Sindra fréttir

Fjarðarálsmeistarar 2012 í bæði A og B

Fjarðarálsmeistarar 2012 í bæði A og B - 09.05.2012 Sindra fréttir

Glæsilegur árángur hjá Sindra í 5. flokk kvk en þær urðu Fjarðarálsmeistarar 2012 í bæði A og B-liða.

Lesa meira
 
María Selma

María Selma með U 17 ára landsliðinu - 04.05.2012 Sindra fréttir

María Selma Haseta hefur verið undir smásjá kvennaþjálfara KSÍ frá því í fyrrasumar og nú í vetur spilaði hún sýna fyrstu leiki með U 17 landsliði Íslendinga þegar það mætti Dönum 2 sinnum í Kórnum  18. og 20. mars. 

Lesa meira
 
KND_Sindra

Ársmiðar á Sindravelli - 02.05.2012 Sindra fréttir

Nú styttist í fótboltinn byrjar að rúlla og liðinn hjá  Sindra að vera klár í slaginn.  Að venju  er í boði ársmiði sem er hagstætt val þegar á allt er litið.  Lesa meira
 
Almannaskarð

Hlaup í Skarðið - 02.05.2012 Sindra fréttir

Laugardaginn 5.maí kl 13:30 ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að standa fyrir viðburðinum Hlaup í Skarðið. Lesa meira
 
Fjarðarálsmeistarar B-liða 2012

Fjarðarálsmeistarar B-liða 2012 - 30.04.2012 Sindra fréttir

Glæsilegur árangur hjá 4. flokk karla í Fjarðarálsmóti 2012, en þeir urðu Fjarðarálsmeistarar B-liða 2012. Spiluðu æsi spennandi úrslitaleik við Þór Akureyri og unnu hann 1-0. Unnu í alla 3 leikina og jafntefli í einum.

Lesa meira
 
Úrslit í Freyjuhlaupinu

Úrslit í Freyjuhlaupinu - 10.04.2012 Sindra fréttir

Laugardaginn 31. mars s.l. stóðu frjálsíþróttadeild Sindra og Sælgætisgerðin Freyja fyrir Freyjuhlaupinu. Hlaupnar voru 3 vegalengdir í karla og kvennaflokki.

Lesa meira
 
Gamlárshlaup (úr myndasafni)

Freyjuhlaupið!   - 27.03.2012 Sindra fréttir

Laugardaginn 31.mars ætlar frjálsíþróttadeild Sindra í samstarfi við Sælgætisgerðina Freyju að standa fyrir nokkurskonar víðavangshlaupi. Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Sveinbjörg með stórglæsilegan árangur í Svíþjóð um helgina. - 12.03.2012 Sindra fréttir

Hornfirðingurinn Sveinbjörg Zophoníasdóttir stóð sig heldur betur vel í fimmtarþraut innanhúss á sænska meistaramótinu sem fram fór í Gautaborg um helgina.

Lesa meira
 
Myndir frá maraþonhlaupi 4.flokks

Ýmislegt á döfinni hjá frjálsíþróttadeildinni - 22.02.2012 Sindra fréttir

Sunnudaginn 26.febrúar ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að vera með góuhlaup. Hlaupnar verða tvær vegalengdir 2km og 5km.

Lesa meira
 
UMF Sindri

Fótboltinn byrjaður að rúlla, meistaraflokkar Sindra byrjar vel. - 08.02.2012 Sindra fréttir

Þótt það sé aðeins febrúar eru meistaraflokkar okkar byrjaðir að ferðast um landið til að ná sér í æfingarleiki.  

Lesa meira
 
Samningur við Flugfélagið Erni

Flugfélagið Ernir og knattspyrnudeild Sindra skrifa undir samstarfssamning - 08.02.2012 Sindra fréttir

Samningurinn sem er til 3 ára felur í sér að Sindri augýsir Erni sem styrkir Sindra á móti með flugferðum sem á  eftir að nýtast knattspyrnudeildini vel. 

Lesa meira
 
Skinney-Þinganes styrkir Sindra

Skinney-Þinganes styrkir UMF.Sindra - 08.02.2012 Sindra fréttir

Umf. Sindri skrifði undir samning við Skinney-Þinganes í janúar síðasliðin.  Samningurinn er til fjögra ára og á eftir að styrkja starf Sindra svo um  munar. 

Lesa meira
 
Fimleikadeild Sindra

Glæsilegur árangur fimleikadeildar Sindra - 22.11.2011 Sindra fréttir

Helgina 12-13. nóvember fóru 27 krakkar frá fimleikadeild Sindra á mót í almennum fimleikum sem haldið var í Hveragerði.

Lesa meira
 
Sindri_Hlaup_PICT5247

Hlaup í Skarðið - 10.10.2011 Sindra fréttir

Sunnudaginn 16.október kl 13:30 ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að standa fyrir viðburðinum Hlaup í Skarðið.

Lesa meira
 
Sveinbjörg og Einar

Sveinbjörg og Einar með 4 gull og 2 silfur. - 29.08.2011 Sindra fréttir

Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Einar Ásgeir Ásgeirsson voru heldur betur í eldlínunni á Akureyri á MÍ 15-22 ára í frjálsum um helgina þau kepptu í 3 greinum hvort og komust á  pall í þeim öllum.

Lesa meira
 
Á körfuboltavellinum (úr myndasafni)

Körfuboltabúðir fyrir krakka í íþróttahúsinu um helgina - 10.08.2011 Sindra fréttir

Körfuknattleiksdeild Sindra ætlar að halda körfuboltabúðir fyrir krakka á aldrinum 10-18 ára komandi helgi 12. til 14. ágúst. Búðirnar verða haldnar í íþróttahúsinu á Höfn og byrja þær kl. 17:00.

Lesa meira
 
Sveinbjorg_IMG_3091

Sveinbjörg í 16. sæti í sjöþraut 17-19 ára í Evrópu - 02.08.2011 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir gerir það ekki endasleppt á stórmótunum sem hún er að keppa á erlendis í sumar, hún gerði sér lítið fyrir og bætti sig í sjöþraut á EM U 19 sem fram fór í Tallinn um síðustu helgi. Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Frábær árangur á Smáþjóðarleikunum í Liechtenstein - 05.06.2011 Sindra fréttir

Frjálsíþróttakonan Sveinbjörg Zophoníasdóttir stóð aldeilis í eldlínunni á Smáþjóðarleikunum sem fóru fram í Liechtenstein 31.- 4. júní. Lesa meira
 
Ævintýra og leikjanámskeið Sindra

Ævintýra- og leikjanámskeið Sindra að hefjast - 02.06.2011 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri verður með ævintýra og leikjanámskeið fyrir 6 – 9 ára börn

Lesa meira
 
Sunddeild Sindra

Fréttir frá Sunddeild Sindra - 24.05.2011 Sindra fréttir

Í vetur hafa verið æfingar á mánudögum og fimmtudögum og eru iðkendur 30 talsins á aldrinum 8-16 ára, heldur færri en voru fyrir áramót en þá voru 7 ára líka en í janúar var ákveðið að bjóða uppá íþróttaskóla fyrir þann aldur en þar er boðið uppá flestar fjölbreyttar íþróttir.

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Sveinbjörg í A landslið Íslands - 30.04.2011 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir  frjálsíþróttakona var í gær valin í íslenska A  landsliðið sem er að fara á Smáþjóðaleikana í Lichtenstein 29.maí.

Lesa meira
 
Saman gaman

Gaman Saman verður haldið 14. maí - 28.04.2011 Sindra fréttir

Það hefur lengi verið stefna og starf ungmannafélagsins Sindra að fá unga sem aldna til þess að stunda íþróttir, útiveru og hreyfingu enda fátt betra og skemmtilegur en leikur með sínum nánustu.

Lesa meira
 
Ragnhildur og Matthildur

Fjölmennt þing USÚ - 15.04.2011 Sindra fréttir

Fimmtudaginn 14. apríl var 78. ársþing USÚ haldið á Hótel Höfn. Þingið var fjölmennt enda aðildarfélög USÚ mörg og virk í starfsemi sinni sem er gleðilegt og endurspeglar það öfluga ungmenna- og íþróttastarf sem er í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Lesa meira
 
Meistaraflokkur karla í blaki

Páll Róbert bestur í 2. deild - 30.03.2011 Sindra fréttir

Meistaraflokkur karla í blaki spilaði til úrslita á Íslandsmótinu í 2. deild um síðustu helgi í Reykjavík. Lesa meira
 
Vestrahorn

Siðareglur Sindra - 25.03.2011 Sindra fréttir

Þá kynnti stjórnin hugmyndir að fjölskyldudegi í vor sem og siðareglur Sindra. Lýstu fundarmenn mikilli ánægu með þessar reglur og voru þær samþykktar sem siðareglur fyrir félagið.

Lesa meira
 
Sindri - Ægir 20.8.2005

Útlitsdýrkun í fótbolta - 11.02.2011 Sindra fréttir

Þegar að ég var að stjórna 2. flokki Sindra í leik á móti Leikni seinnipart síðasta sumars gerðist nokkuð sem hreinlega sló mig og fékk mig til að hugsa um hvað fótbolti hreinlega snérist um í dag Lesa meira
 
Nýr Sindrabíll

Nýr bíll til Sindra - 09.02.2011 Sindra fréttir

Um þessar mundir er ungmennafélagið Sindri að taka í notkun nýjan bíl, 9 manna fjórhjóladrifna Toyotu Hiace árgerð 2007. 

Lesa meira
 
Sveinbjörg  Zophoníasdóttir USÚ

Sveinbjörg íslandsmeistari í langstökki kvenna. - 09.02.2011 Sindra fréttir

Sveinbjörg  Zophoníasdóttir USÚ varð íslandsmeistari í langstökki um síðustu helgi og bætti hún gamla metið sitt um 10 cm. og stökk 5.98m. Lesa meira
 
Íslandsmeistaramót í kraftlyftingum

Sigraði á íslandsmeistaramót í bekkpressu - 08.02.2011 Sindra fréttir

Ingi Stefán Guðmundsson sigraði á íslandsmeistaramót í bekkpressu 105 kg flokki og setti í leiðinni nýtt íslandsmet þegar hann lyfti 215 kg. Lesa meira
 
UMF Sindri

Forvarnardagur hjá Sindra - Góðir gestir í heimsókn til Sindra - 20.01.2011 Sindra fréttir

Fimmtudaginn 20. janúar fáum við í Sindra góða gesti í heimsókn þegar A landsliðsþjálfarar í knattspyrnu mæta til okkar,  þeir Ólafur Jóhannesson  og Sigurður Ragnar Eyjólfsso

Lesa meira
 
Jólasport

Jólamót Kraftlyftingadeildar Sindra - 10.12.2010 Sindra fréttir

Haldið verður kraftlyftingamót í Sporthöllinni sunnudaginn 26.desember (annar í jólum ) ef næg þátttaka fæst. Keppt verður í þríþraut án útbúnaðar þar sem einungis vafningar og belti er leyfilegt. Hnébeygja-bekkpressa-réttstöðulyfta

Lesa meira
 
Blakdeild Sindra

Mikið um að vera hjá blakdeild Sindra - 08.12.2010 Sindra fréttir

Hjá blakdeild Sindra eru á milli 70 – 80 iðkendur í vetur. Í haust fór af stað nýr hópur sem hittist 1x í viku í Mánagarði og æfir sig í blaki, þetta eru 16 konur á öllum aldri og gengur vel hjá þeim og er oft mikið stuð á æfingum. Lesa meira
 
Sunddeild Sindra

Mikið um að vera hjá Sunddeild Sindra - 22.11.2010 Sindra fréttir

Mikil aukning er í hópi þeirra sem að æfa sund og eru nú í haust um 40 sem æfa reglulega en til samanburðar þá voru iðkendur í vor um 30. Lesa meira
 
Á körfuboltavellinum (úr myndasafni)

Útikörfuboltavöllur vígður - 13.09.2010 Sindra fréttir

Nýr útikörfuboltavöllur á miðsvæðinu var vígður miðvikudaginn 25. ágúst. Um er að ræða körfuboltavöll sem er sömu stærðar og þvervellir í íþróttahúsinu

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttur

Sveinbjörg gerir það ekki endasleppt - 09.09.2010 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti á sænska meistaramótinu í fjölþrautum um helgina í sjöþraut. Hún gerði sér lítið fyrir og hreppti brons.

Lesa meira
 
Norðurlandameistaramótið á Akureyri 2010

Sveinbjörg með silfur. - 31.08.2010 Sindra fréttir

Keppendurnir frá USÚ stóðu sig mjög vel á Norðurlandameistaramótinu sem fram fór á Akureyri. Lesa meira
 
Sveinbjörg og Einar í unglingalandsliðið

Tvö ungmenni úr USÚ í íslenska unglingalandsliðið - 17.08.2010 Sindra fréttir

Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Einar Ásgeir Ásgeirsson voru valin í gær í íslenska unglingalandsliðið í frjálsum íþróttum.

Lesa meira
 
íformi æfingar

 Æfingar Íformi - 16.08.2010 Sindra fréttir

Þá er komið að því, æfingar eru að hefjast fyrir íformi mótið.  Vonandi erum við þó öll í fínu formi eftir sumarið og þurfum bara aðeins að laga tæknina til að verða keppnishæf. Ef staða er ekki alveg svo góð eftir grillkjötið í sumar þá er ekkert annað en að hefjast handa og koma sér í form fyrir mótið. 

Lesa meira
 
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

Allir á völlinn - 03.08.2010 Sindra fréttir

Nú er farið styttast í annan endann á þessu tímabili hjá okkur Sindramönnum og framundan er blóðug barátta um sæti í úrslitum 3.deildar.

Lesa meira
 

Sumarhappadrætti  Knd Sindra - 28.07.2010 Sindra fréttir

 

Búið er að draga hjá sýslumanni  í Sumarhappadrætti knattspyrnudeilar Sindra og hlutu eftirtaldir miðar vinnig

Philips hágæða sjónvarp frá Nettó                               nr 8

Flug höfn-rvk-höfn fyrir 2 með Erni                             nr 121

Kvöldverður, gisting með morguverði á Hótel Flúðum    nr 220

Nokia sími frá Martölvunni                                          nr 325

HP prentari og minniskubbur frá Hátíðni                      nr  302

 

Vinninga er hægt að vitja í Sindrahúsinu Hafnarbraut 25  eða í síma 8686865 gegn framvísun vinnigsmiða

 

Stjórn Knd Sindra

 
Sveinbjörg Zophoníasdóttur

Sveinbjörg í úrslitum á Heimsmeistaramóti unglinga - 27.07.2010 Júlí

Sveinbjörg Zophaníasdóttir varð í áttunda sæti í úrslitum langstökksins á heimsmeistaramóti unglinga í frjálsíþróttum í Moncton í Kanada um helgina.

Lesa meira
 
Einar Ásgeir Ásgeirsson

Einar Ásgeir tvöfaldur íslandsmeistari - 22.07.2010 Sindra fréttir

Dagana 17. og 18. júlí var Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum haldið á svæði FH í Hafnarfirði. Þangað fóru 3 vaskir sveinar á vegum USÚ. Lesa meira
 
Landsmót USÚ Sauðárkróki 2009

Unglingalandsmót í Borgarnesi - 22.07.2010 Sindra fréttir

Nú styttist í unglingalandsmót UMFÍ en það er haldið í Borgarnesi að þessu sinni. Keppnisgreinar eru fjölmargar og hvetjum við Hornfirðinga til að fjölmenna líkt og undanfarin ár. Lesa meira
 
Íslandsmeistarar Sindra 3. flokkur kvenna 2009

Landsliðskonur í fótbolta á Höfn - 20.07.2010 Sindra fréttir

Landsliðskonurnar Katrín Ómarsdóttir og Þóra B. Helgadóttir eru hér á Höfn í dag 20. júlí Lesa meira
 
Sveinbjörg og Jón Snorri

Fjórir Hornfirðingar í eldlínunni á MÍ í frjálsíþróttum. - 12.07.2010 Júlí

Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir, Jón Snorri Þorsteinsson USÚ, Bjarni Malmquist Fjölni og Vigfús Dan Sigurðsson ÍR voru heldur betur í eldlínunni á MÍ aðalhluta um helgina.

Lesa meira
 
Kvennahlaup 2005

Kvennahlaup ÍSÍ á Hornafirði - 16.06.2010 Sindra fréttir

Kvennahlaup ÍSÍ á Hornafirði verður haldið laugardaginn 19 júní og verður hlaupið frá Sundlaug Hornafjarðar kl 11:00. Létt upphitun er fyrir hlaup.

Lesa meira
 
Sindraleikur

Glæsilegir sigrar hjá meistaraflokkum Sindra á laugardag - 15.06.2010 Sindra fréttir

Það var sannkölluð fótboltaveisla á laugardag þegar tveir meistaraflokksleikir fóru fram.  Meistaraflokkur karla mætti KFR og meistaraflokkur kvenna mættu ÍR. Lesa meira
 
070610-Sindri-Fjolnir-4-fl-

Glæsilegt þrátt fyrir tap hjá 4.fl. karla - 10.06.2010 Sindra fréttir

Strákarnir okkar áttu í miklum erfileikum á fyrstu mínútunum

Lesa meira
 
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

Góður fyrri hálfleikur gegn slæmum seinni hálfleik - 10.06.2010 Sindra fréttir

Strákarnir okkar byrjuðu gríðarlega vel með glæsilegu marki

Lesa meira
 
070610-Sindri-kff

Stórglæsilegur Sigur 2.fl. kk - 10.06.2010 Sindra fréttir

2.flokkur karla er á góðri siglingu

Lesa meira
 
Sindri-Njardvik

3.fl. kvk með stórsigur gegn Njarðvík - 07.06.2010 Sindra fréttir

Stórsigur 3.fl. kvk geng Njarðvík

Lesa meira
 
Meistaraflokkur kvk. Sindra 2010

Fjarðabyggð 4 -1 Sindri - 07.06.2010 Sindra fréttir

 

Lokatölur leiksins voru 1 – 4 og voru Sindrastelpur mjög svekktar eftir annað tap sitt gegn Fjarðarbyggð á þessu sumri

Lesa meira
 
Meistaraflokkur kvk. Sindra 2010

Fjarðabyggð 3- 2 Sindri - 01.06.2010 Sindra fréttir

Næsti leikur sindrastelpna verður á Fáskrúðsfirði, föstudaginn 4. júní við Fjarðarbyggð en í þetta sinn er hann í vísa-bikarnum.   

