Endurbætur á Heppuskóla - lægsta tilboði tekið.
Þeir sem að gerð útboðsgagna vegna endurbóta á Heppuskóla komu, stóðu í þeirri trú að þeir skilmálar sem settir voru fram í útboðinu gætu tryggt tvennt.
Þeir sem að gerð útboðsgagna vegna endurbóta á Heppuskóla komu, stóðu í þeirri trú að þeir skilmálar sem settir voru fram í útboðinu gætu tryggt tvennt:
Í fyrsta lagi að bæjarráð gæti komist hjá því að skipta við aðila sem það ekki treysti vegna fjárhagslegra burða eða skorti reynslu af sambærilegum verkum og í öðru lagi að geta gengið til samninga við þann aðila sem legði fram lægsta tilboðið svo framarlega að sá hefði reynslu af sambærilegum verkum.
Tveir aðilar bjóða í verkið.
Þegar tilboð voru opnuð kom í ljós að tvö fyrirtæki buðu í verkið, bæði sveitarfélaginu að góðu kunn. Annar aðilinn hafði séð um endurbætur utanhúss á Heppuskóla síðastliðið sumar en hinn aðilinn, sá er lægra bauð, hafði meðal annars séð um endurbætur innanhúss í Hafnarskóla, viðbyggingu við Lönguhóla og nýverið um framkvæmdir við Listasafnið.
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkti að ganga til samninga við lægsbjóðanda enda munurinn á tilboðunum umtalsverður eða 18 m.kr. Þegar á reyndi taldi sá er átti hærra tilboðið sig eiga rétt á verkinu þar sem túlkun þeirra á útboðsskilmálum var með þeim hætti að lægstbjóðandi myndi ekki standast þá. Því var tekin sú stefna, eftir að leitað hafði verið álits lögfræðings, að réttast væri að leita sátta svo ekki kæmi til lögbannskröfu af hálfu þess sem taldi á sér brotið. Rökin fyrir þeirri leið eru að óljóst mátti telja hvernig málarekstur færi fyrir dómstólum, með tilheyrandi kostnaði, en ekki síður að verkið gæti tafist um heilt ár ef til málareksturs kæmi með mikilli óvissu um fjárhagshlið verksins.
Munar 13. m. kr. þegar upp er staðið.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur eingöngu hagsmuni íbúanna að leiðarljósi. Þrátt fyrir að umrædd sátt hafi kostað umtalsverða fjármuni er þó ljóst að lægstbjóðandi er með mun hagstæðara tilboð. Það hefði því verið afar óábyrgt af bæjarráði að sniðganga lægstbjóðanda enda munar 13. m. kr. á þessum tveim valkostum þegar upp er staðið, skattborgurum i hag.
Þess má geta að þessir aðilar hafa áður keppt um verk á vegum sveitarfélagsins þegar farið var í utanhússendurbætur á Heppuskóla, þá varð röðin einmitt á hinn veginn.
Bæjarráð heldur því sínu striki og hefur hagsmuni skattgreiðenda að leiðarljósi þegar kemur að vali á verktökum sem og í öðrum málum.
Bæjarráð Hornafjarðar.




Skrifa athugasemd