Um bókun meirihluta bæjarstjórnarmanna um fiskveiðistjórnun
Af gefnu tilefni:
Við þurfum væntanlega ekki að takast á um mikilvægi sjávarútvegs fyrir sveitarfélagið Hornafjörð. Þess vegna var óskað eftir því að KPMG, fyrirtæki sem sinnir endurskoðun á reikningum sveitarfélagsins, mæti áhrif af frumvörpum sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnun á sveitarsjóð og sjávarútveginn í byggðarlaginu.
Það var hins vegar ljóst að þessi úttekt yrði ekki tilbúin áður en fundum Alþingins yrði frestað í vor og þess vegna var niðurstaðan sú að leggja fyrir bæjarstjórn bókun um málið. Það má líka benda á að engin greining lá fyrir af hálfu stjórnvalda um hvaða afleiðingar frumvörpin hefðu fyrir einstakar byggðir eða greinina í heild sinni. Hópur sérfræðinga skilaði áliti sínu síðan um miðjan júnímánuð og var áfall fyrir alla þá sem stóðu að gerð frumvarpanna.
Það var skýrt að meirihluti bæjarstjórnar ætlaði sér ekki að sitja hjá í þessari umræðu enda um grundvallaratvinnugrein byggðarinnar að ræða. Samfylkingin sat hins vegar hjá. Í bókun meirihluta bæjarstjórnar er ekkert fullyrt um afleiðingar frumvarpanna fyrir staðinn. Það er því rangt að stilla málum upp með þeim hætti að fyrst sé skotið og síðan spurt.
Afstaða sem kemur fram í bókun meirihluta bæjarstjórnar byggir fyrst og fremst á niðurstöðu sáttanefndar um sjávarútvegsmál sem skilaði skýrslu síðastliðið haust og hvernig niðurstaða þeirrar nefndar er sniðgengin í mikilvægum atriðum í ofangreindum frumvörpum um fiskveiðistjórnunina. Sáttanefndin gaf út ítarlegt yfirlit yfir umræður í nefndinni þar sem sérstaklega voru skoðaðar tvær leiðir, annars vegar svokölluð fyrningarleið og hins vegar svokölluð samningaleið. Sérfræðingar, sem nefndin leitaði til, töldu að fyrningarleiðin myndi hafa verulega neikvæðar afleiðingar fyrir sjávarútvegsfyrirtæki stór og smá og þar af leiðandi þær byggðir sem reiða afkomu sína að miklu leyti á sjávarútvegi. Sáttanefndin komst því að þeirri niðurstöðu að skynsamlegast væri að byggja á samningaleiðinni. Segja má að sú leið byggi á tveimur grunnstoðum eins og hún var kynnt af nefndinni, annars vegar um tímalengd samninga og endurnýjunarákvæði þeirra. Á ítarlegan hátt eru færð rök fyrir hversu mikilvægt er að huga vel að þessum þáttum í útfærslu leiðarinnar ef til kæmi. Frumvörp sjávarútvegsráðherra slá ekki á óvissu um endurnýjun samninga eða skilgreina með hvaða hætti megi endurnýja þá. Samt eru þessi atriði grunnur að áframhaldandi nýsköpun, fjárfestingu, stöðugleika og þar með þróun greinarinnar í heild sinni.
Það var ánægjulegt að bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins studdu þessa bókun sameiginlega. Bókun sem felst fyrst og fremst í að ráðast ekki í breytingar sem skaða sjávarbyggðir, greina betur áhrif frumvarpanna og leita eftir meira samráði um mótun framtíðarskipulags í atvinnugreininni. Það kom því á óvart að fulltrúar Samfylkingar gátu ekki stutt hana.
Næsta skref í umræðunni hér heima er að taka til umfjöllunar skýrslu KPMG um áhrif frumvarpanna á sveitarsjóð og atvinnulíf á Hornafirði. Þær vangaveltur bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um að niðurstöður starfsmanna KPMG hafi verið pantaðar sérstaklega af meirihlutanum er í besta falli brosleg tilraun til að klóra yfir vanmátt stjórnvalda. Í komandi umræðu mun meirihluti bæjarstjórnar halda áfram að horfa til hagsmuna samfélagsins fyrst og fremst og nálgast málin á málefnalegan hátt.
Reynir Arnarson
Ásgerður K. Gylfadóttir
Kristján Guðnason
Ásgrímur Ingólfsson




Skrifa athugasemd