Pistlar og pólitík
Pall
Páll Valur Björnsson

07.02.2013 Pistlar og pólitík

Nýir starfshættir og breytt hugarfar

Páll Valur Björnsson 1. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi

„Ertu alveg orðinn vitlaus maður? Ætlarðu virkilega að taka þátt í þessari vitleysu sem viðgengst þarna á niðrá alþingi?

Þú verður alveg eins og þetta pakk inn á þingi þegar þú ert búinn að vera þarna í smástund. Blessaður vertu ekki að gefa kost á þér í þetta þú ert of góður maður í þetta“.

Svona spurningar og fullyrðingar hef ég fengið að heyra frá fólki bæði vinum og vandamönnum jafnt sem vandalausum síðan ég tók þá ákvörðun að gefa kost á mér í 1. Sæti á lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi. Þær lýsa kannski best því áliti sem almenningur hefur á stjórnmálum og stjórnmálamönnum nú um stundir og verður að segjast eins og er að það krefst töluverðar umhugsunar áður en endanleg ákvörðun er tekin um að stíga svona skref.

Hver er ég?
En hver er ég þessi maður sem ákveðið hef að bjóða fram krafta mína fyrir þetta öfluga kjördæmi sem kennt er við suðrið. Ég heiti Páll Valur Björnsson fæddur í Reykjavík árið 1962 en fluttist á fyrsta ári austur á Vopnafjörð þar sem ég sleit barnskónum og bjó til tuttugu ára aldurs. Foreldrar mínir eru Björn Pálsson og Katrín María Valsdóttir og á ég tvo bræður. Um áramótin 1981-82 tók ég mig upp og fór á vertíð suður í Grindavík eins og svo margir landsbyggðarmenn hafa gert í gegnum tíðina. Hér í Grindavík bý ég enn og hef gert allar götur síðan ég kom fyrir utan eins árs þar sem ég bjó á æskuslóðum austur á Vopnafirði og svo bjuggum við fjölskyldan í Danmörku um tveggja ára skeið. Kona mín er Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri og börn mín tvö eru þau Ólöf Helga og Björn Valur.

Allt mitt líf hef ég unnið sem verkamaður bæði til sjós og lands og kunnað því hlutskipti vel. En ég átti mér samt alltaf þann draum að mennta mig og þegar ég var 45 ára gamall ákvað ég að skella mér í nám og hóf það á haustmánuðum 2007 í Keili að Ásbrú. Í framhaldi af því hóf ég síðan nám við Háskóla Íslands og útskrifaðist sem grunnskólakennari vorið 2011. Starfaði ég sem slíkur veturinn 2011-12 í Njarðvíkurskóla en frá því í ágúst 2012 hef ég starfað við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík.

Stjórnmál
Alla tíð hef ég haft mikinn áhuga á stjórnmálum þrátt fyrir að vera ekki virkur þátttakandi í þeim fyrr en fyrir fimm árum síðan. Ég tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar 2009 en hafði ekki erindi sem erfiði í því. Í sveitarstjórnkosningunum 2010 skipaði ég fyrsta sæti á lista Samfylkingarfélags Grindavíkurlistans og hef setið sem bæjarfulltrúi í Grindavík síðan ásamt að gegna hinum ýmsu trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið. Allt frá því að ég hóf að hafa afskipti af pólitík hef ég talað fyrir auknu samstarfi milli flokka og leitast við að reyna leysa þau ágreiningsmál sem óhjákvæmilega koma upp í sem breiðustu sátt. Ég tel að það hafi tekist og sú hugmyndafræði sem ég og mínir félagar lögðum upp með í upphafi hafi náð að skjóta rótum í starfi bæjarstjórnar Grindavíkur.

Ég sagði mig frá því starfi bæjarfulltrúa þegar ég tók þá ákvörðun að bjóða mig fram fyrir Bjarta framtíð því eins og máltækið segir: „Vandi er tveimur herrum að þjóna og vera báðum trúr“.

Framtíðin.
Það er ljóst að það gætu átt sér stað breytingar í komandi kosningum þar sem að ný framboð munu vera valkostir fyrir kjósendur. Það er líka ljóst að það þurfa að eiga sér stað breytingar ef hér á að byggjast upp stjórnmálamenning sem við getum verið sátt við. Í rannsóknarskýrslu alþingis sem gerð var í kjölfar hrunsins kemur það skýrt fram að stjórnmálmenning landsins var í molum og ég get ekki séð að hún hafi batnað síðan nema síður sé. Þar hafa núverandi stjórnvöld og stjórnaandstaða brugðist og á þessu verður að ráða bót ef hér á að byggjast upp heilbrigt samfélag þar sem almenningur ber virðingu fyrir fulltrúum sínum og treystir alþingi til þess að stjórna landinu . Í áðurnefndri skýrslu 8. bindi bls. 179 er vitnað í fyrrum þingmann Suðurkjördæmis og ráðherra þar sem hann segir: „Auðvitað er það svo að flokksræðið nánast í öllum stjórnmálaflokkunum hefur þróast í ofurvald foringjans og klíkunnar. Þess vegna er lýðræðið okkar svona brothætt og veikt .......“

Og á bls.184 er enn vitnað í sama mann og eftir honum haft: „að á vordögum 2004 hefði þingið gefist upp fyrir viðskiptaveldinu.“

Björt framtíð hefur það sem eitt af sínum meginmarkmiðum að breyta þessum starfsháttum sem hér hafa þróast í áranna rás og lýst er í þessari tilvitnun hér fyrir ofan. En það er hægara sagt en í að komast og það er kjósenda fyrst og síðast að innleiða nýja starfshætti og nýtt hugarfar. Við sem að þessu nýja framboði koma teljum Bjarta framtíð góðan valkost ef fólk vill sjá breytingar og hvetjum alla sem áhuga hafa að kynna sér hvað við höfum fram að færa á heimasíðu flokksins.

Framundan er skemmtileg og lærdómsrík kosningabarátta sem ég lít tilhlökkunaraugum til þar sem að hún muna hafa það í för með sér að maður mun ferðast um allt kjördæmið og fá að kynnast öllu því góða fólki sem þar býr. Málefnastaf flokksins og mönnun lista er í fullum gangi og munu þeir liggja fyrir á næstu vikum, nú þegar hafa fjögur fyrstu sætin verið mönnuð og að mínum dómi hefur vel tekist til. Auk mín eru þau Guðlaug Elísabet Finnsdóttir í 2. sæti, Heimir Eyvindarson í 3. sæti og Guðfinna Gunnarsdóttir í 4. sæti, allt er þetta glæsilegt og frambærilegt fólk sem hefur góða trú á því að hér getum við byggt upp samfélag sem einkennist að trausti, samvinnu, samlíðun og heiðarleika.

Lifið heil
Páll Valur Björnsson 1. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica