hverri stöðu. Besti markmaður E-liða var valinn Sindramaðurinn Halldór Karl Þórsson og besti sóknarmaðurinn var valinn Sindramaðurinn Sverrir Brimar Birkisson. Síðan var það fyrirliði liðsins Rafn Svan sem tók á móti 2 bikurum úr hendi Eiðs Smára og Sveppa, einum til eignar og öðrum sem þarf að skila að ári.
Þannig lauk þessu glæsileg Essómóti hjá KA mönnum, þeim til mikilla sóma og okkur Sindramönnum til enn meiri ánægju.
Að lokum viljum við koma á framfæri bestu þökkum til farastjóra, þjálfara og annarra foreldra sem stóðu sig með eindæmum vel á Akureyri.
Þess má geta að 5 flokkur karla er taplaus í Austurlandsriðli Íslandsmótsins og á næsta heimaleik fimmtudaginn 7. júli og hvetjum við alla til að koma og hvetja þessa glæsilegu knattspyrnumenn til frekari árangurs.



Skrifa athugasemd