70 ára afmæli Umf Sindra
Ungmennafélagið Sindri varð 70 ára 1.des og var þessara tímamóta minnst í íþróttahúsinu með myndarlegri afmælisveislu. Með afmæliskaffinu var rjómaterta og skúffukaka sem gerð voru góð skil. Albert Eymundsson og Magnús Jónasson fluttu ræður og einnig var blak og fimleikasýning. fjórði flokkur kvenna keppti í fótbolta við Albert og starfslið hans í ráðhúsinu. Nokkrir aðilar voru heiðraðir fyrir störf sín hjá Sindra, þau eru;
Bára Baldvinsdóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Herdís Tryggvadóttir, Valdimar Einarsson, Gestur Halldórsson, Ingólfur Baldvinsson og Jón Haukur Haraldsson.. Framundan er nóg að gera hjá Sindra, danskir þjálfarar koma og þjálfa fimleikadeildina dagana 10.-12. des. og einnig er verið að undirbúa jólasýninguna.
Stjórn Sindra skipa er Magnús Jónasson, Valdimar Einarsson og Herdís Tryggvadóttir.




Skrifa athugasemd