Lesa meira
 
Sveinbjörg íslandsmeistari í sjöþraut kvenna

Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna - 31.05.2010 Sindra fréttir

Hún gerði sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistaratitilinn í sjöþraut kvenna á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum sem haldið var á Kópavogsvelli um helgina.
Lesa meira
 
Kristján Guðnason

Kristján Guðnason kosinn formaður knattspyrnudeildar - 27.05.2010 Sindra fréttir

Ný stjórn tók við á síðasta aðalfundi Knattspyrnudeildar Sindra. Mikil hugur er í stjórninni og má búast við miklu af henni í framtíðinni. Lesa meira
 
Mosöld 2010

Tóku þátt í Öldungamóti BLÍ þrettánda árið í röð - 20.05.2010 Sindra fréttir

Blakiðkendur 30 ára og eldri úr blakdeild Sindra tóku um helgina þátt í Öldungamóti Blaksambands Íslands (BLÍ), sem haldið var í Mosfellsbæ. Fjögur lið kepptu undir merkjum Sindra, alls 28 iðkendur.

Lesa meira
 
Sindri með brons

Sindri með brons - 16.04.2010 Sindra fréttir

Íslandsmótið í 2. og 3. deild í blaki lauk í Kópavoginum um síðustu helgi. Sindra konurnar unnu  austurlandsriðilinn í 2. deild vetur, eins og áður hefur verið greint frá og fóru því í úrslitakeppnina.

Lesa meira
 
Meistaramót Íslands 11-14 ára í fjrálsum innanhúss

Fréttir frá frjálsíþróttadeildinni. - 18.03.2010 Sindra fréttir

Helgina 13-14 mars sl. fóru 6 vaskir keppendur frá USÚ á Meistaramót Íslands 11-14 ára innanhúss. Þetta voru þau Anna Birna Elvarsdóttir, Anna Soffía Ingólfsdóttir, Inga Kristín Aðalsteinsdóttir, Sigrún Salka Hermannsdóttir, Kristófer Laufar Hansson og Rannver Olsen

Lesa meira
 
Kvennalið Sindra í blaki á öldungamóti 2009

Mikil gróska í Blakinu - 12.03.2010 Sindra fréttir

Stelpurnar í mfl. Sindra gerðu sér lítið fyrir og unnu Austurlandsriðilinn í 2. deild., skákuðu m.a. blakveldi Þróttar-Nes.
Þær  spiluðu 10 leiki í vetur og unnu 8 af þeim.

Lesa meira
 
Samningur milli TM og Sindra 2010

Samstarf TM og Sindra - 05.03.2010 Sindra fréttir

Tryggingamiðstöðin (TM) og Knattspyrnudeild Sindra undirrituðu samstarfssamning á dögunum Lesa meira
 
Íslandsmeistarar 2009 7.manna fótbolta kvk 3. fl.

Sindri safnar fartölvum og GSM símum - 05.03.2010 Sindra fréttir

Félagar í Sindra hyggjast hefja nýstárlega fjáröflun sem felst í því að safna gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum í bænum. Þá ætla félagar í Sindra einnig að safna gömlum stafrænum myndavélum

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Sveinbjörg fékk styrk frá ÍSÍ. - 05.02.2010 Sindra fréttir

ÍSÍ úthlutaði í vikunni styrkjum til afreksfólks í íþróttum á Íslandi og hlaut Sveinbjörg Zophoníasdóttir styrk úr Styrktarsjóði  Ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna. Lesa meira
 
Blakhelgi á Hornafirði

Blakhelgi á Hornafirði - 21.01.2010 Sindra fréttir

Mikið var um að vera í íþróttahúsinu á Höfn um helgina en þar voru spilaðir tuttugu og þrír blakleikir í Íslandsmóti 2. og 3. deildar austur.

Lesa meira
 

Ný stjórn hjá Fimleikadeild Sindra - 20.01.2010 Sindra fréttir

  

 

Nú um áramót tóku þær Elín Sigríður Harðardóttir og Linda Hermannsdóttir við fimleikadeild Sindra af þeim frænkum  Báru Baldvinsdóttur og Gunnhildi Lilju Gísladóttur.  Reyndar verður þetta nú ekki formlegt fyrr en á aðalfundi deildarinnar sem haldinn verður bráðlega og þá náttúrulega með þeim formmerkjum að ekki komi mótframboð.  Meiningin með þessu er sú  að Bára og Gunnhildur ætla ekki að henda þeim Ellu Siggu og Lindu beint í djúpu laugina heldur að fylgja þeim inn í þetta flotta starf sem þær hafa staðið að í eldlínunni í ansi mörg ár. Bára í 12 ár og Gunnhildur í 6 ár.  Ungmennafélgið Sindri þakkar þeim stöllum fyrir frábært og óeiningjart starf um leið og við bjóðum  þeim Elínu og Lindu velkomar til starfa.

Lesa meira
 

Boltinn byrjaður að rúlla - 20.01.2010 Sindra fréttir

 

 

Um síðustu helgi hófst Síldarvinnslumótið en það er Austurlandsmót sem er spilað á gervigrasinu í Fellabæ og Fjarðarbyggaðarhöllinni.  Sindri spliaði tvo leiki um síðustu helgi annan við Huginn sem vannst 3-1 og skoruðu þeir Atli Haraldsson,  Friðrik Gottlieb Ólafsson  og Kristinn Þór Guðlaugsson fyrir Sindra.  Seinni leikurinn var við Hött og endaði sá leikur 2 -2 með mörkum Kristins og Alex Freyr Hilmarsson.  Fín byrjun hjá okkar mönnum.  Þá splaði Mfl kvenna við Fjarðarbyggð/Leikni og endaði sá leikur tapaðist  2-3 en við vorum yfir 2 -0 þegar 30 mínutur voru eftir.  Mörkin skoruðu þær María Birkisdóttir og Eirin en hún er skiftinemi hér á Höfn

Frí eru um næstu helgi en svo verður farið austur aftur helgina þar á eftir.

 
5_flokkur 2005

Afmælisbarnið Umf. Sindri 75 ára - 03.12.2009 Sindra fréttir

Félagar í Sindra ætla að fagna tímamótunum með ýmsum hætti um þessa helgi. Lesa meira
 
Alexander og Kristján á Bikarmóti Kraft 2009

Kraftlyftingafélag Sindra stofnað. - 20.11.2009 Nóvember

Kraftlyftingadeild Sindra  var stofnuð 2. nóvember 2009 til að fólk sem stundar lyftingar hér íHornafjarðarbæ geti keppt fyrir okkar heimafélag UMF-Sindra.

Lesa meira
 
Í Formi 2008

Íformi um helgina - 17.09.2009 Sindra fréttir

Nú um helgina hefst mótið Íformi, en það er íþróttamót fyrir 30 ára og eldri. 

Lesa meira
 
Íslandsmeistarar Sindra 3. fl. kvenna 2009

Sindri Íslandsmeistari í 3 flokki kvenna í 7 manna bolta - 24.08.2009 Sindra fréttir

Hornfirðingar eignuðust Íslandsmeistara þegar stelpurnar í 3. flokki kvenna unnu úrslitakeppnina sem haldin var í Garðinum í gær, 23. ágúst

Lesa meira
 
Frjálsar á nýjum velli

Þórey Edda heimsækir Frjálsíþróttaskóla Sindra og UMFÍ - 17.07.2009 Sindra fréttir

Sindri heldur frjálsíþróttaskóla í samstarfi við UMFÍ í frjálsum íþróttum og hefst það á mánudaginn 20.júlí.

Lesa meira
 
Guðrún Fema Ólafsdóttir

Guðrún Fema dæmdi Frakkland - Finnland 30. júní - 06.07.2009 Sindra fréttir

Guðrún Fema Ólafsdóttir dæmdi sinn fyrsta opinbera landsleik á Opna Norðurlandamóti U17 kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Sunne í Svíþjóð.

Lesa meira
 
Við afhendingu styrksins

Sveinbjörg fær styrk - 03.07.2009 Sindra fréttir

Sjöþrautarkonan Sveinbjörg Zophoníasdóttir fékk á dögunum styrk úr Afreks- og styrktarsjóði USÚ að upphæð 100.000 kr.

Lesa meira
 
Sindra-logo

Fyrsta verkefni íslenskra kvendómara á erlendri grundu - 26.06.2009 Sindra fréttir

Guðrún Fema Ólafsdóttir verður dómari á Opna NM í Svíþjóð

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Sveinbjörg á Heimsmeistaramót unglinga í 7 þraut. - 15.06.2009 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti um helgina á Norðurlandameistaramóti 22 ára og yngri sem fram fór í Kópavogi.

Lesa meira
 
Ævintýra og leikjanámskeið

Ævintýra og leikjanámskeið Sindra að hefjast - 29.05.2009 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri verður með ævintýra og leikjanámskeið fyrir 5 – 10 ára börn

Lesa meira
 
Kajakróður

Kajakróður - 27.05.2009 Sindra fréttir

Umf. Sindri hyggst bjóða þeim sem áhuga hafa á að kynna sér kajakróður upp á stutt kynningarnámskeið 

Lesa meira
 
Fyrsti leikurinn í kvennaboltanum

Laugardaginn 30. maí er sannkölluð fótboltaveisla á Sindravöllum. - 27.05.2009 Sindra fréttir

Nú er fótboltasumarið að byrja á fullum krafti hjá öllum flokkum Sindra. Á laugardaginn er tvöföld veisla á Sindravöllum þegar meistaraflokkarnir taka á honum stóra sínum.

Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppir á Norðurlandameistaramóti unglinga í fjölþrautum - 13.05.2009 Sindra fréttir

Sveinbjörg hefur æft mjög vel í vetur og er því til alls líkleg í sumar.

Lesa meira
 
Sindra-logo

Æfingargjöld Sindra - 10.03.2009 Sindra fréttir

Nú eiga allir að vera búnir að greiða æfingargjöldin til Sindra

Lesa meira
 
6.flokkur_1

Rekstur knattspyrnudeildar Sindra - 17.10.2008 Sindra fréttir

Knattspyrnudeild Sindra hefur í gegnum árin staðið fyrir umfangsmiklum rekstri. Deildin fer ekki varhluta af þeim aðstæðum sem nú hafa skapast á fjármálamörkuðum, frekar en aðrar knattspyrnudeildir út um allt land. Ljóst er að deildin verður að endurskipuleggja sinn rekstur til þess að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Ef ekkert breytist mun það reynast erfittt að halda úti meistaraflokkum í þeirri mynd sem þeir hafa verið reknir undanfarin ár. Af þessum sökum hefur knattspyrnudeild Sindra markað þá stefnu að rekstur yngri flokka félagsins séu í forgangi á þessum tímapunkti. Lesa meira
 
íformi æfingar

Íformi fjölgreinamót haldið bráðlega - 10.09.2008 Sindra fréttir

Íformi er fjölgreinamót fyrir 30 ára og eldri sem haldið er á Hornafirði dagana 19.-20. september. Forsaga mótsins er sú að í fyrra var hér haldið glæsilegt unglingalandsmót og kviknaði þá sú hugmynd halda mót fyrir 30 ára og eldri, og skildi mótið vera haldið á landsvísu. Stjórn Sindra hóaði nokkrum saman til að kýla á þessa hugmynd og var á fyrsta fundi sem haldinn var skipuð nefnd, en í henni eru, Sívar Árni Scheving, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir og Grétar Vilbergsson. Starfsmaður nefndarinnar er Valdemar Einarsson og honum til halds og traust er formaður Sindra, Ásgrímur Ingólfsson. Var reynslan notuð frá því í fyrra og fengnir greinastjóra fyrir allar greinar, en þeir eru Björg Erlingsdóttir fyrir badminton, Hjálmar Sigurðsson fyrir golf, Ólafur Jónsson fyrir fótbolta, Sigríður Arna Ólafsdóttir fyrir blak, Guðrún Ingólfsdóttir fyrir frjálsar íþróttir og Gunnar Páll Halldórsson fyrir brids. Lesa meira
 
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

Úrslitakeppnin hafin - frítt á völlinn - 01.09.2008 Sindra fréttir

Sindramenn spiluðu á KR vellinum um síðastliðna helgi þar sem þeir öttu kappi við KV í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum 3. deildar karla. Skemmst er frá því að segja að leikurinn endaði með 2-2 jafntefli, sem verða að teljast viðundandi úrslit í ljósi þess að strákarnir voru að spila á útivelli. Kristinn Þór Guðlaugsson og Tadej Venta skoruðu mörk Sindra í leiknum. Seinni leikurinn fer fram þriðjudaginn 02. sept. kl. 17:30 á Sindravöllum. Sparisjóður Hornafjarðar og Kaffi Hornið hafa ákveðið að leggja strákunum lið í baráttunni og ætla að bjóða Hornfirðingum frítt á völlinn. Það lið sem stendur uppi sem sigurvegari í þessum tveimur viðureignum kemst í 4 liða úrslit þar sem baráttan um tvö laus sæti í 2. deild karla fer fram. Lesa meira
 
Verðlaunahafarnir

Frábær árangur á Meistaramóti Íslands - 28.08.2008 Sindra fréttir

Fannar Blær Austar Egilsson og Sveinbjörg Zophoníasdóttir voru sigursæl á Meistaramóti Íslands 15-22 ára á Sauðárkróki um helgina. Þau eru bæði 16 ára og unnu þau samtals 8 gull. Sveinbjörg varð Íslandsmeistari í langstökki, stökk 5.42 m og í þrístökki þar sem hún stökk 11.41 m en hvoru tveggja er lengra en gildandi Úlfsljótsmet en því miður var meðvindur of mikill. Hún bætti þó þrjú önnur Úlfljótsmet; í kringlukasti og kúluvarpi og varð íslandsmeistari í þeim greinum ásamt spjótkasti. Þá var 80m grindarhlaup þriðja Úlfljótsmetið sem hún bætti á mótinu en hafnaði þar í 4. sæti. Einnig fékk hún silfur í hástökki. Fannar Blær varð Íslandsmeistari í 800 m, 3000 m og svo einnig í 1500 m hlaupi þar sem hann bætti eigið Úlfljótsmet um 5 sekúndur. Jón Snorri Þorsteinsson keppti líka á mótinu og fékk brons og bætti Úlfljótsmetið í sleggjukasti 17-18 ára. Björn Ármann Jónsson keppti sömuleiði og komst í úrslit í öllum sínum greinum þrátt fyrir að keppnin væri hörð í hans aldursflokki. Lesa meira
 
Silfurmedalíuhafinn

Meistaramót Íslands 11-14 ára 16-17 ágúst á Laugum í Reykjadal. - 20.08.2008 Sindra fréttir

Föstudaginn 15. ágúst s.l. lögðu sjö krakkar úr USÚ á stað norður á Lauga í Reykjadal til þess að taka þátt í Meistaramóti Íslands. Mótið hófst kl. 11 á laugardagsmorgni í frábæru veðri. Við áttum 2 keppendur í aldursflokknum 11 ára stelpur, 1 í flokki 12 ára stelpna, 2 í flokki 13 ára telpna, 1 í flokki 13 ára pilta og 1 í flokki 14 ára pilta. Anna Birna Elvarsdóttir kom heim með silfurverðlaun í 60m hlaupi 11 ára stelpna og líka með silfurverðlaun í langstökki. Einar Ásgeirsson tryggði sér silfurverðlaun í 800m hlaupi 14 ára pilta. Lesa meira
 
mflkvk_Sindra

Meistaraflokkur Sindra í kvennafótboltanum vekur athygli - 08.08.2008 Sindra fréttir

Á vefnum fotbolti.net er grein um meistaraflokk kvenna í fótbolta og fjallað um auglýsingarnar þeirra og æfingar. Hafa þær vakið athygli með uppátækjum sínum og eflaust einhver lið sem feta í fótspor þeirra.


