Pistlar og pólitík
Steinarr Bjarni Gudmundsson
Steinarr Bjarni Gudmundsson

12.01.2013 Pistlar og pólitík

Fimm Hornfirðingar á lista VG í Suðurkjördæmi

Vinstrihreyfingin Grænt framboð í Suðurkjördæmi hefur ákveðið framboðslista til komandi alþingiskosninga. Þar leiðir listann Arndís Soffía Sigurðardóttir, Lögfræðingur og Varaþingmaður framboðsins í kjördæminu.

Arndís hefur setið á þingi í fjarveru Atla Gíslasonar sem, eins og flestum er kunnugt, sagði sig úr þingflokki VG og seinna úr flokknum. Hún hefur því reynslu sem þingmaður og er verðugur fulltrúi Sunnlendinga á þingi. Í öðru sæti er Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar í Vogum. Inga Sigrún hefur barist ötuglega fyrir náttúruvernd. Sú barátta hennar hefur endurspeglast í fjölmiðlum í gegnum andstöðu hennar við línulögn í gegnum land Voga, þar sem hún vill að línurnar verði lagðar í jörðu. Í þriðja sæti er Hornfirðingurinn Þórbergur Torfason. Hann þekkjum við öll í gegnum afstöðu hans í Sjávarútvegsmálum og skrif hans í þetta ágæta blað í gegnum árin.

 

Af 20 frambjóðendum sem eru á listanum eru 5 Hornfirðingar. Fyrir utan Þórberg eru Steinarr Bjarni Guðmundsson verkamaður í 8. sæti, Kristín G. Gestsdóttir kennari í 11. sæti, Samúel Jóhannsson leiðbeinandi í 14. sæti og Þórey Bjarnadóttir ráðunautur og bóndi í 18. sæti. Vinstrihreyfingin Grænt framoð á Hornafirði getur ekki verið annað en stolt af þessum áhuga Hornfirðinga á landsmálapólitík og vilja til að bjóða sig fram á lista Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica