Sindra fréttir
Nihad Hasecic, betur þekktur sem Cober þjálfari mfl. karla (mynd:Kristján Jónsson)
Nihad Hasecic, betur þekktur sem Cober þjálfari mfl. karla (mynd:Kristján Jónsson)

24.03.2004 Sindra fréttir

Nezir Ohran til liðs við Sindra

Nú er frágengið að nýr markmaður gengur til liðs við Sindra fyrir komandi tímabil. Markmaðurinn heitir Nezir Ohran, 31 árs gamall og er með mikla reynslu. Nezir kemur til landsins í byrjun apríl. Þetta eru góðar fréttir fyrir liðið og gífurlegur styrkur fyrir hópinn sem fyrir er. Ákveðið hefur verið að liðið fari í æfinga- og keppnisferð til Ólafsvíkur um páskana og verður þar tekist á við fyrrverandi þjálfara Sindra, Ejub Purisevic og lærisveina hans í Víking Ólafsvík sem sigruðu 3. deildina s.l. sumar. Hjá Sindra eru menn enn vongóðir um að 1 ? 2 leikmenn bætist við hópinn fyrir átökin í sumar.

Samkvæmt mótaskrá KSÍ er fyrsti leikur Sindra í bikarkeppninni við Neista og á leikurinn að fara fram 18. maí. Fyrsti leikurinn í Íslandsmótinu er settur á 28. maí gegn Einherja á Vopnafirði. Sindri reið ekki feitum hesti frá fyrstu viðureign sinni í deildarbikarnum þetta árið. Liðið tapaði fyrir Fjölni 5 ? 0 í Reykjaneshöllinni 14. mars s.l. Hópurinn hjá Sindra var heldur þunn skipaður í þessum leik og töluverð forföll vegna meiðsla.
Á laugardaginn munu okkar menn síðan etja kappi við ÍH í Reykjaneshöllinni og er sá leikur einnig í deildarbikarnum. Ljóst er að Sindri nær ekki að stilla upp sýnu sterkasta liði í þessum leik heldur vegna meiðsla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica