Þess vegna þarf að breyta.
Stórsjór hefur gengið yfir efnahagslífið á Íslandi.Það hafa allir landsmenn fundið á eigin skinni.Við virðumst samt komin upp úr brimskaflinum og nú er eftir að skipta um föt og fara í þurrt.
Eitt" fataplaggið " sem þarf að skipta um er sá sem Bessataði situr og um það verður kosið þann 30. júní.
Þar viljum við fá leiðtoga sem hvergi kom nærri gosunum sem næstum drekktu okkur.
Hver ætti það að vera?
Svari því hver fyrir sig, en Þóra Arnórsdóttir hefur með málflutningi sínum og framkomu sýnt og sannað að þar fer frambjóðandi sem gerir sér grein fyrir að friður og traust verður að vera til staðar í landinu svo okkur landsmönnum líði vel í eigin skinni.Það er ekki gott að sitja sífellt á nagla og láta það eyðileggja annars gott líf í gjöfulu landi.Fortíðinni fær enginn breytt, en það á að læra af henni.Hinsvegar er framtíðin allra sem lífsanda draga og hún er okkar.Göngum keik mót framtíðinni og bjóðum hana velkomna.
Kjósum Þóru Arnórsdóttur næsta forseta lýðveldisins Íslands.
Guðrún Ingimundardóttir sem er
dóttir, móðir og amma




Skrifa athugasemd