Hér er tengill inn á greinina á fotbolti.net

Lesa meira
 
3. fl. Sindra í Noregi

3. flokkar Sindra í Noregi - 30.07.2008 Sindra fréttir

31. manna hópur frá Sindra auk þjálfara og fararstjóra eru nú að keppa í Noregi á móti sem heitir Norway Cup. |nl|Það eru 3. flokkar karla og kvenna sem eru með þrjú lið. Tvö í sjö manna bolta og eitt í ellefu manna bolta. Öll liðin eru komin áfram eftir undankeppnina, Strákarnir í sjö manna boltanum unnu sinn riðil, stelpurnar í öðru sæti og strákarnir í ellefu manna boltanum urðu í 3. sæti í sínum riðli. Öll þessi lið fara áfram, sjö manna liðin í A úrslit en ellefu manna liðið í B úrslit og hefjast þau á morgun. Lesa meira
 
Badminton

Í formi fyrir 30 plús - 26.07.2008 Sindra fréttir

Í haust ætlar ungmannafélagið Sindri á Höfn í Hornafirði að halda öldungamót á Höfn fyrir konur og karla sem náð hafa 30 ára aldri. Á mótinu sem verður haldið 19. - 20. september verður keppt í badminton, blaki, brids, fótbolta, frjálsum og golfi. Í allar þessar greinar geta menn skráð sig sem lið fyrir ákveðið félag eða sem einstaklingar. Keppnisgjöld verða mjög væg einungis 3000 kr á mann sama hvað keppt er í mörgum greinum en einnig verður boðið upp á pakka þar sem innifalin verða keppnisgjöld og hátíðarkvöldverður með glæsilegum hornfirskum skemmtiatriðum og hlaðborði. Gistiaðilar verða með tilboð fyrir þátttakendur þessa helgi og auðvitað er öllum frjálst að gista á tjaldstæðinu. Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér þetta nánar geta kynnt sér mótið á væntanlegri heimasíðu þess iformi.is þar sem einnig verður hægt að skrá sig. Heimasíðan opnar í lok júlí. Lesa meira
 
Símamótið 2008

Baráttugleðin skein úr hverju andliti - 17.07.2008 Sindra fréttir

Fjölmennur hópur frá Sindra lagði leið sína á Símamótið í Kópavogi dagana 10.-13. júlí. Símamótið er stærsta kvennamót sem haldið er hérlendis og voru keppendur um 1500 talsins frá um 25 liðum á landinu. Frá Sindra fóru stelpur úr 5. 6. og 7. flokki en þær eru á aldrinum 5-12 ára. Mótið í ár var frábær skemmtun og var margt gert sér til gamans fyrir utan fótboltann. Má þar helst nefna kvöldvökur, bíóferðir og sögustundir að ógleymdum þeim dýrmætu tímum sem stelpurnar áttu saman í skólanum þar sem þær kynntust stelpum frá öðrum liðum og gistu saman. Lesa meira
 
Þjálfarar 2008

Sindraleikar á Humarhátíð - 27.06.2008 Sindra fréttir

Mikil gróska er í frjálsíþróttunum og augljóst að þessi frábæra aðstaða sem við fengum í fyrra er að skila sér. Iðkendur í frjálsum íþróttum hafa sennilega aldrei verið fleiri en nú, en um 40-50 börn og unglingar stunda reglulegar frjálsíþróttaæfingar sem eru níu sinnum í viku. Þjálfararnir hjá okkur eru heldur ekki af verra taginu en við höfum yfir að ráða fjórum framúrskarandi þjálfurum sem allt saman eru núverandi eða fyrrverandi landsliðsmanneskjur í frjálsum íþróttum. Þetta eru þau Guðrún Ingólfsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Bjarni Malmquist og Stefanía Hákonardóttir. Á Humarhátíð, sunnudaginn 6. júlí kl. 14:00 verða Sindraleikarnir þar sem áhugasamir frjálsíþróttamenn fá að spreyta sig. Öllum er velkomið að taka þátt í Sindraleikunum og vonumst við til þess að sjá sem flesta. Lesa meira
 
17. júní hátíðarhöld á Höfn

17. júní á Höfn - 16.06.2008 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri heldur utan um hátíðarhöldin að þessu sinni og er dagskráin með nokkuð hefðbundnum hætti. Skrúðganga verður farin frá Vesturbrautarplaninu kl. 14.00 og verður gengið upp á Hóteltún þar sem dagskrá hefst kl. 14.30 með því að lúðrasveitin leikur nokkur lög. Þá verður hátíðarávarp, tilnefning til íþróttamanns ársins USÚ 2007, ávarp fjallkonunnar, ávarp nýstúdents, fimleikasýning og söngatriði. Eftir þetta verður boðið upp á grillaðar pylsur, leiktæki og andlitsmálun ofl. Um kvöldið verður svo fjölskyldudansleikur í íþróttahúsinu frá kl. 20.00 og mun hljómsveitin Undur skemmta. Lesa meira
 
Sunddeild Sindra júní 2008

Námskeið og æfingar að hefjast hjá Sunddeild Sindra - 07.06.2008 Sindra fréttir

Sumarstarf sunddeildar Sindra er nú að fara í fullan gang og hefjast æfingar og námskeið mánudaginn 9.júní. Sundnámskeið verða fyrir 5-6 ára börn og sundæfingar þrisvar í viku fyrir 7 ára og eldri. Nánar auglýst á Skjávarpi, í sundlaug og í bækling æskulýðs og tómstundaráðs. Stjórn sunddeildar Sindra hvetur sem flesta til að mæta á sundæfingar. Eftir páska tók nýr þjálfari við sunddeildinni þegar Barbara Dröfn Fischer yfirgaf okkur. Nýi þjálfarinn er Berglind Þorsteinsdóttir frá Keflavík. Berglind er vel kunnug sundíþróttinni en hún æfði sund í 11 ár, keppti á mörgum mótum og vann til margra verðlauna á sundferlinum . Lesa meira
 
Ævintýra og leikjanámskeið Sindra

Ævintýra og leikjanámskeið Sindra að byrja - 06.06.2008 Sindra fréttir

Ævintýra og leikjanámskeiðið Sindra mánudaginn 9. júní. Mikil afþreying fyrir börnin er á öllum námskeiðunum og því bæði gott og þroskandi fyrir öll börn að stunda þessi námskeið. Leikjanámskeiðin byrja kl. 9.00 eru til 12.00, en gæsla er frá 8.00. En af hverju fara í leikjanámskeið, hér koma nokkrir góðir punktar hvers vegna; Við byrjum snemma og því erum meiri líkur á að börn sofi ekki fram að hádegi, námskeiðið skapar hreyfing að minnstakosti tvo tíma á hverjum degi sem eins og allir vita er mjög hollt, í því eru m.a. leikir, ganga og ýmislegt fleira. Einnig er margt skemmtilegt um að vera eins og fjöruferð, veiðiferð, óvissuferð, hestferð, grillað, farið í sund og margt fleira. Lesa meira
 
vigsluleikur_a_sindarvollum_008

Fyrstu leikirnir á nýjum Sindravöllum - 28.05.2008 Sindra fréttir

Vígsluleikur nýrra Sindravalla var laugardaginn 24. maí þegar 3. flokkur karla spilaði við öflugt lið Selfyssinga. Leikar enduðu þannig að Selfoss vann 3 – 0 í hörkuleik tveggja vel spilandi liða. Greinilegt var þó að lið Selfoss er í töluvert betri leikæfingu en Sindramenn. Það var munurinn á liðunum þegar þau mættust á Sindravölllum og vígðu völlinn. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri mætti á leikinn og afhenti Nökkva Jóhannessyni, formanni knattspyrnudeildar Sindra blómvönd áður en leikurinn hófst með ósk um um gott gengi Sindramanna á nýjum velli. Þrátt fyrir tapið sýndu Sindrastrákarnir fína takta á vellinum og börðust vel. Með sama áframhaldi eiga þeir eftir að velgja mörgum liðum undir uggum og ná góðum árangri. Næsti leikur strákanna fer fram 7. júní á Leiknisvelli í Breiðholtinu. Lesa meira
 
Sindri - Ægir 20.8.2005

Fótboltasumarið fer af stað - 23.05.2008 Sindra fréttir

Grasið er orðið grænt og knattspyrnufólk er búið að taka fram takkaskóna. Um helgina hefst knattspyrnuvertíðin hjá Sindra með leik 3. flokks karla á Sindravöllum við Selfoss laugardaginn 24. maí kl. 16:00. Leikurinn verður vígsluleikur á nýjum velli Sindramanna á Sindravöllum. Í 3. flokki karla æfir öflugur hópur drengja sem eiga vonandi eftir að ná góðum árangri í sumar. Ástæða er til að hvetja fólk til þess að mæta á völlinn og sjá þennan fyrsta leik sem fram fer á nýjum velli. Lesa meira
 
Ljón

Sumardagurinn fyrsti - 23.04.2008 Sindra fréttir

Á sumardaginn fyrsta ætlar Sindri ásamt stuðningsaðilum að standa fyrir dagskrá við Sindrabæ, sem hefst kl. 13.00 með skemmtiskokki út í Ósland með kjörorðinu "allir með á sínum hraða!". Boðið er upp á tvær leiðir, aðra með fjörunni og hring um Óslandstjörnina sem er um 3 km og hin sem farið er eftir Óslandsveginum og snúið við út á Gónhól. Engin verðlaun verða í boði, en Vífillfell býður þeim sem taka þátt Bergtopp í nesti. Svo um kl. 14.00 - 16.30 verða uppblásin leiktæki á planinu við Sindrabæ ásamt einhverjum óvæntum glaðningi frá Landsbanka Íslands og TM. Þá verður frítt í sund fyrir alla þennan dag í boði Æskulýðs- og tómstundarráðs Hornafjarðar. Dagskráin er í boði UMF. Sindra, TM, Landsbanka Íslands, Vífilfells, Hopp.is og Æskulýðs- og tómstundarráðs Hornafjarðar. Gleðilegt Sumar! Lesa meira
 
Haukur með starfsmönnum Sport- Tækja

Borið í gervigrasvöllinn - 23.04.2008 Sindra fréttir

Gervigras þarf áburð ekki síður en lifandi gras og sá áburður er kurlað gúmmí að mestu unnið úr hjólbörðum. Starfsmenn Sport-Tækis í Hveragerði voru í dag (22.4) að bera kurl á sparkvöllinn við íþróttahúsið. Áður en gúmmíkurlið er sett á völlinn er hann ryksugaður vel og hreinsaður og síðan er kurlið borið á. Þar sem mikið álag er á gervigrasinu svo sem er á sparkvellinum þarf að bera kurl í hann helst á hverju ári. Fyrstu tvær vikurnar eru líkur á að þeir sem völlinn nota fari með smásýnishorn af kurlinu neðan í skóm sínum heim og þykir það ekki gott í teppi eða önnur gólfefni svo þá er gott ráð að fara bara úr skónum utan dyra. Lesa meira
 
Sindri_HPIM0651_uti

Sindri og Skinney-Þinganes undirrita nýjan samning - 03.04.2008 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri og Skinney-Þinganes undirrituðu 2. apríl nýja samning þess efnis að Skinney-Þinganes styrkir UMF. Sindra um 4,5 milljónir til þess að endurnýja bílaflota sinn. Nú þegar er búið að taka í notkun bíl sem var keyptur fyrir þennan styrk en fyrir valinu hjá stjórn Sindra var Renult Master 15 farþega bíll sem Sparibíll flutti inn fyrir félagið. Fyrir á UMF. Sindri 2 bíla af gerðinni Ford Transit sem einmitt hafa verið keyptir fyrir styrk frá Skinney-Þinganes en ráðgert er að selja annan af gömlu bílunum. Það er mikil bylting að fá þennan nýja bíl sem er hærri til lofts og með ýmsum nútíma þægindum sem gömlu bílarnir hafa ekki. En þrátt fyrir útlitið og töluverðan aldur hafa gömlu bílarnir reynst mjög vel og hafa auðveldað okkur að koma ferðum íþróttafólks heim og saman þvers og kruss um landið. Lesa meira
 
E-lið Sindra

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra - 11.03.2008 Sindra fréttir

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra var haldinn föstudagskvöldið 7.mars. Fundurinn hafði verið auglýstur kvöldið áður en var frestað vegna veðurs. |nl|Árni Þorvaldsson flutti skýrslu stjórnar og var byrjað á að ræða um þá skiptingu sem unnið hafi verið eftir á síðasta starfsári stjórnarinnar, þ.e. að mynda stjórn um rekstur yngri flokkanna annars vegar og 2.flokk og meistaraflokkanna hins vegar. Ræddi hann síðan um þjálfaramál, mótamál og frammistöðu einstakra flokka. |nl|Halldóra Guðmundsdóttir fylgdi reikningunum úr hlaði og kynnti þann viðsnúning sem orðin er í rekstri deildarinnar. Halli síðasta árs var 615 þús. króna á móti 4 millj. á árinu þar áður. Erfitt var að greina milli ýmissa tekju og rekstrarliða hjá meistaraflokkum annars vegar og yngri flokka hins vegar. Með miklu starfi hefur þó tekist að greina þetta það vel í sundur að á síðasta ári var sameiginlegur kostnaður 564.000, kr. á móti rúmlega 3,1millj. árið 2006. Að þessu loknu voru umræður um skýrslu stjórnar og reikninga, þar sem rætt var um: þjálfarakostnað, Sindraskrá og leikmannakaup. Voru síðan reikningarnir samþykktir samhljóða. |nl| Lesa meira
 
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra - 06.03.2008 Sindra fréttir

Aðalfundur knd. Sindra verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 í Nýheimum. Á fundinum verða tekin fyrir hefðbundin aðalfundarstörf og síðasta starfsár gert upp. Síðasta ár í sögu knattspyrnudeildar Sindra var fyrir margra hluta sakir bæði ánægjulegt og erfitt. Meistaraflokkur karla náði sér aldrei á strik og féll aftur niður í 3. deild. Árið var meistaraflokki kvenna einnig nokkuð erfitt en þess ber auðvitað að geta að liðið var mjög ungt að árum. Aftur á móti náðu yngri flokkar félagsins mjög góðum árangri í sumar og voru deildinni til mikils sóma hvert á land sem farið var. T.a.m. varð 3. flokkur karla Íslandsmeistari í 7 manna bolta auk þess sem margir aðrir flokkar náðu mjög góðum árangri. Lesa meira
 
Undirritun samnings

Gengið frá þjálfarasamningum fyrir meistaraflokka - 01.03.2008 Sindra fréttir

Knattspyrnudeild Sindra hefur nú gengið frá þjálfarasamningum fyrir meistaraflokka félagsins. Skrifað var undir tveggja ára samning við Hajrudin Cardacilja um þjálfun meistaraflokks og 2. flokks karla. Hjá meistaraflokki kvenna skrifaði deildin undir samning við Jónu Benný Kristjánsdóttur og Söndru Sigmundsdóttur sem einnig munu leika með liðinu næsta keppnistímabil. Þær munu einnig sjá um þjálfun 3. flokks kvenna sem og 6. og 7. flokks kvenna í sumar. Engum blöðum er um það að fletta að það er gríðarlegur fengur að því fyrir meistaraflokk kvenna að fá Jónu Benný aftur heim auk Söndru Sigmundsdóttur sem spilað hefur með Þór/KA á Akureyri við góðan orðstír. Hún hefur einnig getið sér gott orð fyrir þjálfun í Bandaríkjunum. Eins og flestir vita þá hefur hópurinn hjá meistaraflokki kvenna verið mjög ungur síðastliðin sumur og hópurinn ekki stór. Það var því gríðarlega mikilvægt að fá þessa leikmenn til liðs við okkur og til þess að þjálfa. Lesa meira
 
Frjálsar á nýjum velli

Aðalfundur frjálsíþrótta- og sunddeilda Sindra - 26.02.2008 Sindra fréttir

Um þessar mundir eru félög og fyrirtæki að gera upp síðast ár og í kvöld verða aðalfundir hjá frjálsíþrótta- og sunddeild Sindra. Þar verður farið yfir starfið á síðasta ári og hvað framundan er á þessu ári. Það er vissulega spennandi tímar framundan í báðum þessum deildum. Ný sundlaug í byggingu og nýr frjálsíþróttavöllur á Sindravöllum. Fundirnir verða báðir í Sindrahúsinu. Aðalfundur frjálsíþróttadeildarinnar kl. 20:00 og sunddeildarinnar kl. 21:00. Lesa meira
 
Ármann Smári

Ármann Smári með brjósklos - 07.02.2008 Sindra fréttir

Ármann Smári Björnsson, leikmaður norska meistaraliðsins Brann í Noregi, var á mánudag sendur með hraði frá æfingabúðum liðsins á La Manga á Spáni til Bergen. Í frétt á mbl.is segir að Ármann hafði fundið fyrir verkjum í fæti en við nánari athugun var hann sendur með flýti til Noregs og fór hann í aðgerð í gær. Íslenski landsliðsmaðurinn hafði fundið fyrir verkjum í öðrum fætinum og læknir norska liðsins vildi ekki taka neina áhættu og sendi hann Ármann til Noregs til frekari rannsókna. Við nánari athugun kom í ljós að Ármann var með brjósklos í baki. Ola Jøsendal læknir Brann segir í viðtali á heimasíðu félagsins að aðgerðin hafi heppnast vel. „Við höfum fylgst vel með ástandi Ármanns á undanförnum vikum og okkur grunaði að um brjósklos væri að ræða,“ sagði Jøsendal. Lesa meira
 
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

Mjög öflugur stuðningur Sveitarfélagsins við íþróttastarfið - 02.02.2008 Sindra fréttir

Umf. Sindri og Sveitarfélagið Hornafjörður hafa gert með sér nýjan samstarfssamning og var hann undirritaður 20.janúar. Byggir hann að nokkru leyti á eldri samningi en með nokkrum breytingum þó. Í þessum samningi sem gildir út árið 2010 er lagður grunnur að frekari eflingu þess æskulýðsstarfs sem umf. Sindri hefur staðið fyrir síðast liðin 75 ár. Með auknu fjármagni er umf. Sindra gert kleift að styðja enn frekar við eflingu jaðaríþrótta og er það eitt af markmiðum samningsins að fjölga þeim íþróttagreinum sem hægt sé að stunda í sveitarfélaginu. Einnig er kveðið á enn frekara forvarnarstarf á vegum félagsins og skal umf. Sindri taka mið af yngri flokka stefnu ÍSÍ og hvetja deildir sínar til að gerast fyrirmyndarfélag innan ÍSÍ sem ýtir undir foreldrastarf, menntun þjálfara, félagsstarf og samheldni. Lesa meira
 
