Pistlar og pólitík
Ásgrímur Ingólfsson
Ásgrímur Ingólfsson

04.02.2012 Pistlar og pólitík

Íformi 14.-15. september 2012

Þá er árið 2012 gengið í garð og þó það sé kominn febrúar muna vonandi allir enn eftir áramótaheitunum (hreyfa sig meira, taka þátt Íformi og borða hollan og góðan mat).

Við í mótanefnd Íformi erum farin að huga að næsta móti en ætlum ekki að setja kraft í undirbúning fyrr en í júní.  Í fyrra var keppt í 7 greinum en á þessu ári verða þær trúlega 8 þar sem golfið kemur aftur inn, en eins og menn muna urðum við að sleppa því þar sem Austfjarðamótið var á golfvellinum. Hafnarhlaupið kom sterkt inn enda voru gefinn 24 kg af humri í verðlaun og átti fólk það fyllilega skilið eftir þá 12,6 km sem hringurinn um Höfn er. Stofnaður hefur verið hlaupa hópur hér á Höfn svo það er trúlegt að fleiri ætli að ná sér í humar á grillið.

Veðrið lék við okkur eins og undanfarin mót og það er búið að semja við veðurguðina fyrir næstu keppni, æfingar byrja vonandi strax í vor og er það stefna okkar að þær fari á fullt í lok maí. Það hefur orðið aukning í öldunga blaki og búið er að halda eitt námskeið í bridge sem var ágæt mætin á og vonandi verðu haldið annað fyrir vorið. Það allt sem bendir til þess að það verði góða þátttaka  í haust og við öll kominn íform.

Ásgrímur Ingólfsson á leiðinni Íform

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica