Góð verk sem ganga fram
Eftir Björgvin G. Sigurðsson, 1.þingmann Suðurkjördæmis.
Ánægjulegasti þátturinn af starfi í stjórnmálum og á Alþingi er þegar góð verk heima í héraði ganga fram. Að ná að koma verkefni sem skiptir miklu af stigi hugmyndar inn á fjárlög og þar með að veruleika. Á þeim stundum finnur maður glöggt að vinnan skiptir máli og sterk tengsl við fólkið heima fyrir hafa mikið að segja fyrir farsælt starf stjórnmálamanns.
Verkefni sem hefur verið unnið vel að og af mörgum. Þingmönnum oft þvert á flokka, sveitarstjórnarfólki og hugsjónamönnum í héraðinu heima. Þaðan sem aflvaki verkefnanna sprettur oftast.
Fjöldamargt mætti nefna til marks um fjölbreytni málanna sem koma til kasta okkar þingmanna og ætla ég að nefna nokkur slík. Sérstaklega fáum við sem á þingi störfum tækifæri til að koma að málum með setu í fjárlaganefnd en í henni hef ég verið í nokkur ár.
Þessi mál eru allt framfara-mál á okkar svæði og koma inn á fjárlög fyrir 2. umræðu á næstu dögum.
Sum stór og telja í milljörðum. Önnur minni en skipta miklu máli fyrir starfsemi stofnana og starfsmanna þeirra.
Til dæmis um þau eru: Liðlega 290 mkr. í fyrsta áfanga þekkingarseturs á Kirkjubæjarklaustri, um hálfur milljarður í fyrsta áfanga að nýjum Herjólfi, 176 mkr í endurbætur á Landeyjahöfn, næsti áfangi í eflingu öryggismála á Litla Hrauni upp á 50 mkr., framlag til að bæta aðstöðu í útigarði fangelsisins að Sogni og nýtt stöðugildi fangavarðar við aðgangseftirlit á Litla Hrauni vegna nýrrar öryggisaðstöðu. Allt brýnar fjárfestingar í innviðum velferðarsamfélagsins.
Þá stendur yfir vinna við að tryggja aukið fjármagn sem innanríkisráðuneytið ráðstafaði til almennrar löggæslu. Þar með talið almennu löggæslunnar hjá sýslumannsembættum í Suðurkjördæmi. Það er mikilvægt að þau framlög náist til að ekki þurfi að koma til uppsagna og frekari þrenginga við embættin.
Þetta eru örfá dæmi úr vinnunni á Alþingi núna. Þá eru ónefnd heilbrigðismálin og samgöngumálin sem gnæfa upp úr litið yfir vinnu liðinna ára. Gjábakkavegur, Suðurstrandarvegur, Hvítárbrú, Landeyjahöfn og vegbætur á Suðurlandsvegi má nefna auk bundins slitlags á Landveg.
Mikilvægt er að flýta lúkningu á tvöföldun og breikkun Suðurlandsvegar og nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót. Auk framkvæmda í innsiglingunni þar eystra en Grynnslin valda þar oft vanda. Stór framkvæmd sem verið er að vinna undibúnings- og könnunarvinnu að nú um stundir.
Þá vil ég nefna framhaldsskólana. Lagt er til fyrir 2. umræðu fjárlaga að verja hálfum milljarði til eflingar starfs framhaldsskólanna á landinu. Miklu skiptir að bæta stöðu þeirra, ekki síst með tilliti til eflingar starfsnáms og styttri námsbrauta. Þannig byggjum við upp öflugt skólakerfi sem svarar þörfum flestra og tekur á brottfallinu sem er vandamál í okkar skólakerfi.




Skrifa athugasemd