USÚ úrvalshópur ungmenna

Jón Snorri, Fannar Blær og Sveinbjörg í úrvalshóp ungmenna - 28.01.2008 Sindra fréttir

Þrjú ungmenni í frjálsíþróttadeildum Sindra og Mána eru komin í svokallaðan úrvalshóp ungmenna hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Þetta er Jón Snorri Þorsteinsson, Fannar Blær Austar Egilsson og Sveinbjörg Zophoníasdóttir. Viðmið inn í úrvalshópinn eru sett af Íþrótta- og Afreksnefnd FRÍ (ÍÞA) og stýrir Fríða Rún Þórðardóttir unglingalandsliðsþjálfari þessum hóp en hún kom einmitt í heimsókn hingað með fyrirlestra fyrir foreldra og nemendur í grunnskólanum um daginn en hún er næringarfræðingur að mennt. Fríða Rún situr einnig í IÞA en sú nefnd ákvarðar m.a. hverjir fara í landsliðsferðir á vegum FRÍ, hvort heldur í fullorðins- eða unglingakeppnir. Lesa meira
 
Undirritun smnings við Sindra

Samningur við Sindra undirritaður - 21.01.2008 Fréttir

Í Pakkhúsinu í gær var undirritaður nýr þriggja ára samningur Sveitarfélagsins við UMF Sindra. Með því eykur Sveitarfélagið umtalsvert við stuðning sinn við félagið. Markmiðið er að fylgja sem best eftir mikilli uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í sveitarfélaginu. Samningurinn byggir á fyrri samningum sem þessir aðilar hafa gert sín á milli en hinn nýi leggur áherslu á að Sindri geti eflt enn frekar æskulýðsstarf á sínum vegum, þróað íþróttaviðburði, eflt jaðaríþróttir, tekið upp markvisst samstarf við önnur félög á svæðinu og að Sindri móti sér forvarnar- og lýðheilsustefnu og verði leiðandi í þeim málaflokki í sveitarfélaginu. Lesa meira
 
Sindra jól 2007

Sindra jól - 04.01.2008 Sindra fréttir

Mikið var um að vera hjá Sindra milli jóla og nýárs. Föstudaginn 28. desember var frjálsíþróttamót í íþróttahúsinu þar sem 34 einstaklingar kepptu í langstökki, hástökki, kúluvarpi og þrístökki. Margir náðu mjög góðum árangri en úrslit má sjá á vefsíðu frjálsíþróttasambandsins fri.is. Á laugardeginum var svo hin árlega firmakeppni Knd. Sindra haldin í íþróttahúsinu og mættu 5 kvenna lið og 8 karla lið. Það var lið Hornafjarðarbæjar sem sigraði í flokki karla, en lið Sparisjóðsins í kvennaflokki. Mótið var að þessu sinni tileinkað minningu kærs vinar og félaga knd. Sindra Jerry Dwayne Williams sem lést snemma á nýliðnu ári. Á sunnudeginum var svo fjölskyldudagur í íþróttahúsinu á vegum 3 flokka knd. Sindra en sá flokkur er að safna sér fyrir ferð til Noregs í sumar. Var íþróttahúsið fyllt af leiktækjum frá Hopp og var þátttakan fín þrátt fyrir að veðrið hafi verið mjög leiðinlegt. Á Gamlársdag var síðan síðasti viðburður Sindra á þessu ár þegar hið árlega víðavangshlaup Sindra og KHB fór fram. Mjög góð þátttaka var í hlaupinu og keppendur á öllum aldri létu veðrið ekkert á sig fá. Þrjár vegalengdir voru í boði 2,5 km., 5 km. og 10 km. og voru veitt verðlaun fyrir fyrsta sætið í öllum greinum karla og kvenna og þá fengu allir sem þátt tóku verðlaunapening. Lesa meira
 
Gamlárshlaup (úr myndasafni)

Gamlárshlaup Sindra og KHB - 27.12.2007 Sindra fréttir

Frjálsíþróttadeild Sindra og KHB standa fyrir Gamlárshlaupi á Gamlársdag eins og í fyrra . Hlaupið verður ræst frá Sundlaug Hafnar. Hlaupnir verða 2,5 km, 5 km og 10 km, en nú verður tekið upp sú nýbreytni að fyrst verður ræst 10 km klukkan 12.00, 5 km. 12.15 og klukkan 12.30 verður ræst í 2,5 km hlaupið. Þetta er alveg tilvalin tími til að hefja áramótaheitið um meiri hreyfingu. Að sögn Valdemars Einarssonar framkvæmdarstjóra Sindra þá hvetur hann alla sem geta til að mæta og taka þátt í hlaupinu og sé það góð byrjun á áramótaheiti um heilbrigt líferni og koma sér í gott form. Eins segir Valdemar að gaman væri að bæta aðsóknina frá því í fyrra en þá mættu rúmlega 40 manns. Lesa meira
 
Lokahóf 2007

Fjölmargar viðurkenningar voru veittar á lokahófinu - 26.10.2007 Sindra fréttir

Lokahóf meistaraflokka Sindra var haldið laugardaginn 13. október í Pakkhúsinu. Þar voru leikmenn meistaraflokka karla og kvenna samankomnir til þess að gera sér glaðan dag ásamt stjórnarmönnum. Sú hefð hefur skapast á undanförnum árum að bjóða heiðursgestum á þessa samkomu. Að þessu sinni voru heiðursgestir lokahófs knattspyrnudeildar Sindra hjónin Arna Harðardóttir og Þórhallur Einarsson. Þau hafa verið viðloðandi knattspyrnudeildina með einum eða öðrum hætti um árabil og ávallt verið tilbúin til þess að veita henni liðsinni sitt þegar þurft hefur á að halda. Það er ómetanlegt í félagsstarfi eins og þessu að geta leitað til fólks sem alltaf er tilbúið að leggja starfinu lið. Lesa meira
 
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

Uppskeruhátíð yngri flokka knd. Sindra - 29.09.2007 Sindra fréttir

Þriðjudaginn síðastliðinn var haldin á vegum knattspyrnudeildar Sindra uppskeruhátíð yngri flokka. Var farið í ýmsa skemmtilega leiki og boltaþrautir, síðan var miklu magni af skúffuköku og kakói gerð góð skil ásamt vænum skammti af rjóma. Allir þeir sem mættu fengu síðan gullmedalíu að launum fyrir góðan áhuga og árangur í sumar. Gríðarlega gaman var að sjá mætinguna á hátíðna bæði hjá þátttakendum og foreldrum. Í sumar var spiluð mikil knattspyrna á vegum yngri flokkanna en Sindri heldur úti 10 flokkum af báðum kynjum. Keppnisálag var mismikið eftir aldri þáttakanda en allir flokkar tóku þátt í einhverjum mótum, bæði Íslandsmóti og sérmótum svo sem Sparisjóðsmótinu í Borgarnesi, N1 mótinu á Akureyri og Reycup í Reykjavík. Mikið var ferðast með þessa flokka og til gamans má geta að þeir sem lengst fóru í Íslandsmóti í sumar spiluðu leik á Grundarfirði. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Mikið um að vera í fótboltanum um helgina - 24.08.2007 Sindra fréttir

Óhætt er að segja að mikið sé um að vera hjá knattspyrnudeild Sindra um helgina. Tveir leikir fara fram á Mánavelli um helgina auk þess sem 3. og 4. flokkur kvenna taka þátt í úrslitamótum sinna flokka í sínum Íslandsmótum. Úrslitakeppnin í 4. flokki kvenna fer fram á Sindravelli og er keppt bæði á laugardag og sunnudag. Fyrsti leikur hefst kl. 13:00 á laugardaginn. Auk Sindra taka þátt í úrslitunum; Leiknir Rvík., Fram, Magni og Tindastóll. 3. flokkur kvenna ferðast til Vestmannaeyja til þess að taka þátt í sinni úrslitakeppni. Þar etja stelpurnar kappi við lið sem einnig hafa unnið sér rétt til þess að keppa um Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki kvenna. Auk Sindra taka þátt í úrslitunum; ÍBV, KA, KS/Leiftur og Stjarnan. Vonandi gengur báðum flokkum vel um helgina og hvetjum við sem flesta til að mæta á Sindravöll um helgina og hvetja stelpurnar í 4. flokki til dáða á heimavelli. Lesa meira
 
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

3. flokkur karla Íslandsmeistarar - 23.08.2007 Sindra fréttir

Sunnudaginn 19. ágúst náði 3. flokkur karla hjá Sindra þeim frábæra árangri að verða Íslandsmeistari í keppni 7 manna liða í fótbolta. Strákarnir hafa spilað mjög vel í allt sumar og varla stigið feilspor. Þeir hafa spilað 10 leiki í sumar og unnið 9 leiki. Eitt jafntefli hafa þeir gert og enduðu mótið með 28 stig og markatöluna 36 – 15. Næsta lið á eftir þeim lauk keppni með 19 stig. Þannig að sigur strákanna í mótinu var sannarlega sannfærandi og öruggur. Í flestum tilvikum voru sigrarnir hjá strákunum mjög öruggir og sannfærandi þannig að sigur þeirra í mótinu var í raun aldrei í hættu. Eina jafnteflið sem þeir gerðu var á útivelli á móti Skallagrími frá Borgarnesi. Lesa meira
 
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

4. flokkur karla fékk afhent háttvísiverðlaun á Rey-cup - 02.08.2007 Sindra fréttir

4. flokkur karla í knattspyrnu hjá Sindra hélt síðast liðin miðvikudag á mót í Laugardalnum sem nefnist Rey cup. Þetta er alþjóðlegt mót sem Þróttur Reykjavík heldur ár hvert. Þarna koma saman krakkar á aldrinum 13 - 16 ára bæði strákar og stelpur . Í ár voru þátttakendur um 1000 talsins, við hjá Sindra sendum eitt lið til keppni og voru það strákar í 4. flokki 15 strákar allir á eldra ári þ.e.a.s. 14 ára .Við skráðum okkur í keppni A- liða og var árangurinn góður 2 sigrar 3 töp og 1 jafntefli sem skilaði okkur í 8 sæti af 12 A-liðum . Það voru alls 30 lið sem skráðu sig í 4. flokk karla í A, B og C liðum. Strákarnir stóðu sig vel jafnt innan vallar sem utan og fékk liðið afhent háttvísi verðlaun í 4. flokki karla á mótsslitunum og var það forseti Knattspyrnusambands Evrópu, Michel Platini sem veitti verðlaunin. Háttvísiverðlaunin eru veitt eftir fyrirfram ákveðnum reglum þar sem bæði er tekið tillit til framkomu utan og innan vallar. Lesa meira
 
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065

Þjálfaraskipti hjá meistaraflokki karla - 25.07.2007 Sindra fréttir

Mánudaginn 23. júli síðastliðinn urðu þjálfaraskipti hjá meistaraflokki karla í Sindra. Árni Rúnar Þorvaldsson sem hefur verið þjálfari liðsins í ár sagði starfi sínu lausu og við tekur Gunnar Ingi Valgeirsson tímabundið þar til fundin hefur verið framtíðarlausn í þjálfaramálum liðsins. Gunnar Ingi er margreyndur leikmaður og hefur spilað yfir 300 leiki í Íslandsmótinu fyrir Sindramenn. Sindri Ragnarsson, leikmaður Sindra, mun halda áfram starfi sínu sem aðstoðarþjálfari liðsins og saman munu þeir félagar stýra liðinu gegn ÍR-ingum næstkomandi föstudag á heimavelli. |nl|Aðstpurður sagðist Árni hafa tekið þessa ákvörðun að vel athuguðu máli og taldi þessa lausn vera skynsamlegasta fyrir liðið. Árni sagði að árangurinn undir hans stjórn hefði ekki verið ásættanlegur en steininn hefði tekið úr í síðasta leik á móti Selfossi þar sem liðið var algjörlega andlaust. Lesa meira
 
Frjálsar á nýjum velli

Fyrstu æfingar hófust í dag í frjálsum á nýja tartanvellinum - 17.07.2007 Sindra fréttir

Í dag hófust æfingar í frjálsum íþróttum á nýja tartanvellinum hér á Höfn. Það var að vonum ánægður hópur sem spreytti sig á hlaupabrautunum sem eru að þeirra sögn alveg frábærar. Það sem af er sumri hafa æfingar í frjálsum að mestu farið fram inn við Mánagarð en nú hafa þær verið færðar út á Höfn enda eðlilegt að nýta þessa frábæru aðstöðu. Verið er að ljúka við frágang í kringum völlinn og einnig er unnið að kringlu- og kúluhringjunum en að öðru leyti er völlurinn tilbúinn fyrir frjálsar. Nú styttist óðum í unglingalandsmótið og um að gera fyrir þá sem enn hafa ekki hrist rykið af íþróttaskónum að gera það og drífa sig á æfingar. Lesa meira
 
UMFÍ

Stóðu í eldlínunni á Landsmótinu í Kópavogi um síðustu helgi - 11.07.2007 Sindra fréttir

Þau, Sveinbjörg Zophoníasdóttir, Fannar Blær Egilsson, Haukur Margeir og Guðrún Ingólfsdóttir stóðu í eldlínunni á risa Landsmótinu í Kópavogi um helgina. Sveinbjörg stóð sig mjög vel hún setti 2 Úlfljótsmet, í spjótkasti þar sem hún bætti 25 ára gamalt met sem var 34.24 í 36.54 og í langstökki meyja þar sem gamla metið var 5.18 í 5.25 síðan hlaut hún silfur í þrístökki með stökk upp á 10.85 sem er næslengsta stökk á Íslandi í sumar hjá konunum. Fannar tók þátt í 5000 m hlaupi á tímanum 16.57.11 sem er Úlfljótsmet í hans flokki hann var lang yngstur keppandinn og gaf þessi tími honum þátttöku í úrvalshóp unglinga á Íslandi eins og Sveinbjörg gerði í þeim greinum sem hún tók þátt í. Íslandsmethafin Guðrún Ingólfsdóttir tók einnig þátt í kringlukast hún varð í öðru sæti, verður það að kallast gott af 50 ára keppanda að komast svo hátt á verðlaunapall á aðal Landsmóti. Lesa meira
 
Heimsókn til Sindra

Landsliðskonur í heimsókn til Sindra - 11.07.2007 Sindra fréttir

Mánudaginn 9. júlí fengu stelpurnar í 2. 3. og 4. flokki Sindra landsliðskonuna Margréti Láru Viðarsdóttir í heimsókn ásamt aðstaðarmanni hennar Guðnýju Björk Óðinsdóttur. Margrét Lára er eins og flestir vita ein fremsta fótboltakona sem Ísland hefur alið og Guðný ein af þessum nýju stelpum sem klæðist landsliðspeysunni góðu. Heimsóknin hófst með fyrirlestri í Nýheimum þar sem Margrét talaði til stelpnanna um eigin reynslu og hvernig mætti endalaust bæta sig og hvað þyrfti til að verða afreksmaður í íþróttum og ekki síður hvaða möguleikar liggja í kvennaknattspyrnunni bæði heima og erlendis. Fyrirlesturinn stóð í 80 mínútur og náði Margrét vel að fanga athygli stúlknanna sem voru afar ánægðar með þetta. Eftir þetta var haldið út á æfingarsvæði þar sem þær stöllur Margrét og Guðný stjórnuðu æfingu með hópnum og farið var í keppni þar sem flott verðlaun voru í boði. Lesa meira
 
Sundnaámskeið Sindra

Sumarstarf Sindra komið í fullan gang - 07.06.2007 Sindra fréttir

Nú þegar skólarnir eru komnir í sumarfrí eykst starfið hjá Ungmennafélaginu Sindra til muna. |nl|Í byrjun vikunnar hófust m.a. sundnámskeið hjá sunddeildinni þar sem Hulda Laxdal Hauksdóttir stjórnar og Ævintýra og leikjanámskeið hjá knattspyrnudeildinni þar sem Sindri Ragnarsson ræður ríkjum. Örfá pláss eru enn laus á þessi námskeið. Þá verða fótboltaæfingar verða 4 sinnum í viku hjá öllum flokkum. Frjálsar íþróttir verða með æfingar fyrir yngstu krakkana á Sindravöllum, en þau eldri verða á Mánavelli a.m.k. til að byrja með. Þá ótaldar æfingar hjá sunddeildinni. Lesa meira
 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir

Sveinbjörg sigraði með nýju USÚ meti á Íslandsmeistaramóti - 29.05.2007 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti um helgina á Íslandsmeistaramóti í fjölþrautum sem fram fór á Laugardalsvelli. Hún keppti í sjöþraut meyja og sigraði hana með nýju USÚ meti hlaut 3785 stig. Jafnframt setti hún USÚ met í kúluvarpi í sínum flokki varpaði kúlunni 11.61 m og jafnaði USÚ metið í hástökki stökk 1,58 m. Sveinbjörg var í hörku stuði bætti persónulegan árangur sinn í 6 greinum af 7. Nú eru að hefjast úti æfinga hjá frjálsíþróttafólkinu og verða þær á Mánavelli þar til Sindravöllurinn verður tilbúinn. Og verða þeir sem æfa að koma sjálfir á völlinn og biðjum við foreldra að taka tillit til þess að koma krökkunum á völlinn. Þess má geta að Hornfirðingurinn Bjarni Malmquist Jónsson sem nú keppir fyrir Fjölni, hafnaði í 3ja sæti í tugþraut karla á sama móti. Lesa meira
 
