Pöntuð niðurstaða?
Að skjóta fyrst og spyrja svo er vond aðferðafræði. Ríkisstjórn Samfylkingar og VG var gagnrýnd fyrir slíka aðferðafræði við framlagningu frumvarpa til breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Gagnrýnin fólst í því að frumvörpin voru lögð fram án þess að fyrir lægi úttekt á efnahagslegum áhrifum þeirra breytinga sem frumvörpin fólu í sér. Sú gagnrýni var réttmæt. Sjávarútvegs – og landbúnaðarráðherra brást við gagnrýninni af sínum alkunna dugnaði og fól nokkrum hagfræðingum að meta áhrif frumvarpanna. Mikilvægt er að við áframhaldandi vinnslu málsins verði tekið mið af þeim athugasemdum og ábendingum sem fram koma í mati hagfræðinganna.
Bæjarstjórn Hornafjarðar lá ekki á liði sínu þegar kom að gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir þessi vinnubrögð. Í viðleitni sinni til þess að ástunda vandaðri vinnubrögð en ríkisstjórnin ákvað bæjarráð að leita til endurskoðunarfyrirtækisins KPMG til þess að gera úttekt á áhrifum frumvarpanna á Hornafjörð verði þau að lögum. Samstaða var um þessa málsmeðferð í bæjarráði. Bæjarráð ákvað sums sé að spyrja fyrst og skjóta svo – andstætt aðferðafræði ríkisstjórnarinnar. Mikilvægt er þó að hafa í huga að forsenda þess að þessi aðferðafræði nái tilætluðum árangri er að svarið við spurningunni berist áður en skotið er.
Í ljósi þeirrar samstöðu sem myndaðist í bæjarráði um þessa vönduðu málsmeðferð þá kom það óneitanlega á óvart að meirihluti bæjarstjórnar skyldi ekki hafa þolinmæði til þess að bíða eftir svarinu og stóðst ekki mátið að skjóta áður en svarið barst. Það gerði meirihlutinn með því að fella dóm sinn um frumvörpin áður en niðurstaða úttektar KPMG lá fyrir með bókun á fundi bæjarstjórnar í júní. Meirihlutinn gerðist því sekur um sams konar vinnubrögð og ríkisstjórnin var hvað mest gagnrýnd fyrir – m.a. í bæjarstjórn Hornafjarðar. Framsóknarmenn skorti þolinmæði til þess að fylgja sinni eigin aðferðafræði alla leið, þ.e. að spyrja fyrst og skjóta svo. Kannski bar viljinn til þess að koma höggi á ríkisstjórnina skynsemina ofurliði.
Að mínu mati var hér um mjög óheppilegt óðagot af hálfu meirihlutans að ræða. Þetta frumhlaup er nefnilega ekki til þess fallið að styðja við trúverðugleika úttektar KPMG þar sem spurningar kunna að vakna um það hvort niðurstaða úttektarinnar hafi verið pöntuð af meirihlutanum. Einnig hljóta bæjarbúar að spyrja sig að því hvort réttlætanlegt var að eyða fjármunum sveitarfélagsins í gerð úttektar sem meirihluti bæjarstjórnar taldi í raun óþarfa frá upphafi.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar




Skrifa athugasemd