Opinn fundur um skólamál
Á opnum fundi í Nýheimum þann 26. október sl. kynntu skólastjórar Grunnskóla Hornafjarðar ytra og innra mat skólans.
Sl. haust var skólinn tekinn út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu að ósk bæjarráðs og í kjölfarið var unnin umbótaáætlun á vegum grunnskólans. Umbótaáætlunina og niðurstöður innra og ytra mats má finna á vef skólans.
Einnig fór Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs yfir niðurstöður könnunar sem gerð var hjá starfsfólki og foreldrum leikskólabarna sl. vetur. Þar kom fram almenn ánægja meðal foreldra með leikskóla barna sinna og líðan þeirra í skólunum. Hins vegar voru skiptar skoðanir um skipan leikskólamála. Skýrslu um könunina má finna á vef sveitarfélagsins.
Að lokum fór undirrituð yfir þær framkvæmdir sem fjallað hefur verið um í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd undanfarin misseri.
Hepppuskóli kominn á tíma.
Ákveðið hefur verið að ráðast í gagngerar endurbætur á Heppuskóla. Fyrsta skrefið var stigið í sumar þegar ráðist var í viðhald utanhúss. Hægt væri að stoppa hér, búið að koma í veg fyrir leka, auka einangrun og klæða húsið. Það er hins vegar skýrt í huga undirritaðrar að nauðsynlegt sé að sinna húsinu betur. Að innan er viðhaldsþörfin orðin mjög brýn. Vinnuaðstöðu bæði nemenda og kennara þarf að bæta, aðgengi að skólaritara, aðstöðu bókasafns og skortur er á aðstöðu fyrir vinnu með smærri hópa.
Margt hefur breyst í skipulagningu skólahúsnæðis og skólastarfs frá því að skólinn var tekinn í notkun fyrir tæpum 40 árum eins og eðlilegt er og í gegnum tíðina hafa önnur og brýnni verkefni sveitarfélagsins setið fyrir í forgangsröðinni.
Heppuskóli er annað af tveimur lykil húsum í skólastarfi 6-16 ára barna á Hornafirði. Fyrirhugaðar framkvæmdir hafa verið gagnrýndar þar sem talið er að nemendum muni fækka á komandi árum. En eitt er víst að þó að nemendum fækki og sjöundi bekkur fari aftur í Hafnarskóla, þá er viðhald skólans löngu tímabært og þarf vinnuaðstaða að færast í betra horf svo það fé sem lagt verður í bygginguna er langt í frá glatað fé. Í framtíðinni má til dæmis nýta rými sem kunna að verða óþörf til hefðbundins skólahalds til bættrar mataraðstöðu nemenda.
Þetta er stór framkvæmd sem skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hefur undirbúið. Þar eiga fulltrúar allra framboða sæti auk þess eiga foreldrar, stjórnendur og kennarar áheyrnarfulltrúa. Málið hefur auk þess verið rætt í skólasamfélaginu, í skólaráði þar sem bæði nemendur og foreldrar eiga fulltrúa. Foreldrum gafst tækifæri á að koma með ábendingar og tillögur í byrjun ferlisins sl. haust og hafa áheyrnarfulltrúar þeirra í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd komið að vinnunni með okkur. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun byggist á markmiði meirihlutans í bæjarstjórn að dreifa valdi og hafa samráð um þau verkefni sem ráðist er í. Til marks um þetta er t.d. íbúaþingið.
Skipan leikskólamála
Frá árinu 2006 hafa báðir leikskólarnir á Hornafirði tekið við börnum frá eins árs aldri. Þessar breytingar áttu að tryggja samfellu í leikskólastarfi auk vals á milli áhersla í skólastarfi. Þá voru samt ekki gerðar breytingar á húsnæði Krakkakots til að koma til móts við breytta aldursdreifingu í skólanum. Þetta hefur skapað bæði erfiðleika og óánægju hjá starfsfólki skólans eins og sjá má í áður nefndri skýrslu um leikskólamál. Staðan er því þannig að á Hornafirði höfum við tvo heildstæða leikskóla með sitt hvora stefnuna en í áður nefndri skýrslu kemur fram að foreldrar upplifa sig ekki hafa val um leikskóla þar sem biðlistinn setji þeim skorður og taka þurfi fyrsta lausa plássi.
Þá stóðum við frammi fyrir því vandamáli í vetur að mikill skortur var á dagvistunarúrræðum á Höfn. Brugðið var á það ráð að auglýsa eftir áhugasömum dagforeldrum en engin viðbrögð voru við þeirri auglýsingu. Ungu fólki með börn sem var að flytjast til staðarins stóð ekki til boða vistun fyrir börn sín sem er mjög slæmt í samfélagi sem þarf á vexti og fólksfjölgun að halda.
Sú staðreynd að engin viðbrögð voru við auglýsingu félagsmálaráðs eftir dagforeldrum vekur upp þá spurningu hvort að eins frábært dagvistunarúrræði og dagforeldrar eru, sé á undanhaldi og hvort við verðum að gera ráð fyrir að öll börn eins árs og eldri komist á leikskóla.
Til þess að losa um biðlista eftir leikskólaplássum var brugðið á það ráð í haust að bæta við þriðju deildinni á Krakkakoti í sal leikskólans. Það er aðeins tímabundið úrræði en næsta vor mun stór árgangur flytjast milli skólastiga og þá verður aftur rýmra um í leikskólunum.
En hjá því verður ekki komist að skilgreina í hvernig samfélagi við viljum búa?
- Í fjölskyldustefnu sveitarfélagsins kemur fram að við viljum bjóða leikskólapláss fyrir börn frá 1. árs aldri.
- Við viljum geta tekið á móti fjölskyldum með börn til Hornafjarðar.
- Við viljum að foreldrar hafi val um leikskóla
- Síðast en ekki síst viljum við að starfsfólk og nemendur í leikskólum bæjarins hafi góða vinnuaðstöðu og rými til leiks og starfa.
Ný deild við Krakkakot er því á teikniborðinu en með henni teljum við að ofangreindum þáttum sé náð.
Mikilvægi list- og verkgreina
Bæjarstjórn er einnig að skoða uppbyggingu til list- og verkgreina í samvinnu við Grunnskóla Hornafjarðar og FAS. Það er sérstakt markmið menntamálayfirvalda að minnka brottfall úr framhaldsskóla. Það verður sennilega ekki gert nema með nýjum leiðum í námi og mun þá vægi list – og verkgreina aukast til muna. Auk þess er það mikilvægt til að tryggja uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra sem byggja á hönnun, framleiðslu minnjagripa, handverks ýmiskonar og fleira í þeim dúr.
Millibygging milli sundlaugar og íþróttahúss er einnig inní þeirri skipulagsvinnu sem er í gangi í tengslum við Heppuskóla og í þeirri umræðu hefur bætt mataraðstaða í Heppuskóla komið upp, aðstaða til félagsstarfs, líkamsræktaraðstaða, aðstaða til dansleikjahalds í íþróttahúsi og ýmislegt fleira.
Það er því af nógu að taka. Verkefnin eru fjölmörg og skemmtileg og til þess fallinn, að mínu mati, að efla hér samfélagið til skemmri og lengri tíma litið.
Ásgerður K. Gylfadóttir
Formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.




Skrifa athugasemd