Frambjóðendur í flokksvali kynna sig á Kaffihorninu
Framboðsfundur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í tengslum við flokksval 16. og 17. nóvember nk. verður haldinn á Kaffihorninu á morgun, sunnudag 11. nóv. kl. 14:00.
Þar munu þeir frambjóðendur sem taka þátt í flokksvalinu kynna sjálfa sig og stefnumál sín. Þetta er fjórði og síðasti framboðsfundurinn sem haldinn verður í tengslum við flokksvalið. Fundir hafa þegar verið haldnir í Árborg, Reykjanesbæ og í Vestmannaeyjum, sem hafa verið mjög líflegir og umræður góðar.
Á fundinum gefst kjósendum kjörið tækifærið til þess að hitta frambjóðendur og kynna sér stefnumál þeirra.
Flokksval skráðra félaga og stuðningsmanna Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fer fram með rafrænum hætti á netinu 16. og 17. nóvember nk. Einnig verða opnir kjörstaðir á nokkrum stöðum í kjördæminu þar sem fólk getur kosið, m.a. á Hornafirði.
Kjörstjórn



Skrifa athugasemd