Dómaranámskeið

Dómaranámskeið í frjálsum íþróttum - 17.05.2007 Sindra fréttir

Eins og bæjarbúar hafa orðið varir við standa yfir miklar framkvæmdir á íþróttavellinum. Nú er verið að þökuleggja hann og óðum styttist í að gerviefni verði lagt á hlaupabrautir og stökksvæði. Íþróttavöllurinn á að vera fullbúinn fyrir unglingalandsmótið en það þarf fólkið líka að vera bæði keppendur og starfsmenn. Því voru í dag fjórán áhugasamir einstaklingar um frjálar íþróttir á dómaranámskeiði og munu þeir leggja sitt af mörkum á landsmótinu sem og öðrum mótum. Lesa meira
 
5_flokkur 2005

Foreldrafundir knattspyrnudeildar Sindra - 05.05.2007 Sindra fréttir

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Sindra sem haldinn var i Nýheimum 29. mars síðastliðinn kynnti fráfarandi stjórn knattspyrnudeildarinnar hugmyndir sínar um stjórnarfyrirkomulag knattspyrnudeildarinnar. Hugmyndirnar snúast um það að stjórn knattspyrnudeildarinnar samanstandi af yngri flokka ráði og meistaraflokkaráði. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin þannig með sér verkum að í yngri flokka ráði sitja Gauti Árnason, Nökkvi Jóhannesson og Halldóra Guðmundsdóttir. Í meistaraflokkaráði sitja Gunnar Ingi Valgeirsson, Gunnar Þorláksson og Miralem Haseta. Vonandi verða þessar ráðstafanir til þess að efla enn það góða starf sem fram fer hjá knattspyrnudeildinni. Lesa meira
 
Bingóvinningar

Bingó í Nýheimum á laugardag - 03.05.2007 Sindra fréttir

Knattspyrnudeild Sindra heldur ætlar að halda Bingó í Nýheimum á laugardag. Að sögn Valdemars Einarssonar framkvæmdarstjóra UMF Sindra þá verða mjög veglegir vinningar á Bingóinu og því til mikils að vinna. Spilaðar verða 10 umferðir og verða heimilistæki í vinninga í öllum umferðunum. Hvert bingóspjald er selt á 700 krónur og vill Valdi hvetja fólk að koma á Bingóið, hafa gaman að og um leið styðja við bakið á Sindra, ekki spillir fyrir að geta jafnvel farið heim með góðan vinning. Miralem Haseta Sindramaður telur að þetta gæti orðið mánaðarlegur viðburður í Nýheimum ef þátttakan verður góð. Lesa meira
 
Tekist á í boltanum í sumar  (úr myndasafni)

Sindri spilaði fótboltaleik annan hvern dag á síðasta ári - 29.03.2007 Sindra fréttir

Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra verður haldinn í dag, fimmtudaginn 29. mars kl. 19:30 í Nýheimum. Þar verða hefðbundin aðalfundarstörf á dagskránni. Til umræðu verður skýrsla stjórnar, reikningar deildarinnar og kosið verður í stjórn deildarinnar. Það er ljóst þegar skýrsla stjórnar er lesin að starf deildarinnar er umfangsmikið. Til gamans má geta að lið á vegum knattspyrnudeildar Sindra taka þátt í knattspyrnuleikjum oftar en annan hvern dag á ársgrundvelli. Ef tímabilið maí til september er skoðað kemur í ljós að deildin tekur þátt í meira en einum leik á dag. Þetta er mikil vinna fyrir knattspyrnudeild eins og Sindra. Deildin sem rekin hefur verið með hagnaði undanfarin ár er rekin með halla í ár. Það er alvarlegt mál enda þekkir knattspyrnudeild Sindra það vel að illa getur farið ef hallareksturinn verður viðvarandi. Það er eitthvað sem við verðum að reyna að koma í veg fyrir. Lesa meira
 
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065

Fínt gengi hjá ungum (fyrrverandi) Sindramönnum í knattspyrnu - 22.03.2007 Sindra fréttir

Frans Elvarsson leikur nú með Íslenska landsliðinu skipuðum leikmönnum 17 ára og yngri á Portúgal. Hefur hann verið í byrjunarliðinnu fyrstu 2 leikina. Frans hefur stundað knattspyrnu með Sindra frá unga aldri og er gríðarlegt efni þar á ferðinni. Frans gekk til liðs við lið Njarðvíkur nú í haust og stundar jafnframt nám í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Njarðvíkingar leika í 1. deild í sumar. Spennandi verður að fylgjast með frammistöðu Frans í sumar. Gísli Freyr Brynjarsson hefur verið að taka sín fyrstu spor fyrir meistaraflokk ÍA í vor og gengið þokkalega. Gísli flutti á Akranes ásamt foreldrum sínum fyrir tæpum 2 árum. Hann hefur æft með Skagamönnum síðan þá og líkar vel við sig á Skaganum. Þar er ekki ónýtt fyrir fótboltaáhugamann að flytja upp á Skipaskaga þar sem lífið gengur út á fótbolta. Lesa meira
 
74. þing USÚ haldið í Mánagarði

74. þing USÚ haldið í Mánagarði - 15.03.2007 Sindra fréttir

Þing USÚ var haldið í Mánagarði laugardaginn 10. mars. Þingfulltrúar voru rúmlega 30 og fjöldi gesta var mættur enda viðburðarríkt ár í héraðinu. Meðal gesta voru Björn B. Jónsson formaður UMFÍ, Helga Guðjónsdóttir varaformaður UMFÍ, Sigríður Jónsdóttir úr stjórn ÍSÍ og Erlendur Kristjánsson frá menntamálaráðuneytinu. Það voru ekki mörg mál sem lágur fyrir þinginu en Akstursíþróttaklúbbur Austur- Skaftafellssýslu fékk aðild að USÚ. Enda ætla meðlimir klúbbsins að sjá um mótorcrosskeppni á unglingalandsmótinu í sumar. |nl|Ýmsar kynningar voru, Ragnhildur Einarsdóttir var með skýrslu um stöðu mála í undirbúningi unglingalandsmótsins, Friðrik Ingvaldsson var með erindi um stöðu mála í uppbyggingu á íþróttamannvirkjum, Björn Jónsson kynnti Risalandsmótið sem verður í Kópavogi helgina 6.-8. júlí og svo var Guðrún Snorradóttir með kynningu á verkefninu Flott án fíknar sem er á vegum UMFÍ. Lesa meira
 
Mars_2007_035

Fleiri USÚ met falla - 08.03.2007 Sindra fréttir

Um helgina fóru 9 ungir keppendur frá USÚ á Meistaramót Íslands 12-14 ára í Reykjavík. Þau stóðu sig alveg með sóma eins og ávallt. 6 USÚ met voru sett og tvenn bronsverðlaun unnust og margir komust á meðal átta efstu þar sem voru um og yfir 50 keppendur. Þessi árangur segir okkur að mikil gróska er í frjálsum íþróttum á Hornafirði núna og er greinilegt að unga fólkið ætlar að koma vel undirbúið á Unglingalandsmótið í sumar sem haldið verður á Sindravöllum. Atli Dagur Eyjólfsson var í miklu stuði og setti USÚ met í 11-12 ára flokki í 800 m hlaupi á 2,41,03 sek. og hlaut brons. Hann setti líka USÚ met í 60 m hlaupi á 9,13 sek. og var í 8. sæti af 55 keppendum og síðan setti hann USÚ met í langstökki og stökk 4.11 m og var í 6. sæti af 50 keppendum. Lesa meira
 
Meistaraflokkur kvenna 2004

Frábær árangur hjá 2. flokki kvenna - 24.02.2007 Sindra fréttir

2. flokkur kvenna í knattspyrnu keppti í úrslitum í Íslandsmótsins innanhúss á dögunum. Skemmst er frá því að segja að stelpurnar náðu frábærum árangri á mótinu og lentu í 5. sæti. Þær börðust af krafti og sýndu oft á tíðum skemmtilega takta sem gefur góð fyrirheit fyrir mót sumarsins í meistaraflokki kvenna. Fyrsti leikurinn hjá stelpunum var gegn KR og voru okkar stelpur heldur feimnar við þær og töpuðu leiknum 0- 4. Næst spiluðu þær við Þrótt Reykjavík og vannst sá leikur 4 – 0. Síðasti leikurinn í riðlinum var við stórveldið úr kvennaboltanum, Breiðablik og tapaðist sá leikur 5- 2. Næst var spilað um sæti og spiluðum við um 5. sætið. Í leiknum um 5. sætið mættu stelpurnar Tindastól frá Sauðárkróki og unnu okkar stelpur leikinn 4 – 1 og 5. sætið var okkar. Lesa meira
 
Frjálsar_022007

Sveinbjörg og Bjarni á Meistaramót Íslands í fjölþraut - 21.02.2007 Sindra fréttir

Sveinbjörg Zophoníasdóttir stóð sig mjög vel á meistaramóti Íslands í fjölþraut, þar setti hún USÚ met í 60 metra grind með tímann 10.15 sek. Gamla metið var 11.22 sek. Þá bætti Sveinbjörg metið í langstökki úr 4,70 m í 4,89 m. USÚ metið í 800 m hlaupi lá líka þegar hún hljóp á 2.48.37 sek. Að lokum setti Sveinbjörg USÚ met í 5. þraut með 2920 stig og varð í 2. sæti í flokki meyja. Bjarni Malmquist varð í 3 sæti í 7 þrautinni hjá köllunum, en hann keppir nú fyrir Fjölni. Þau stóðu sig mjög vel bæði og það var gaman að vera Hornfirðingur í Höllinni um helgina þar sem þau frændsystkinin öttu kappi við allt besta frjálsíþrótta fólk landsins. Lesa meira
 
Undirritun samnings við Landsbankann

Landsbankinn verður einn aðalstyrktaraðili Umf. Sindra - 14.02.2007 Sindra fréttir

Landsbanki Íslands og Ungmennafélagið Sindri hafa gert með sér samning sem gildir til þriggja ára og voru það Jóna Ingólfsdóttir f.h. Landsbankans, Valdimar Einarsson og Magnús Jónasson f.h. Sindra sem undirrituðu samninginn í Landsbankanum á Höfn í dag. Með samningnum verður Landsbankinn einn aðalstyrktaraðili félagsins. Markmið Landsbankans, er að styðja Sindra í íþróttalegu og uppeldislegu hlutverki sínu á Hornafirði. Fyrirtækjabanki Landsbankans lætur Sindra í té fyrirtækjabanka Landsbankans, endurgjaldslaust á samningstímanum ásamt 50% afslætti af innheimtuþjónustu. Landsbankinn ætlar að greiða eina milljón ár hvert til Sindra Umf. Sindri lætur Landsbankann í té fjögur auglýsingaskilti á Sindravöllum, innaná útveggi sundlaugar Hafnar og stórt skilti á Vatnstanki sem nú þegar er til staðar. Lesa meira
 
Æfingarhelgi með þjálfara úr Gerplu

Yfirþjálfari í Gerplu með æfingarhelgi hjá fimleikadeild - 02.02.2007 Sindra fréttir

Fimleikadeild Sindra fékk góða heimsókn helgina 26.-28. janúar þá kom kona að nafni Auður Inga Þorsteinsdóttir, hún er yfirþjálfari í Gerplu. Hún kom og kenndi okkur trompfimleika, sem er liðaíþrótt. Yfirleitt hefur fimleikadeild Sindra keppt sem einstaklingar en nú er ætlunin að prófa eitthvað nýtt og hafa lið, þ.e.a.s fyrir áramót er keppt í einstaklingskeppni og eftir áramót í liðakeppni. Auður kom hingað til þess að koma okkur á stað í þessari nýjung og kenna okkur helstu atriðin. Hóparnir sem tóku þátt í æfingunum voru 4 bekkur – 6 bekkur og 7 bekkur og upp úr. Æfingarnar byrjuðu á föstudeginum, en mest var æft á laugardeginum og svo á sunnudeginum var létt æfing og pizzuveisla á hótelinu. Krakkarnir og þjálfararnir lærðu mikið á þessum tíma, þó stuttur hefði verið, en þetta voru mjög góðar æfingar og það verður mun léttara að fyrir þjálfara vinna núna eftir þessar æfingar. Lesa meira
 
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum

Úlfljótsmetaregn á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum - 02.02.2007 Sindra fréttir

Frjálsíþróttadeildir Sindra og Mána mættu með fríðan hóp á meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15- 22 ára um síðustu helgi. Þau stóðu sig mjög vel. Það var sannkallað Úlfljótsmetaregn hjá þeim enda aðstaðan í nýju frjálsíþróttahöllinni alveg hreint frábær. Sveinbjörg Zophoníasdóttir var alveg í bananastuði hún setti Úlfljótsmet met í 6 greinum í 60 grind á 11.22 eldra metið var 11.41, í 60 m hlaupi á 8.53 eldra met var 8.72, í Kúluvarpi 11.34 eldra met 11.15, í þrístökki 10,52 það er 45 cm betra en gildandi úti met. Sveinbjörg lenti í 3. sæti með þennan árangur á mótinu. Í hástökki 1.56 eldra metið var 1.53. Sveit USÚ setti Úlfljótsmet í 4x200 metra hlaupi á tímanum 1.06.19 sek en sveitina skipuðu þær Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, Guðlaug Margrét Björnsdóttir, Þórunn Jakobína Sigurðardóttir og Sveinbjörg Zophoníasdóttir. Lesa meira
 
Fernusöfnun Sindra

Sent til Svíþjóðar til endurvinnslu - 18.01.2007 Sindra fréttir

Fernusöfnun Sindra hefur nú staðið yfir um nokkurt skeið og tekist mjög vel. Nú er komið svo mikið af fernum og pappa að það fer að verða komið nægilegt magn til að fara að senda það frá Höfn. Margir hafa velt því fyrir sér hvað verði um pappann sem sendur er frá Höfn, en að sögn Valdemars Einarssonar framkvæmdarstjóra Sindra þá er pappinn fluttur héðan til Reykjavíkur þar sem að hann er settur í gám ásamt pappanum sem safnast hjá Sorpu og er síðan sendur til Svíþjóðar til endurvinnslu. Pappír og pappa má endurvinna allt að 7 sinnum. Þessi flokkur af pappa er mjög verðmætur og fær Sindri greitt 35 krónur fyrir hvert kíló sem safnast hér í sveitarfélaginu. Úr pappanum er búin til kartonpappír sem notaður er aftur í umbúðir og m.a. til prentunar. Talið er að árlega falli til 55 tonn af þessari vöru bara hér í sveitarfélaginu Hornafirði. Lesa meira
 
Gamlárshlaup (úr myndasafni)

Góð mæting í Gamlárshlaup Sindra og K.H.B. - 04.01.2007 Sindra fréttir

Gamlárshlaup Sindra var haldið eins og nafnið gefur til kynna á Gamlársdag og í blíðskaparveðri. Hlaupið er á vegum Sindra og K.H.B. Hlaupnir voru 2,5km og 10km og voru hlaupara á öllum aldri en alls mættu 43 til keppni.og dæmi var um að heil fjölskylda mætti og tók þátt. Lagt var af stað frá sundlauginni og þau sem hlupu 2 km sneru við tjaldstæði og voru 26 sem fóru þessa vegalend og var Hrafn Logi Hermannsson fyrstur drengja á tímanum 9.00 mín. sléttum, fyrst stúlkna var Siggerður Aðalsteinsdóttir með tímann 9.47 mín. 10 hlauparar fóru 5 km og kom Júlían Austar Egilsson fyrstur í mark á tímanum 24.04 mín. og Sveinbjörg Zophoníasdóttir fyrst kvenna á tímanum 27.06 mín. Lesa meira
 
Sindri_Hlaup_PICT5247

Gamlárshlaup Sindra og K.H.B. - 27.12.2006 Sindra fréttir

Á Gamlársdag stendur Frjálsíþróttadeild Sindra fyrir Gamlárshlaupi Sindra og K.H.B. Þær vegalengdir sem hægt verður að velja á milli að hlaupa eru 2 km., 5 km., og 10 km. Keppt verður í karla- og kvennahlaupi. Mæting verður við Sundlaugina og fer þar einnig fram skráning. Ekkert skráningargjald er í þetta hlaup og vonast frjálsíþróttadeildin eftir að sjá sem flestra og á öllum aldri. Það er ætlum okkar hjá deildinni að gera þetta að árlegum viðburði. K.H.B. styrkir deildina að þessu sinni með því að gefa verðlaun, en allir sem hlaupa fá pening um hálsinn og þá verður einnig bikarar fyrir fyrstu sætin í hverri vegarlengd fyrir sig fyrir bæði kynin. Lesa meira
 
Jólakort Fimleikadeildar Sindra

Jólakort til styrktar Fimleikadeildar Sindra - 01.12.2006 Sindra fréttir

Eins og fram hefur komið stendur Fimleikadeild Sindra á tímamótum, en 20 ár eru síðan hún var stofnuð. Í haust var ákveðið að á þessum tímamótum að þau tæki deildarinnar sem eru orðin slitin og úrelt yrðu endurnýjuð og eru nauðsinleg til að hægt sé að stunda fimleika hér í Sveitarfélaginu. Pantað var nýtt fibergólf og stökkhest sem deildin hefur þegar fengið. Til þess að greiða fyrir þessi tæki hefur Fimleikadeildin verið með ýmsar fjáraflanir í gangi, svo sem fernusöfnun og ruslatínslu. Nú fyrir jólin verða seld jólakort þar sem ágóðinn mun renna beint í þetta verkefni. Jólakortin eru heimatilbúin því að þau eru teiknuð af krökkunum sjálfum í fimleikadeildinni og prentuð hjá BBprentun á endurunnin pappír. 10 kort eru í pakka og kosta 1000 krónur en 5 í pakka kosta 600 krónur. |nl| Lesa meira
 
