Taktu þátt
Unnur Brá Konráðsdóttir
Á laugardaginn kemur gefst Sjálfstæðismönnum kostur á að velja þá frambjóðendur sem þeir treysta best til að skipa efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ég óska eftir stuðningi til þess að halda áfram að vinna að þeim brýnu verkefnum sem fyrir liggja.
Mínar áherslur
Greiðar samgöngur eru lykillinn að því að byggðir landsins eflist. Mikilvægt er að treysta stoðir flugvallarins á Hornafirði til að umgjörð innanlandsflugsins sé örugg og jafnframt sækja fram. Ég hef lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að á Hornafjarðarflugvelli verði nægjanlegur búnaður og aðstaða til að hægt sé að sinna þaðan millilandaflugi með minni farþegaflugvélum og vélum í ferjuflugi sem núna hafa heimild til þess að fljúga um völlinn. Það er mikilvægt til að fjölga tækifærum í ferðaþjónustu og þar með efla atvinnulíf á svæðinu.
Mikilvægt er að áfram verði unnið að rannsóknum til að auka dýpið á grynnslunum utan við Hornafjarðarós með það að markmiði að fá úrbætur eins fljótt og auðið er.
Tryggja verður að grunnþjónusta sé til staðar fyrir íbúa Hornafjarðar og nágrennis og ekki síður að starfsumhverfi hennar sé stöðugt. Öflug heilbrigðisþjónusta og stöðugleiki í löggæslumálum eru þeir lykilþættir sem tryggja slíkt öryggi.
Að lokum
Ég hvet alla sjálfstæðismenn til að taka þátt í því að velja framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi prófkjörinu. Ég óska eftir stuðning í 2. sæti listans og vonast til að fá áframhaldandi umboð til að vinna að þeim brýnu verkefnum sem sem fyrir liggja.
- Unnur Brá Konráðsdóttir




Skrifa athugasemd