Íbúaþingið ekki til skrauts
Kristján Sigurður Guðnason, bæjarfulltrúi
Íbúaþingið sem haldið var í febrúar var mikilvægt. Strax eftir þingið var sett af stað aðgerðaáætlun sem þingið lagði til.
Jafnframt voru hugmyndir sem komu fram í umræðu settar í áframhaldandi vinnu hjá starfsmönnum og nefndum sveitarfélagsins.
Tilgangur með þessari grein er að kynna hvernig þinginu var fylgt eftir af hálfu sveitarfélagsins. Markmiðið var að leiða saman íbúa sveitarfélagsins til að ræða framtíð samfélagsins og móta aðgerðir til að efla það.
Bretta upp ermar
Ekki er mögulegt að gera öllum verkefnum skil en hér verða tekin nokkur dæmi um aðgerðir sem íbúaþingið hvatti til:
a) Einbýli á hjúkrunarheimili 2016: Í byrjun sumars fór stjórn HSSA í kynnisferð um landið til að skoða önnur hjúkrunarheimili og bera saman við aðstæður á Hornafirði. Stjórn HSSA hefur unnið að stefnumótun og að tillögu hennar samþykkti bæjarráð á fundi þann 19. september að leggja til við ráðherra byggingu nýs 26 rýma hjúkrunarheimili sem opnað verði sem allra fyrst. Ráðherra hafa verið kynnt þessi áform og verður áfram þrýst á úrbætur.
b) Lagning og viðhald göngustíga í kringum Höfn. Sumarið 2010 var boðinn út annar áfangi í gerð göngustígs frá Leiðarhöfða að Óslandshæð. Jarðvegsskipt verður í þessum áfanga og malbikaður næst þegar sveitarfélagið ræðst í stórtækar malbikunarframkvæmdir.
c) Efla fyrirtæki sem eru í rekstri. Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun setja á fót verkefni á þessum vetri með starfandi fyrirtækjum í sveitarfélaginu með það að markmiði að styrkja rekstrargrundvöll þeirra.
d) Fjölga gistinóttum með vetrardagsskrá. Bæjarráð hefur sett á fót starfshóp, skipaðan fulltrúum allra framboða sem sæti eiga í bæjarstjórn auk Ríki Vatnajökuls og félagssamtaka. Markmiðið er að gera tillögu að viðburðum og hátíðum sem eflt geta ferðaþjónustu í sveitarfélaginu, allt árið.
e) Efla matargerð í héraði. Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt að endurnýja samning við Matís um stuðning við smáframleiðendur matvæla í héraðinu og í vinnslu er langtímasamningur um leigu Matís á aðstöðu undir matarsmiðju. Þá hefur sveitarfélagið lagt áherslu á að við uppbyggingu atvinnu- og menningarlífs við Hafnarvík og Heppu að heimamarkaðsbúðinni verði tryggður varanlegur staður undir starfsemi sína.
f) Lengja opnunartíma á upplýsingamiðstöð. Sveitarfélagið hefur verið í viðræðum við Vatnajökulsþjóðgarð um að taka að sér rekstur sýningar um mannlíf og náttúrusvæðisins þar sem einnig væri góð aðstaða fyrir ferðamenn að sækja upplýsingar um afþreyingu og þjónustu í sveitarfélaginu.
g) Vinna að uppbyggingu Miklagarðs, flytja Gömlubúð og vinna hugmyndavinnu um Hafnarvík og Heppu. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur lokið deiliskipulagi fyrir svæðið þannig að ekkert er til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir. Gert er ráð fyrir að Gamlabúð verði flutt á hafnarsvæðið árið 2012 en endanleg ákvörðun verður tekin við næstu fjárhagsáætlun. Í langtímaáætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir við endurbætur á Miklagarði árið 2013.
h) Orkumál. Undanfarna mánuði hefur mikil vinna verið lögð í að skoða ýmsa möguleika í orkuöflun fyrir sveitarfélagið. Ítrekað hefur verið fundað með Rarik um uppbyggingu hitaveitu frá Hoffelli. Sett hefur verið á verkefni með öðrum sveitarfélögum og ráðgjöfum um hagkvæmni stórra og smárra varmadæla fyrir atvinnurekstur og íbúðir. Unnið er að kortlagningu sjávarfalla utan Óss með Siglingastofnun og Verkís meðal annars til að kanna afl þeirra. Fundað hefur verið með Landsvirkjun um fýsileika orkuöflunar með vindorku og teknar saman grunnveðurfarsupplýsingar í því sambandi. Gerður var samningur (reyndar fyrir íbúaþingið) við Jarðræktarfélag Austur-Skaftfellinga um ræktun olíufræja og kannað hefur verið hvort áhugavert sé að vinna metan af urðunarstað sveitarfélagsins. Atvinnu- og menningarmálanefnd hefur ákveðið að taka saman á heildstæðan hátt raunhæfar aðgerðir og stefnumörkun í orkumálum.
i) Hanna, skipuleggja og hafa yfirumsjón með byggingu listamiðstöðvar. Á vegum bæjarráðs, Grunnskóla Hornafjarðar, Framhaldsskólans og frumkvöðla var farin ferð umhverfis landið. Stefna var mótuð og unnið að því að taka næstu skref. Stefnan gerir ráð fyrir að innan fimm ára verði komin upp góð aðstaða til list- og verknáms, samstarf við hönnunardeild Listaháskóla Íslands og smiðja fyrir smáframleiðslu, prófanir og frumkvöðlastarf.
j) Keppni björgunarsveita í fjallamennsku. Gerður var samningur á milli sveitarfélagsins og Björgunarfélagsins í ágúst þar sem markmiðið er m.a. að koma á fót sérhæfðum fjalla- og sleðahópi. Einnig var í samningnum gert ráð fyrir að kynna starfið sérstaklega fyrir ungmennum.
k) Auka endurvinnslu í sveitarfélaginu og bæta þjónustu við íbúa. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur það sem verkefni núna í haust að fara ofan í saumana á þessum málum. Farin verður kynnisferð á staði sem hafa innleitt svokallað 3ja tunnu kerfi og svokallað 2ja tunnu kerfi. Þá verður sérstaklega skoðað hvernig bæta megi aðstöðu í gámaporti og auka þjónustu við íbúa og fyrirtæki í sveitum. Taka skal fram að umhverfis- og skipulagsnefnd stóð fyrir sérstöku átaki núna í vor um að hirða brotajárn í sveitum, íbúum þar að kostnaðarlausu.
Heilsuefling og nýsköpunar- og frumkvöðlahelgi
Eins og ofangreind upptalning leiðir í ljós var vinnu íbúaþingsins síður en svo stungið undir stól. Fjölmörg verkefni þingsins hafa hlotið brautargengi og áfram verður haldið. Þingið skilaði mikilvægri vinnu fyrir aðalskipulag sveitarfélagsins, ekki síst þann hluta skipulagsins þar sem setja á fram skýr markmið og leiðir um eflingu samfélagsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd vinnur nú að gerð aðalskipulags og er markmiðið að ljúka þeirri vinnu í vetur. Í þeirri vinnu verða allar tillögur sem íbúaþingið setti niður á kort ræddar, útfærðar og tekin afstaða til hvort þær eigi heima í tillögu nefndarinnar að nýju aðalskipulagi.
Eitt af því sem íbúaþingið lagði áherslu á var að gera þyrfti samræmda lýðheilsu- og forvarnarstefnu fyrir samfélagið. Hópur fólks hefur unnið að undirbúningi málþings um heilsueflingu og heilbrigðan lífsstíl sem haldið verður í Mánagarði 5. október nk.
Þann 18. – 20. nóvember nk. verður atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Hornafirði í samstarfi sveitarfélagsins og Innovit sem er nýsköpunar- og frumkvöðlasetur. Markmiðið með helginni er að fólk byrji að vinna að frumgerð á ákveðinni vöru eða þjónustu. Á þriðja tug frumkvöðla og aðila með víðtæka reynslu og menntun verða þátttakendum til aðstoðar. Að helginni lokinni geta þátttakendur síðan unnið áfram með vel mótaðar viðskiptahugmyndir og látið þær verða að veruleika.
Íbúaþingið var því ekki til skrauts heldur raunverulegt afl sem dreif áfram ýmsar aðgerðir á vegum sveitarfélagsins. Ef ofangreind verkefni komast í höfn og skila árangri stöndum við sterkar að vígi en áður.
Kristján Sigurður Guðnason, bæjarfulltrúi




Skrifa athugasemd