Sindri karfa

Sindri mætir lið Vals á sunnudag í Bikarkeppni KKÍ - 24.11.2006 Sindra fréttir

Nú um helgina nánar tiltekið á sunnudag kl 15.00 í Íþróttahúsinu á Höfn mætir Sindri lið Vals í Bikarkeppni KKÍ. Sindri hefur ekki tapað leik í deildin en Valur er einn deild ofar og eru sem stendur í öðru sæti í 1. deild hafa tapaði einu leik og unnið tvö. Það verður því fróðlegt að sjá hvort drengirnir í Sindra geti strítt þeim eitthvað og er þetta líka fínn leikur til að sjá hvort við höfum eitthvert erindi í 1. deild! Í liði Vals eru 2 eða 3 útlendingar og því er alveg ljóst að róðurinn verður erfiður en jafnframt frábær áskorun. Mætum í íþróttahúsið og hvetjum strákana til sigurs því að góður stuðningur virkar ávalt sem aukamaður! Lesa meira
 
Húllumbæ á Hornafirði

HúllumHæ um Hornafjörð lokið - 24.11.2006 Sindra fréttir

Opinni íþróttaviku sem nefndist HúllumHæ um Hornafjörð lauk á sunnudaginn. Þetta var samstarfsverkefni Umf.Sindra, USÚ og sveitarfélagsins. Tilgangur vikunnar var að vekja athygli á því sem um er að vera á íþróttasviðinu með ýmsum hætti. Boðið upp á heimsóknir í íþróttatíma, að taka þátt í gönguferðum og kynna sér Robe-Joga og stafagöngu, einnig kynnti Sporthöllin starfsemi sína. Unglingarnir í Þrykkjunni buðu upp á kaffi, kakó og súpu og sýndu myndina um Jón Pál. Nemendur Tónskólans fluttu tónlist í Miðbæ. Bæjarbúar sýndu þessu framtaki fremur lítinn áhuga. Þokkaleg aðsókn var þó í einstaka tíma en það var einungis fimleikasýningin á laugardeginum sem fékk góða aðsókn. Utanhúss var boðið uppá göngutúra með eldri borgurum, göngu á Ægisíðu fyrir hunda og eigendur þeirra, rölt var upp Almanaskarðið, og víðavangshlaup var á vegum USÚ þar sem hlaupnir voru 2, 5 og 10 km. Lesa meira
 
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

Húllum hæ um Hornafjörð - 14.11.2006 Sindra fréttir

Opna íþróttavikan fór rólega af stað í gær. Örfáir mættu til að taka þátt á æfingum hjá krökkunum og enginn lét sjá sig í kynningu á stafagöngu hjá Matthildi. Einhverir mættum í kynningu á Robe – Jóga. Það er von þeirra sem standa að þessari viku að betri mæting verði í dag og næstu daga og að fólk verið ekki feimið við að láta sjá sig. Það sem er í boði í dag er: Í Mánagarði kl. 14.00- 14.45 Opið hús hjá 6-7 ára krökkum í bolta tíma með orkuboltunum Arnari og Skúla endilega látið sjá ykkur sérstaklega foreldrar 14.30 – 20.30 Opið hús í Íþróttahúsinu knattspyrnutímar kynnið ykkur hvaða aldurshópar og mætið endilega með krökkunum. 22.00 – 23.00 Opið hús Körubolti kvenna 13 ára+ komið og takið þátt Lesa meira
 
Sindri karfa

Flott stemning í íþróttahúsinu - 10.11.2006 Sindra fréttir

Sindri mætti toppliði UMFH síðastliðin föstudag í öðrum leiki sínum í 2. deildinni. Gestirnir sem komu frá Flúðum byrjuðu af krafti og komust í 7-0 og 9-2 leist áhorfendum ekkert á þessa byrjun. En þá hrukkum okkar menn í gang og með góðum stuðningi af pöllunum og trumbuslætti náðu Sindri að jafna og staðan eftir fyrsta leikhluta 22-22. Miklu minna var skorað í næsta leikhluta og varnarleikur beggja liða varð öflugri en staðan í hálfleik 35-32 heimamönnum í vil. Þriðji leikhluti var svo eign Sindramanna sem spiluðu gríðarlega góða vörn og lögðu grunn af fínum sigri, en staðan fyrir fjórða leikhluta var 61 – 49. Í fjórði hlutanum reyndu gestirnir allt hvað þeir gátu til að jafna, en þeir hafa nokkuð góðar skyttur innan síns liðs. Lesa meira
 
Karfa Sindri Laugarvatn

Sigur gegn Laugarvatni - 01.11.2006 Sindra fréttir

Það var fín stemning í íþróttahúsinu á föstudagskvöld þegar 2 deildar lið Sindra í körfuknattleik mætti liði Laugvetninga. Eftir fína byrjun þá komust gestirnir yfir og leiddu eftir fyrstu lotu 18-16 og í hálfleik voru þeir enn yfir 36 – 33. Í seinni hálfleik mættu okkar menn mun ákveðnari til leiks og jöfnuðu fljótlega leikin og voru yfir þegar 3. leikhluta lauk 54 – 49. Ekki tókst gestunum að komast aftur inn í leikin og lauk honum með sigri okkar manna 70 – 60. Þetta er kærkominn viðbót við Íþróttaflórunna. Liðið: Arnar Guðjónsson, Hlynur Pálmason, Ottó Marvin Gunnarsson, Guðni Rúnar Jónsson, Hilmar Guðjónsson, Kristján Rúnar Hauksson, Halldór Steinar Kristjánsson, Sævar Snorrason, Jakob Guðlaugsson, Skúli Ingibergur Þórarinsson, Vésteinn Fjölnisson og Hörður Unnsteinsson. Flest stig Skúli 27 og Hilmar 17 Lesa meira
 
Fernur eiga framhaldslíf

Söfnum og styðjum - fernur eiga sér framhaldslíf - 28.09.2006 Sindra fréttir

Þetta er heiti samstarfsverkefnis Sveitarfélagsins Hornfjarðar og Ungmennafélagsins Sindra. Verkefnið fellst í að safna umbúðarfernum og koma til endurvinnslu. Sveitarfélagið hefur staðið fyrir söfnum á fernum með grenndargámum, en það hefur ekki skilað ásættanlegum árangri. Því er hér um að ræða endurvakningu á þessu brýna verkefni og nú geta bæjarbúar stutt við bakið á íþróttahreyfingunni með sínu framtaki. Valdemar Einarsson framkvæmdarstjóri Sindra segir að með þessu verkefni sé verið að gera virkilega góða hluti, í því felst að Fimleikadeild Sindra fær greitt 35 kr. fyrir hvert kíló sem deildin nær að safna og koma til endurvinnslu. “Við bindum því miklar vonir við að heimili á Höfn taki sig á í umhverfismálum og styrki um leið gott málefni. Kveikjan að þessu máli er að Fimleikadeildin er að kaupa ný áhöld og þarf á töluverðu fjármagni að halda. Við leituðum til sveitarfélagsins með þessa hugmynd þar sem við vissum af því að þarna væri góður möguleiki á fjáröflun .” Valdemar segir jafnframt að verkefnið verði kynnt mjög vel á næstu dögum. Dreifibréfi verði dreift í heimili og söfnunin kynnt. Lesa meira
 
Fimleikadeild Sindra

Opið hús hjá Fimleikadeild Sindra - 14.09.2006 Sindra fréttir

Í tilefni af 125 ára afmæli FIG (Alþjóða fimleikasambandið) hefur FIG óskað eftir því að öll fimleikasambönd heimsins minnist tímamótanna með sérstökum fimleikadegi sem mun verða laugardaginn 16. september hér á Íslandi. Af þessu tilefni mun Fimleikadeild Sindra verða með "opið hús" á laugardaginn frá kl. 12:00 til 15:00. Nesjaskóli frá kl. 12:00-13:00, Hafnarskóli frá kl. 13:00-14:00, og Heppuskóli frá kl. 14:00-15:00. Þjálfarar og stjórn Fimleikadeildar Sindra vonast eftir að sjá sem flesta iðkendur mæta á æfingu og einnig gefst öllum tækifæri til að koma og prófa fimleika þó þeir séu ekki að æfa. Lesa meira
 
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

Knattspyrnuvertíðinni lokið – lokahóf yngri flokkanna - 12.09.2006 Sindra fréttir

Sunnudaginn 10. september hélt knattspyrnudeild Sindra lokahóf fyrir yngri flokkana sína. Það var haldið á Sindravöllum í blíðskaparveðri. Fjölmenni var mætt við upphaf uppskeruhátíðarinnar og var gaman að sjá hversu margir foreldrar voru mættir með börnum sínum til þess að gera sér glaðan dag. Eldri hóparnir skiptu í blönduð lið stráka og stelpna og spiluðu fótbolta af miklum eldmóð. Yngri flokkunum spiluðu fótbolta við foreldra sína og sýndu margir foreldrar glæsileg tilþrif á vellinum án þess þó að eiga roð í yngri kynslóðina. Krakkarnir fóru líka í vítaspyrnukeppni, knattspyrnuþrautir og í leiki með foreldrum undir handleiðslu Halldórs Steinars Kristjánssonar, íþróttakennara. Lesa meira
 
Sindragallar

Sindri bjargaði sér frá falli - 11.09.2006 Sindra fréttir

Síðasta laugardag spilaði meistaraflokkur karla við Aftureldingu úr Mosfellsbæ á Mánavelli. Þetta var hörkuleikur þar Sindramenn þurftu að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni. Með sigri á Mánavelli var vonin um það að halda sér upp til staðar en Sindramenn þurftu líka að treysta á það Seyðfirðingar töpuðu sínum leik á móti Njarðvík sem fram fór á Seyðisfirði á sama tíma. Ljóst var að spennustig leikmanna var hátt í upphafi leiksins. Sindri sótti undan sterkum vindi í fyrri hálfleik og réð gangi leiksins að mestu án þess að skapa sér umtalsverð marktækifæri. Jón Haukur átti þó eitt gott færi sem hann náði ekki að nýta sér. Í seinni hálfleik hélt baráttan áfram en þegar um 20 mín. voru eftir af leiknum var dæmt víti á Aftureldingu þegar Steinari var hrint þegar hann stökk upp til að skalla boltann í upplögðu færi. Seval tók vítið og brást ekki bogalistin frekar en fyrri daginn. Lesa meira
 
Sindri_4.flokkur kvenna 2006

Sindri Íslandsmeistari í 4. flokka kvenna - 28.08.2006 Sindra fréttir

Sindri varð í gær Íslandmeistari í 7 manna bolta í 4. flokki kvenna, en úrslitamótið fór fram á Grundafirði um helgina. Sindrastelpur byrjuðu á að leggja Víking Rvk. 4-2 og er það einhver albesti leikur sem þessar dömur hafa spilað þar sem lið Víkinga var mjög gott og endað til dæmis í öðru sæti á Símamóti Breiðabliks. Næst voru það stelpurnar í Tindstól sem lágu fyrir okkur 3-2 þar sem við vorum undir þegar tvær og hálf mínuta voru eftir, en Sindrastúlkur voru samt miklu betri allan tímann og sóttu stíft. Þessir leikir vorum spilaðir á laugardaginn í frábæru fótboltaveðri. |nl|Í gær var svo norðan strekkingur og byrjuðum við á að spila við heimasæturnar frá Grundafirði og unum við 4-1 í hörkuleik og áttum við þá bara eftir að mæta Leiftri/KS og mikill spenna var í loftinu. Sindrastelpur blésu hins vegar strax á alla spennu og settu mark á fyrstu mínutu og alls fjögur mörk í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik bættu þær svo við tveimur mörkum á móti strekkings vindi, 6-0 lokastaða og Íslandsmeistaratitill í höfn. Móttökur og aðstaða var til fyrirmyndar á Grundó og Sindri þakkar kærlega fyrir sig. Lesa meira
 
Tekist á í boltanum í sumar  (úr myndasafni)

4. flokkur kvenna Íslandsmeistari - 27.08.2006 Sindra fréttir

Stelpurnar í 4. flokki Sindra náðu þeim frábæra árangri í dag að verða Íslandsmeistarar í keppni 7 manna liða í fótbolta. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1997 sem Sindra eignast Íslandsmeistara í fótbolta. Úrslitakeppnin fór fram á Grundarfirði þannig að stelpurnar þurftu að ferðast langa leið til þess að klára dæmið. Þar kepptu þær fjóra leiki og skemmst er frá því að segja að Sindri vann alla sína leiki og enduðu úrslitakeppnina með markatöluna 17 – 5. Sannarlega glæsilegur árangur hjá stelpunum og greinilegt að þær eiga framtíðina fyrir sér á knattspyrnuvellinum. Á Grundarfirði var haft orð á því að Sindraliðið væri einstaklega vel spilandi knattspyrnulið þar sem liðsheildin væri í fyrirrúmi. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Grátlegur endir fyrir heimamenn - 11.08.2006 Sindra fréttir

Það voru kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar þegar Sindramenn tóku á móti sameinuðu liði KS/Leifturs á Mánavelli. Völlurinn rennisléttur, logn og úði. Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu og miðjuhnoði. Fátt var um færi og því gengu liðin til hálfleiks án þess að hafa skorað. Í þeim seinni byrjuðu Sindramenn á að pressa Norðlendinga. Áttu þeir meðal annars stangarskot sem og fleiri dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Á meðan lágu Norðanmenn til baka og freistuðu þess að beita skyndisóknum með Ragnar Hauksson sem sinn fremsta mann. Það var ekki fyrr en fimm mínútur voru til leiksloka að dró til tíðinda. Þá fengu Sindramenn aukaspyrna sem Seval Zahirovic tók. Hann þrykkti boltanum inn í teig beint á kollinn á Birni Pálssyni sem sneiddi boltann laglega í netið við mikinn fögnuð heimamanna. En eins og stundum áður var Adam ekki lengi í Paradís. Lesa meira
 
Sindrabuningar-LI_2006

Landsbankinn gefur 4.flokk karla hjá Sindra peysur og töskur - 21.07.2006 Sindra fréttir

Í næstu viku heldur 4. flokkur karla hjá Sindra á stórt mót í Noregi og munu þeir dvelja þar í 9 daga. Þetta eru 22 strákar ásamt 4 fararstjórum. Af tilefni utanlandsferðarinnar afhenti Jóna Ingólfsdóttir útibússtjóri Landsbankans á Höfn strákunum í gær peysur og töskur. Þetta er góð gjöf sem á eftir að nýtast strákunum vel. Við þökkum Landsbankanum fyrir þessa gjöf og um leið fyrir að styðja vel við bakið á unga fólkinu. Lesa meira
 
Sindri_volsungur_IMG_5065

Sindramenn mættu Völsungi á Húsavík - 18.07.2006 Sindra fréttir

Blíðskapaðarveðrið sem verið hefur á Norðurlandi í sumar lét með sanni sjá sig í leik Völsungs og Sindramanna í 2. deild karla á Húsavík á laugardaginn. Leikurinn var mjög jafn framan af og færin létu á sér standa. Fyrsta markið kom eftir um hálftíma leik þegar Guðmundur Óli Steingrímsson kom Völsungum yfir sem var í raun gegn gangi leiksins. Eftir ágætt spil þeirra komst Guðmundur hægra megin inn í vítateig Sindramanna gegn Matjaz Kastelic í markinu og lagði hann í fjærhornið. Ekki nema fimm mínútum síðar komust Völsungar í 2-0 þegar slöpp fyrirgjöf, sem virtist hættulaus, barst á fjærstöngina en þar var Einar Guðnason á tánum og skoraði framhjá Matjazi í markinu. Völsungar heldur betur búnir að refsa Sindramönnum fyrir andartaks sofandahátt. Sindramenn náðu hins vegar að laga stöðuna fyrir hlé. Þeir fengu þá hornspyrnu hægra megin og eftir mikinn barning í teig Völsungs kom Sindri Ragnarsson boltanum yfir línuna með marki sem verður seint talið með fallegri mörkum tímabilsins. Mark var þetta engu að síður og gaf það Sindramönnum von um betri árangur í seinni hálfleik. Lesa meira
 
6.flokkur_1

B-lið 6.flokks kvenna komið í úrslit - 10.07.2006 Sindra fréttir

Hnátumót KSÍ, austurlandsriðill var haldið þriðjudaginn 4.júlí. Mótið er fyrir 6.flokk stelpna og sendi Sindri A-lið, skipað stelpum á eldra ári og B-lið, skipað stelpum á yngra ári til keppni. Til að gera það mögulegt að senda bæði A og B lið og hafa einn skiptimann í hvoru liði komu þrjár stelpur úr 7.flokk með í ferðina og stóðu þær sig allar mjög vel. Upphaflega átti mótið að vera á Fáskrúðsfirði en þegar við mættum á staðinn var grenjandi rigning og rok og var því ákveðið að færa mótið til Egilsstaða, en þar var blíðskapar veður. Fjögur lið kepptu í flokki A-liða og sigraði Höttur en okkar stelpur enduðu í fjórða sæti þrátt fyrir vaska baráttu og eiga stelpurnar hrós skilið fyrir að láta aldrei deigan síga þó á móti blési. Þrjú lið kepptu í flokki B-liða og þar stóðu Sindrastúlkur uppi sem sigurvegara. Þær unnu fyrst Hött 6-1 og lögðu síðan sameiginlegt lið Austra, Leiknis og Vals 6-2. Lesa meira
 
Íþróttamaður USÚ ársins 2005

Íþróttamaður USÚ 2005 - 23.06.2006 Sindra fréttir

Á 17. júní veitti Ungmennasambandið Úlfljótur viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum. Átta einstaklingar voru tilnefndir til íþróttamanns ársins; Jóna Stína Bjarnadóttir, Andri Snær Þorsteinsson, Gunnar Auðunn Jóhannsson, Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Fanney Magnúsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Vésteinn Fjölnisson og Bjarni M. Jónsson. Hlutskarpastur varð Bjarni M. Jónsson, hann náði glæsilegum árangri í frjálsum íþróttum á síðasta ári á meðal annars besta árangur í 200 m hlaupi í sínum aldursflokki árið 2005. Lesa meira
 
Æfingar hjá sunddeild Sindra

Mikið um að vera í sunddeildinni - 19.06.2006 Sindra fréttir

Síðasta föstudag lauk þremur 10 daga sundnámskeiðum fyrir börn 5 og 6 ára á vegum sunddeildar Sindra. Hulda Laxdal sá um að leiða börnin í gegnum námskeiðin af alkunnri snilld og það voru ánægð börn sem luku námskeiðinu og eiga þau örugglega eftir að verða tíðir gestir í sundlauginni í sumar. Í dag hófust síðan sundæfingar fyrir 7 ára og eldri en vegna smæðar laugarinnar gátu þær ekki hafist á meðan á námskeiðunum stóð. 7 og 8 ára börn æfa á þriðjudags og fimmtudagsmorgnum en 9-12 ára börn á mánudags-, miðvikudags-, og föstudagsmorgnum. Báðir aldurshópar æfa kl. 9:00 og 10:00 og á skráninga sér stað á fyrstu æfingu. 12 ára og eldri æfa á mánudags-, miðvikudags,- og fimmtudagskvöldum kl. 20:00. Þjálfari hjá yngri hópunum er Sigurborg Jóna Björnsdóttir en Arnar Guðjónsson þjálfara elsta hópinn. Lesa meira
 
Sindragallar

Landbankinn styrkir knattspyrnudeild Sindra - 07.06.2006 Sindra fréttir

Eins og allir vita er rekstur allra deilda kostnaðarsamur og erfitt að halda starfinu gangandi ef ekki kæmu til sterkir styrktaraðilar. Þess er það þeim standa að málefnum íþrótta hér í bæ alltaf sérstakt ánægjuefni þegar stór og öflug fyrirtæki ákveða að styrkja starfið með myndarlegum hætti. Landsbanki Íslands styrkir einmitt knattspyrnudeild Sindra núna rausnarlega með kaupum á upphitunargöllum fyrir meistaraflokka karla og kvenna. Þeir gömlu voru algjörlega úr sér gengnir og því mikilvægt fyrir félagið að fá stuðning til þess að endurnýja gallana. Það hefur nú gengið eftir þannig að eftir er tekið. Yfirbragð og útlit knattspyrnufólks á Hornafirði hefur þess vegna stórbatnað sem skiptir gríðarlegu máli. Lesa meira
 
Kvennahlaup 2005

Stafganga í sumar - 07.06.2006 Sindra fréttir

Stefnt er að því að bjóða upp á tíma í stafgöngu í sumar. Leiðbeinandi verður Matthildur Ásmundardóttir, sjúkraþjálfari. Um skemmtilega og góða líkamsþjálfun er að ræða fyrir konur og karla. Boðið verður upp á átta tíma byrjendanámskeið í stafgöngu þar sem farið verður í tækni og grunnþjálfun í stafgöngu. Lögð er áhersla á rétta líkamsbeitingu, auk þess er makmiðið að auka þol, styrk og liðleika. |nl|Síðasta sumar var einnig boðið upp á stafgöngu og gekk það mjög vel. Þetta námskeið er nátengt verkefni Ólympíu ? og Íþróttasambands Íslands sem nefnist Ísland á iði. Verum því virk í sumar og bætum líkamlegt hreysti og þá líka andlega líðan. Lesa meira
 
Sindri - Ægir 20.8.2005

Stórtap gegn ÍR - 05.06.2006 Sindra fréttir

Sindramenn tóku á móti ÍR-ingum á mánudaginn á Sindravöllum. ÍR-ingar byrjuðu leikinn betur og þjörmuðu að marki Sindra í upphafi leiks. Ekki tókst þeim þó að skora og var leikurinn í járnum langt fram eftir hálfleiknum. Þegar um fimm mínútur voru til leikhlés fengu ÍR-ingar hins vegar aukaspyrnu. Traustur varnarmaður ÍR-inga, Ernest Essombe, tók spyrnuna. Hann þrumaði að markinu og beint í þvöguna í teignum. Boltinn hrökk af Sindramanni og í markið algjörlega óverjandi fyrir Daníel Karlsson í marki Sindra. Staðan því 0-1 í hálfleik. Lesa meira
 
Gestur við tölvuna góðu

Getraunastofa Sindra - 13 réttir - 02.06.2006 Sindra fréttir

Eins og flestum er kunnugt þá rekur Knd. Sindra öflugt getraunastarf. Getraunastarfið er mikilvægt fyrir starfið í Sindra vegna þess að það aflar knattspyrnudeildinni töluverða tekna og þess vegna gott þegar fólk ákveður að styðja við bakið á Sindra í gegnum getraunirnar. Tekjurnar sem skapast við rekstur tippstofunnar eru knattspyrnudeildinni og þar myndast frábær stemmning þegar tipparar eru að bera saman bækur sínar og sitt sýnist hverjum. Margir taka sér frí yfir sumarið en ekki allir sem betur fer. Einn frægur tippari hér á staðnum sem tippar reglulega og datt heldur betur í lukkupottin nú fyrir stuttu. Varð hann rúmum 500 þúsund krónum ríkari og óskar getraunaþjónusta Sindra honum hjartanlega til hamingju. Eins og sjá má þá er það stundum fleiri en Sindri sem græðir á getraunastarfseminni. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Leikurinn endaði 3-1 Sindramönnum í vil - 02.06.2006 Sindra fréttir

Talsverður strekkingur var á Sindravöllum í gær þegar Sindri tók á móti Hetti frá Egilsstöðum. Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og eftir um tíu mínútna leik komust Sindramenn yfir. Afmælisbarnið Óskar Guðjón Óskarsson fékk þá stungusendingu upp í hægra hornið, lagði boltann fyrir þar sem Björn Pálsson var réttur maður á réttum stað og setti boltann örugglega í netið. Eftir markið dró verulega úr skemmtanagildi leiksins og var miðjuhnoðið í fyrirrúmi. Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og staðan því 1-0 í hálfleik. Strax í upphafi þess síðari dró hins vegar til tíðinda þegar Sindramenn fengu vítaspyrnu. Björn Pálsson var felldur inn í teig Hattarmanna eftir laglegt spil heimamanna og fór Jón Haukur Haraldsson á punktinn. Hann skoraði úr spyrnunni og heimamenn komnir í vænlega 2-0 stöðu. Eftir markið drógu Sindramenn sig nokkuð til baka á meðan Höttur hélt boltanum ívið meira. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Sindri 2-2 Huginn - 29.05.2006 Sindra fréttir

Sindramenn fóru á Seyðisfjörð á kjördag og mættu liði Hugins í þriðju umferð annarrar deildar. Nýr markvörður stóð í markinu og heitir kappinn Daníel Karlsson og kemur frá Þrótti Reykjavík. Athygli vakti einnig að í fyrsta skipti í áratug var Sindraliðið eingöngu skipað íslenskum leikmönnum. Sindri komst yfir eftir um hálftíma leik þegar Jón Haukur Haraldsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Leikurinn var að því er virtist algjörlega í höndum Sindramanna og því kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Sveinbjörn Jónasson jafnaði leikinn við mikla kátínu mikils fjölda áhorfenda sem lét sjá sig á leiknum. Ekki voru árar lagðar í bát hjá Sindramönnum því skömmu fyrir leikhlé kom Halldór Steinar Kristjánsson þeim aftur yfir eftir frábært spil og fyrirfjöf Óskars Guðjóns Óskarssonar. Staðan 1-2 í hálfleik. Leikurinn var býsna rólegur eftir te og fátt um fína drætti. Sindramenn héldu sig frekar til baka og freistuðu þess að verja forskot sitt. Um miðbik seinni hálfleiks náði Friðjón Gunnlaugsson að jafna fyrir Huginsmenn með skoti rétt fyrir utan teig og má í raun segja að skotið hafi verið önnur þruma leiksins sem kom úr heiðskíra loftinu á Seyðisfirði. Lesa meira
 
Krakkarnir á sundæfingu

Sundnámskeið fyrir 5 og 6 ára börn - 27.05.2006 Sindra fréttir

Sunddeild Sindra ætlar að standa fyrir sundnámskeiði fyrir 5 og 6 ára börn og fer námskeiðið fram í Sundlaug Hafnar 2.– 16. júní n.k. Um er að ræða 10 skipti sem börnin mæta og stendur hver tími í eina klukkustund í senn alla virka daga kl. 9:00, 10:00 eða 11:00. Ætlast er til að foreldrar aðstoði börnin sín eftir þörfum fyrstu dagana en á staðnum verða aðstoðarmanneskjur sem geta tekið við þegar börnin hafa öðlast nægilegt öryggi. Mikilvægt er að skrá börnin hjá Huldu Laxdal í síma 478 2552 eða 864 4952 því fjöldi á hvert námskeið er takmarkaður. Lesa meira
 
Sindri _Volsungur 4-1

Tap gegn Reyni Sandgerði - 23.05.2006 Sindra fréttir

Kári settur heldur betur svip sinn á leik Sindra og Reynis á Hornafirði í dag. Reynismenn byrjuðu betur á móti vindi og sóttu hart að marki Sindramanna. Múrinn brast eftir um tuttugu mínútna leik með sjálfsmarki Sindramanna. Algjörlega óverjandi fyrir Nezir Ohran í markinu sem var að leika sinn síðasta leik fyrir Sindra. Eftir það var jafnræði með liðunum en þegar um tíu mínútur voru til leikhlés dró til tíðinda. Þá fengu Sindramenn vítaspyrnu þegar brotið var á Seval Zahirovic. Seval tók spyrnuna sjálfur og skoraði úr henni. Staðan 1-1 í hálfleik. Lesa meira
 
Sindri_volsungur_IMG_5065

Frábær byrjun á fótboltasumrinu á Hornafirði - 17.05.2006 Sindra fréttir

Sindri byrjaði með góðum sigri í sínum fyrsta leik í 2. deildinni á móti Völsungi frá Húsavík, en leikurinn fór fram á sunnudaginn síðastliðinn í bíðskaparveðri á Sindravöllum. |nl|Okkar menn byrjuð nokkuð vel og fékk Einar Smári ákjósanlegt færi á fyrstu mínutu, en lét verja frá sér. Eftir það komust Völsungar betur inn í leikinn en strax á 9. mínútu skoraði |nl|Halldór Steinar Kristjánsson fínt mark eftir hornspyrnu. Völsungurinn Guðmundur Óli Steingrímsson jafnaði úr vítaspyrnu en okkar maður í markinu var ekki langt frá því að verja. Undir lok hálfleiksins á Óskar Guðjón frábæra fyrirgjöf sem Einar Smári skallaði að marki en markmaður Völsungs varði vel. |nl| Lesa meira
 
Gestur Tippari að verki

Sindri Íslandsmeistari sölufélaga Getrauna - 17.05.2006 Sindra fréttir

Tíu söluhæstu getraunasalar á Íslandi hafa undanfarin tvö ár keppt í getraunum innbyrðis í fyrstu og annarri deild og voru það KR sem sigraði í fyrra en að þessu sinni voru það Sindramenn sem sigruðu eftir harða baráttu við KFS úr Vestmannaeyjum og hljóta þeir því titilinn Íslandsmeistari sölufélaga Getrauna. Að sögn Gests Halldórssonar það er ávalt mikil þátttaka í tippinu hjá Sindra og hittast menn í Sindrahúsinu á laugardögum en þar er opið alla laugardaga frá kl. 11-13. Enski boltinn er nú búinn og þá tekur við Sænski og Brasaboltinn við. Gestur segir að þetta sé skemmtileg viðbót sölumanna getrauna til að auka áhuga á getraunum og taka þátt í skemmtilegum leik. Lesa meira
 
Fimleikadeild Sindra

Austurlandsmót í fimleikum - 12.05.2006 Sindra fréttir

Laugardaginn 13. maí verður haldið Austurlandsmót í fimleikum í íþróttahúsinu á Höfn. Að þessu sinni koma keppendur frá þremur félögum; Sindra, Hetti og Neista. Fimleikafólki Sindra hefur gengið vel á þeim mótum sem sótt hafa verið í vetur en það sem iðkendur hafa tekið eftir á þeim mótum, er að áhöldin sem við höfum hér á Höfn eru sum hver að verða úr sér gengin. Það er á óskalista deildarinnar að geta í nánustu framtíð eignast fiberglass gólf og stökkborð. Gamla stökkgólfið er orðið all slitið og nýtt myndi minnka álag á liði í höndum og fótum. Stökkborð er hægt að stilla hærra en núverandi hestur, sem er og lágur fyrir einhver stökkin. Fimleikadeildin þarf á mörgum áhöldum að halda og eru þetta allt hlutir sem kosta sitt. Krakkarnir eru boðnir og búnir til að fara í fjáraflanir til að láta þennan draum verða að veruleika, og ætla til að mynda að vera með veitingasölu á mótinu um helgina. Kannski á líka eftir að sjást eitthvað til þeirra í sumar. Lesa meira
 
Sindri

Sindri ræður framkvæmdarstjóra - 04.05.2006 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri hefur ráðið Valdemar Einarsson sem framkvæmdarstjóra í fullt starf frá og með 15. maí. Valdemar er öllum hnútum kunnur innan Sindra eftir margra ára starf sem formaður knattspyrnudeildar og síðar gjaldkeri aðalstjórnar. |nl|Ráðning framkvæmdarstjórans hefur lengið verið í umræðunni og er nú loksins orðin að veruleika. Markmiðið með ráðningunni er að gera allt starf innan Ungmennafélagsins Sindra skilvirkara. Það er von aðalstjórnar að framkvæmdastjórinn komi til með að styrkja starf allra deilda innan Sindra. |nl| Lesa meira
 
Íslandsmeistarar í Blaki

Íslandsmeistarar í Blaki - 27.04.2006 Sindra fréttir

Um síðustu helgi fóru 19 galvaskir blakarar úr blakdeild Sindra á Akureyri ásamt þjálfurum og nokkrum foreldrum. Krakkarnir tóku þar þátt í seinni hluta Íslandsmótsins í krakkablaki og höfðu flest þeirra áður keppt á fyrrihluta mótsins sem haldinn var í Mosfellsbæ í haust. Mótið á Akureyri var það stærsta sem haldið hefur verið til þessa, en 67 lið voru skráð til leiks. Sindri sendi 4 lið, þrjú kepptu í 5. flokki d. liða og eitt 3. flokka lið keppti sem gestalið í 4. flokki. Vel var tekið á móti liðunum á Akureyri og var öll umgjörð mótsins til mikillar fyrirmyndar. Krakkarnir í Sindra stóðu sig frábærlega, spiluðu vel og komu íþróttamannslega fram í alla staði að hætti sannra Sindramanna. Á þessu móti eignaðist Sindri sína fyrstu íslandsmeistara í krakkablaki og hin liðin tvö voru í fjórða og fimmta sæti í átta liða riðli. Þetta er frábær árangur hjá liðum sem eru að taka þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti.Til hamingju krakkar! Eldri krakkarnir kepptu sem gestalið við sér aðeins yngri krakka og unnu fimm leiki og töpuðu einum. Lesa meira
 
5. og 6. flokkur kvenna

Safnkortshafar Esso hafa styrkt Sindra myndarlega! - 18.03.2006 Sindra fréttir

Safnkortshafar Esso stóðu vel við bakið á yngra flokka starfi hjá Knd. Sindra á árinu 2005. Á árinu 2004 gerðu Olíufélagið Esso og Knd. Sindra með sér samstarfssamning þar sem eldsneytiskaup Safnkortshafa Esso á póstnúmeri 780 og 781 réði því hve mikinn styrk Sindri fékk til reksturs yngri flokka félagsins. Samningsaðilar settu sér háleit markið í upphafi sem komið hefur í ljós að voru síður en svo fjarstæðukennd. Eldsneytiskaup Safnkortshafa Esso jukust um 25,6% milli áranna 2003 og 2004 og um 18,8% milli áranna 2004 og 2005. Um leið og Knd. Sindra þakkar Safnkortshöfum Esso á Höfn og nágrenni fyrir frábært framlag til uppbygginar á yngri flokkastarfi félagsins hvetjum við alla til að halda áfram að styðja við bakið á félaginu með því að versla alltaf eldsneyti á þjónustustöðvum Esso hvort sem það er á Hornafirði eða á öðrum stöðvum félagsins þegar ferðast er um landið. Lesa meira
 
