Pistlar og pólitík
Bergvin Oddsson
Bergvin Oddsson

14.11.2012 Pistlar og pólitík

Það skiptir máli að hafa kraftmikið fólk á Alþingi

Bergvin Oddsson, Frambjóðandi Samfylkingarinnar

Kæru Hornfirðingar, Senn líður að flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, en það fer fram rafrænt dagana 16. Og 17.nóvember nk.

Í flokksvalinu þurfa flokksfélagar og stuðningsmenn Samfylkingarinnar að kjósa minnst fjóra frambjóðendur. En í öllum flokksvölum og prófkjörum eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Ég gef kost á mér í 3.sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Það skiptir máli að á Alþingi Íslendinga sé fulltrúi Hornafjarðar og einnig fulltrúi unga fólksins í landinu. Ég er giftur Fanný Rósu Bjarnadóttur hjúkrunarfræðing frá Höfn og eigum við saman sonin Odd Bjarna 3 ára. Ég ákvað að gefa kost á mér í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vegna þess að ég tel mig hafa kjark og þor til þess að bera hag landsbyggðarinnar fyrir brjósti. Ég er hvergi banginn við að takast á við átök og er ófeiminn að stíga fram og berjast fyrir hagsmunum landsbyggðarinnar og Hornafjarðar. Flugsamgöngur til Hafnar eru í hættu og það þarf að tryggja öflugt áætlunarflug til og frá Hornafirði. Það þarf einnig að standa miklu betur að starfsmenntun á landsbyggðinni, þar sem fólk á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn getur fundið nám við sitt hæfi. Það er mjög mikilvægt að öflugt og fjölbreytt framboð á menntasviðinnu verði til staðar á landsbyggðinni. Ég hef einnig talað fyrir því að háskólanemendur sem ljúka námi á tilsettum tíma fái allt að þriðjung námslána sinna niðurfeld í formi styrkja. Ég tel helsta hagsmunamál fólksins í landinu vera verðtrygginguna, en hana þarf að vinda ofan af sem allra allra fyrst svo fólkið í landinu fái eitthvað réttlæti eftir bankahrunið og til þess að fólk hér á landi geti haft örugga framtíð og áhyggjulaust ævikvöldið.

Að lokum verða allir stjórnmálamenn og samtök að bretta upp ermar og fara að vinna saman og tala saman. Mig langar ef ég næ kjöri á Alþingi að lyfta stofnunninni Alþingi á hærri stall á meðal landsmanna. Stjórnmál eiga að vera skemmtileg og fólk með ólíkar lífskoðanir eiga að geta talað og unnið saman í stað þess að vera í endalausum sandkassaleik sín í milli. Ég vil tala fyrir heiðarlegum stjórnmálum og að allir eigi að fá að njóta sín á sínum eigin forsendum.

Því bið ég ykkur kæru Hornfirðingar sem ætlið ykkur að taka þátt í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi núna um helgina um stuðning í 3.sætið  því það skiptir miklu máli að á Alþingi sé sterkur og öflugur talsmaður Hornafjarðar sem hefur kjark og þor.

Bergvin Oddsson
Frambjóðandi Samfylkingarinnar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica