Sindra fréttir
Bara bestar
Bara bestar
Bara bestar

26.05.2004 Sindra fréttir

Jafntefli hjá stelpunum

Í gær var fyrsti leikur Sindra á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Meistaraflokkur kvenna atti þá kappi við Fjarðabyggð og fór leikurinn fram á Neskaupstaðarvelli. Lokatölur leiksins urðu 3 ? 3, í leik þar sem Sindri hefði hæglega getað hirt öll stigin. Mörk Sindra skoruðu þær Jóna Benný Kristjánsdóttir, Karítas Þórarinsdóttir og María Emilsdóttir. Næsti leikur hjá stelpunum verður 3. júní gegn Hetti og verður leikið á Egilsstöðum. Fyrsti heimaleikur mfl. kvenna hjá Sindra verður 15. júní á Sindravöllum. Í 1. deild kvenna C riðill eru aðeins þrjú lið Sindri, Fjarðarbyggð og Höttur og verður leikin fjórföld umferð.

Meistaraflokkur karla mun halda á Vopnafjörð á föstudaginn og leika sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu þetta árið gegn Einherja.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica