Loksins, loksins
Sveitarfélagið Hornafjöður hefur um langt skeið átt í samningaviðræðum við heilbrigðisráðuneyti og síðar veleferðarráðuneytið um endurnýjun þjónustusamnings vegna reksturs Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Nánar tiltekið, þá hafa samningaviðræður staðið yfir í rúm 6 ár. Á því tímabili hafa ríkisstjórnir og ráðherrar komið og farið – já og bæjarstjórnir líka.
Nýr samningur var undirritaður að loknum ríkisstjórnarfundi, sem haldinn var á Selfossi þann 25. janúar sl. Það voru Hjalti Þór Vignisson, fyrir hönd sveitarfélagsins, og Guðbjartur Hannesson, fyrir hönd velferðarráðuneytisins, sem undirrituðu samninginn. Það er sannarlega gleðiefni að loksins hafi tekist að ljúka þessu máli með ásættanlegum hætti.
Óvissu eytt
Ástæða er til að þakka öllum þeim sem hafa komið að vinnslu þessa stóra máls, stjórnendum, starfsfólki og stjórn HSSA, embættismönnum sveitarfélagsins, bæjarstjóra, bæjarfulltrúum úr öllum flokkum, þingmönnum kjördæmisins og öðrum sem að málinu komu. Nýr samningur leggur grunninn að áframhaldandi öflugu og metnaðarfullu starfi HSSA og þeirri samþættingu á velferðarþjónustu sem hefur átt sér stað á þeim tíma sem unnið hefur verið eftir þjónustusamningi við ríkið. Það er ekki síst þessi þáttur í starfsemi HSSA og sveitarfélagsins sem önnur sveitarfélög hafa litið til sem hugsanlegrar fyrirmyndar í framtíðinni. Mikilvægt var því orðið að ljúka samningum til þess að ljúka þeirri óvissu sem vissulega hafði skapast og kom í veg fyrir þá festu sem nauðsynleg er rekstri af þessum toga.
Þriðja ríkisstjórnin og sjötti ráðherrann
Rétt er að fagna því að ríkisstjórnin með velferðarráðherra, Guðbjart Hannesson, í broddi fylkingar hjó loksins á þennan erfiða og langdregna hnút sem þessar viðræður voru fyrir löngu komnar í. Á fyrrnefndum ríkisstjórnarfundi á Selfossi ákvað ríkisstjórnin að leggja fram nýtt fjármagn með samningnum að upphæð 10 milljónir kr. Þessi ákvörðun var mikilvægt innlegg í lausn deilunnar. Þar með tókst henni – altso ríkisstjórninni – og honum – altso velferðarráðherra – það sem tveimur öðrum ríkisstjórnum og fimm öðrum ráðherrum heilbrigðismála hafði mistekist.
Niðurstaða í þessu máli gerir sveitarfélaginu kleift að halda áfram að þróa og efla starf stofnunarinnar. Það þarf að gera með hagsmuni notenda og íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar að leiðarljósi.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar




Skrifa athugasemd