Aðalfundur Sindra 2006

Aðalafundur UMF. Sindra - 06.03.2006 Sindra fréttir

Aðalfundur UMF. Sindra var haldinn þriðjudaginn 28. febrúar síðastliðinn. Ágætis mæting var á fundinn og fólk frá hinum ýmsu deildum Sindra mætt. Farið var yfir starf Sindra á síðasta ári og kom í ljós hversu öflugt og mikið starf fer fram innan Sindra. Deildirnar innan Sindra voru allar búnar að halda sína aðalfundi þannig að á þessum fundi þurfti bara að fara yfir reikninga aðalstjórnar Sindra og var það fljótgert. |nl|Sá gleðilegi atburður átti sér stað á fundinum að blakdeild Sindra hlaut nafnbótina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Hulda Laxdal Hauksdóttir, formaður blakdeildarinnar tók við viðurkenningunni fyrir hönd blakdeildarinnar. Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ og Petrún Bj. Jónsdóttir, verkefnisstjóri fyrirmyndarfélags ÍSÍ mættu á fundinn og afhentu Huldu viðurkenninguna auk fjölda fána og merkja sem fylgja þessari vegtyllu. Allar stjórnir Sindra óska stjórn blakdeildarinnar til hamingju með þennan góða árangur. Lesa meira
 
Blakdeild Sindra

Blakdeild Sindra Fyrirmyndardeild ÍSÍ - 02.03.2006 Sindra fréttir

Á aðalfundi Sindra sem fram fór þriðjudaginn 28. febrúar síðastliðinn afhenti Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ Blakdeild Sindra gæðaviðurkenningu sambandsins og hlaut þar með blakdeildin rétt til þess að kalla sig Fyrirmyndardeild ÍSÍ til næstu fjögurra ára. Þáttur í því ferli að sækja um þessa viðurkenningu felst í því að vinna handbók þar sem nálgast má ýmsar upplýsingar sem styrkja starfsemi deildarinnar og gera starfið markvissara. Sem dæmi um efni handbókarinnar má nefna að þar er fjallað um íþróttastefnu, kennsluskrá, fjármálastjórn, þjálfaramál, fræðslu- og forvarnarstarf og foreldrastarf. Blakdeildin er ung að árum en barna og unglingastarf deildarinnar hófst haustið 2004. Blakdeildin er fyrsta deildin innan Sindra og um leið USÚ sem hlýtur þessa viðurkenningu. Haukur Helgi Þorvaldsson, æskulýðsfulltrúi sveitarfélagsins, afhenti blakdeildinni viðurkenningarskjal þar sem fram kom að sveitarfélagið óskaði deildinni innilega til hamingju með blómlegt starf og að hljóta þessa viðurkenningu ÍSÍ. Lesa meira
 
Fimleikadeild Sindra

Aðalfundur UMF. Sindra - 27.02.2006 Sindra fréttir

Að undanförnu hafa deildir Sindra keppst við að halda sína aðalfundi. Þar hafa stjórnir deildanna gert grein fyrir starfi síðasta árs og reynt að manna sínar stjórnir. Eins og gengur og gerist hefur mætingin á þessa fundi verið misjöfn og misvel hefur gengið að fá fólk til þess að starfa í stjórnum næsta starfsár. Mikilvægt er að fólk átti sig á því að án stjórna missa deildirnar stöðu sína innan Sindra og gætu misst af Lottó tekjum sem standa undir rekstri sumra deilda. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Þrír nýir kosnir í stjórn knattspyrnudeildar Sindra - 22.02.2006 Sindra fréttir

Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra var haldinn mánudaginn 13. febrúar síðastliðinn í Nýheimum. Mjög góð mæting var á fundinn og var það mjög gleðilegt. Greinilegt er að mikill áhugi er á starfi knattspyrnudeildarinnar um þessar mundir. Stjórnin var endurkjörin og einnig urðu þau gleðilegu tíðindi að þrír nýir einstaklingar gáfu kost á sér til þess að setjast í stjórn knattspyrnudeildarinnar. Það voru þeir Gunnar Ingi Valgeirsson, Miralem Haseta og Gunnar Þorláksson. Fyrir voru Árni Rúnar Þorvaldsson, Halldóra Guðmundsdóttir og Jóhanna Stígsdóttir. Miklar umræður spunnust á fundinum um skýrlsu stjórnar og ekki síður reikninga deildarinnar. Umræðurnar voru mjög málefnalegar, gagnlegar og munu eflaust efla starf deildarinnar á komandi ári. Fyrir fundinum lá tillaga frá stjórninni um að vinna beri að tvískiptingu bókhalds og rekstrar deildarinnar á næsta starfsári, þ.e. annars vegar í yngri flokka og hins vegar í eldri flokka. Tillagan var samþykkt og er nýkjörin stjórn er þegar farin að leggja drög að tvískiptingunni. Megintilgangurinn með þessu er að gera starf knattspyrnudeildarinnar einfaldara og skilvirkara. Einnig er mikilvægt að geta með þessu fyrirkomulagi dreift álagi og ábyrgð á stjórnarmönnum. Lesa meira
 
Frá sundæfingu

Mikilvægt að efla sunddeildina enn frekar - 14.02.2006 Sindra fréttir

Sunddeild Sindra mun halda aðalfund sinn annað kvöld, miðvikudagskvöldið 15. febrúar. Á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf ásamt sérstökum málefnum sunddeildarinnar. Ágætis gróska hefur verið í sunddeildinni síðustu ár og nú er spennandi tímar framundan hjá sundfólki á Hornafirði þegar farið er að hilla undir nýja sundlaug. Því er mikilvægt að efla sunddeildina enn frekar og búa fólk undir þær breytingar sem ný sundlaug hefur í för með sér. Stjórn sunddeildar Sindra hvetur áhugafólk um sund til að mæta á fundinn og minnt á að nýtt fólk er alltaf velkomið til starfa. Eins og fram hefur komið hér á vefnum þá hefur gamla sundlaugin verið klædd með nýjum dúk og verið opnuð eftir þá framkvæmd og æfingar hafnar að fullum krafti. Lesa meira
 
Sindri Leiknir. Meistaraflokkur 3.9.2005

Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra - 10.02.2006 Sindra fréttir

Mánudaginn 13. febrúar kl. 20:00 fer fram aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra í Nýheimum. Þegar litið er yfir skýrslu stjórnar er ljóst að mikið starf fer fram innan Knattspyrnudeildarinnar Sindra. Það er mikil vinna að halda þessu öllu gangandi svo vel megi vera. Þess vegna er orðiði löngu tímabært að ræða það af fullri alvöru hvað rekstrarform á að vera á deildinni. Með þessu er auðvitað átt við hvort ekki sé skynsamlegt tvískipta rekstri deildarinnar, annars vegar í rekstur yngri flokka og hins vegar í rekstur meistaraflokka. Þetta mál verður á dagskrá fundarins og tekin afstaða til þess. Einnig verður rætt um fyrirhugaða uppbyggingu íþróttamannvirkja í tenglsum við Unglingalandsmóti UMFÍ 2007 sem haldið verður hér á Hornafirði. Mikilvægt er að aðkoma knattspyrnudeildarinnar að því verkefni sé skýr því hjá henni og um 200 iðkendum hennar eru gríðarlegir hagsmunir í húfi. Lesa meira
 
4 flokkur SIndra

Glæsilegur árangur 4. flokks kvenna - 31.01.2006 Sindra fréttir

Stelpurnar í 4. flokki kvenna náðu aldeilis frábærum árangri um helgina á Austurlandsmótinu í innanhúsfótbolta. Þær gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið með fullu húsi stiga. Mótið fór fram í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá stelpunum og þýðir að þær munu taka þátt í úrslitum íslandsmótsins innanhúss sem fram fer í Reykjavík 19. febrúar. Lesa meira
 
4 flokkur SIndra

Styttist í aðalfund Sindra - 30.01.2006 Sindra fréttir

Nú styttist í að aðalfundir deilda Sindra fari fram. Stefnt er að því að fundirnir verði haldnir um miðjan febrúar. Knattspyrnudeildin stefnir að því að halda sérstakan aðalfund fyrir fund aðalstjórnar. Lesa meira
 
Fimleikadeild Sindra

Heimasíða Sindra á hornafjordur.is - 13.01.2006 Sindra fréttir

Í samstarfi við Hátíðni og hefur Ungmennafélagið Sindri tekið í notkun nýja heimasíðu hér hornafjordur.is/sindri. Heimasíðan verður vonandi lyftistöng fyrir félagið og ljóst er að síðan mun nýtast öllum deildum félagsins gríðarlega við alla upplýsingamiðlun til félagsmanna. Mjög mikilvægt er fyrir öll samtök eða félög sem vilja stuðla að öflugu starfi að þau hafi á sínum snærum öfluga upplýsingaveitu. Ný heimasíða www.hornafjordur.is/sindri verður vonandi sú upplýsingaveita fyrir Sindra. Lesa meira
 
Meistaraflokkur

Línur farnar að skýrast í flestum flokkum - 10.08.2005 Sindra fréttir

Nú er langt liðið á sumarið og línur farnar að skýrast í flestum flokkum. Yngri flokkarnir hafa staðið sig frábærlega í sumar einsog þeir gera alltaf. Báðir meistaraflokkarnir eru að keyra á heimamönnum að mestu leyti þetta sumarið og eru að gera flotta hluti í sínum riðlum. 7.flokkur kvenna fór á Símamót í sumar og gerðu góða ferð til Reykjavíkur og stóðu stúlkurnar sig einsog sannar hetjur og töpuðu aðeins einum leik..! 7.flokkur karla fór á Akranes í sumar og stóðu sig með stakri prýði og lentu í 2. og 3.sæti í sínum riðlum. Þetta er mjög góður árangur hjá þeim og þeir geta verið stoltir af sjálfum sér eftir sitt framlag þetta sumarið. 6.flokkur kvenna var einnig á Símamótinu einsog 7.fl.kvenna og voru sér og bæjarfélaginu til mikils sóma á mótinu og eiga þær hrós skilið fyrir árangur sinn. Lesa meira
 
E-lið Sindra

5. flokkur Sindra Esso meistari - 04.07.2005 Sindra fréttir

Nýliðna helgi fór fram 19. Essómót á Akureyri. Nokkuð stór hópur Sindramanna og aðstandanda þeirra streymdu norður yfir heiðar til að taka þátt. Sindri var með 2 lið, A og E. Bæði lið náðu nokkuð góðum árangri í sínum riðlum en það má þó segja að árangur E-liðsins hafi toppað þessa fínu helgi. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu alla leikina sína nema einn en þá gerðu þeir jafntefli. Spennan var gríðarleg fyrir úrslitaleikinn, á móti Breiðablik, bæði hjá strákunum og aðstandendum. Leikurinn fór fjörlega af stað, sótt á báða bóga en ekkert var skorað í venjulegum leiktíma. Og þá varð að ljúka leiknum með vítaspyrnukeppni. Og þá fyrst hófst nú spennan. Lesa meira
 
Ási á skautum

Skautadeild Sindra vantar þjálfara - 04.03.2005 Sindra fréttir

Tveir stjórnarfundir voru haldnir í Skautadeildinni á síðasta starfsári og einkenndist starfsemin af miklum ungmennafélagsanda . Sindri Ragnarsson og Ari Þorsteinsson sáu um að æfa félaga deildarinnar í götu hokkí með aðstöðu í íþróttahúsinu. Kjarninn af félagsmönnum samanstóð af 18 – 20 krökkum. Snædís Bjarnadóttir sá um að þjálfa félagsmenn síðastliðið sumar utandyra og var það mikill hvalreki fyrir deildina. Ekki reyndust malbikuðu plön bæjarins nógu vel til útiæfinga þannig að þau fluttu sig aftur inn í íþróttahúsið eftir humarhátíð, ákveðið áhyggjuefni er fyrir deildina að verið er að leggja nýtt gólfefni á íþróttahúsið þannig að væntanlega og eðlilega verða hjólaskautarnir ekki leyfðir á því. Ekki hefur tekist að fá þjálfara til að æfa félagsmenn í haust þannig að skauta íþróttin hefur verið í ákveðnu lágmarki. Skautadeildin auglýsir eftir áhugasömum aðila sem er tilbúinn að vinna með og þjálfa deildina. Góðu fréttirnar eru samt þær að óvenju kalt hefur verið í vetur þannig að töluverðar, almennar og þjálfaralausar skautaæfingar hafa átt sér stað úti í guðsgrænni náttúrunni. Lesa meira
 
Óskar Þór á Sindrahátíð

70 ára afmæli Umf Sindra - 03.12.2004 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri varð 70 ára 1.des og var þessara tímamóta minnst í íþróttahúsinu með myndarlegri afmælisveislu. Með afmæliskaffinu var rjómaterta og skúffukaka sem gerð voru góð skil. Albert Eymundsson og Magnús Jónasson fluttu ræður og einnig var blak og fimleikasýning. fjórði flokkur kvenna keppti í fótbolta við Albert og starfslið hans í ráðhúsinu. Nokkrir aðilar voru heiðraðir fyrir störf sín hjá Sindra, þau eru; |nl|Bára Baldvinsdóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Herdís Tryggvadóttir, Valdimar Einarsson, Gestur Halldórsson, Ingólfur Baldvinsson og Jón Haukur Haraldsson.. Framundan er nóg að gera hjá Sindra, danskir þjálfarar koma og þjálfa fimleikadeildina dagana 10.-12. des. og einnig er verið að undirbúa jólasýninguna. Lesa meira
 
Bara bestar

Jafntefli hjá stelpunum - 26.05.2004 Sindra fréttir

Í gær var fyrsti leikur Sindra á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Meistaraflokkur kvenna atti þá kappi við Fjarðabyggð og fór leikurinn fram á Neskaupstaðarvelli. Lokatölur leiksins urðu 3 – 3, í leik þar sem Sindri hefði hæglega getað hirt öll stigin. Mörk Sindra skoruðu þær Jóna Benný Kristjánsdóttir, Karítas Þórarinsdóttir og María Emilsdóttir. Næsti leikur hjá stelpunum verður 3. júní gegn Hetti og verður leikið á Egilsstöðum. Fyrsti heimaleikur mfl. kvenna hjá Sindra verður 15. júní á Sindravöllum. Í 1. deild kvenna C riðill eru aðeins þrjú lið Sindri, Fjarðarbyggð og Höttur og verður leikin fjórföld umferð. Lesa meira
 
Létt æfing fyrir bikarleik

Sindri áfram í bikarnum - 19.05.2004 Sindra fréttir

Í gær keppti meistaraflokkur Sindra við Neista frá Djúpavogi í VISA-bikar karla. Leikurinn fór fram á Djúpavogi og lauk með sigri okkar manna 2 – 1 og skoraði Sævar Gunnarsson bæði mörkin. Allt annað var að sjá til Sindraliðsins í þessum leik miðað við æfingaleikinn á móti Neista sem fram fór fyrir stuttu síðan. Menn voru greinilega staðráðnir í leggja allt í sölunnar í þessum leik og komast í aðra umferð bikarkeppninnar. Lið Neista skartaði tveimur nýjum leikmönnum frá Serbíu og Svartfjallalandi sem koma greinilega til með að styrkja liðið mikið. Næsti andstæðingur í bikarkeppninni verður Höttur og fer sá leikur fram 1. júní á Egilsstöðum. Lesa meira
 
Nihad Hasecic, betur þekktur sem Cober þjálfari mfl. karla (mynd:Kristján Jónsson)

Nezir Ohran til liðs við Sindra - 24.03.2004 Sindra fréttir

Nú er frágengið að nýr markmaður gengur til liðs við Sindra fyrir komandi tímabil. Markmaðurinn heitir Nezir Ohran, 31 árs gamall og er með mikla reynslu. Nezir kemur til landsins í byrjun apríl. Þetta eru góðar fréttir fyrir liðið og gífurlegur styrkur fyrir hópinn sem fyrir er. Ákveðið hefur verið að liðið fari í æfinga- og keppnisferð til Ólafsvíkur um páskana og verður þar tekist á við fyrrverandi þjálfara Sindra, Ejub Purisevic og lærisveina hans í Víking Ólafsvík sem sigruðu 3. deildina s.l. sumar. Hjá Sindra eru menn enn vongóðir um að 1 – 2 leikmenn bætist við hópinn fyrir átökin í sumar. Lesa meira
 
Þurfa Sindraskvísurnar að taka meistaraflokk í kennslu

Meistaraflokkur til slátrunar - 30.07.2003 Júlí

Það var á glæsilegum leikvangi Fjölnismanna sem algerlega andlaust lið Sindramanna sem mætti til sláttrunar. Fjölnir tók strax öll völd á vellinum og voru búnir að eiga nokkur góð færi áður en þeir skoruðu á 24 mín. eftir varnarmistök. Fjölnismenn héldu áfram að ráða gangi leiksins og voru líklegri, en það voru Sindramenn sem skoruðu gegn gangi leiksins. Heiðar skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Jóns Eiríkssonar á 35 mín. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks sýndi liðið smá lífsmark en án þess að valda nokkrum vandræðum fyrir Fjölnismenn. Lesa meira
 
Sindri - Fjarðarbyggð berjast á Sindravöllum

Sindraskvísurnar unnu Fjarðabyggð 2-1 - 26.07.2003 Sindra fréttir

Meistaraflokkur kvenna hjá Sindra vann lið Fjarðarbyggðar 2-1. Þetta var baráttuleikur og höfðu Sindrastelpur 2-0 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik var töluverð pressa á mark Sindra en stúlkurnar með sjómanna- og víkingablóðið í æðum stóðust allar sóknir nema eina og uppskáru sætan sigur. Lesa meira
 
Hverjar eru bestar

Helgarpistill knattspyrnudeildar Sindra - 14.07.2003 Júlí

4. flokkur karla tók á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ inn á Mánavelli sl. föstudag, okkar drengir sáu aldrei til sólar og lokatölur 0-9. Næst var það mfl. karla sem tók á móti KFS frá Vestmannaeyjum og eftir góðan fyrri hálfleik var staðan 0-0. Strax í byrjun síðara hálfleiks skoruðu gestirnir úr víti. Lesa meira
 

 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica