Fundum með þingmönnum Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi
Þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi munu hefja tíu funda herferð sína í kjördæminu á Hornafirði annað kvöld, miðvikudaginn 4. maí. Fundurinn verður haldinn í Pakkhúsin og hefst hann kl. 20:00.
Á fundinum munu þingmennirnir m.a. beina sjónum sínum að væntanlegum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Einnig munu þeir fjalla um aðildarviðræðurnar við ESB, stöðu þeirra og framhald.
Sjávarútvegsmál hafa verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu upp á síðkastið, nú síðast í tengslum við gerð kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum. Á Hornafirði hefur umræðan einnig verið umtalsverð enda á sjávarútvegsstaður eins og Hornafjörður mikið undir því að skilyrði rekstrar sjávarútvegs séu sem best. Á þessum fundi gefst Hornfirðingum því tækifæri til þess að kynna sér þær breytingar sem eru í farvatninu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Fundurinn er öllum opinn og eru allir velkomnir.
F.h. Samfylkingarinnar á Hornafirði
Árni Rúnar Þorvaldsson




Skrifa athugasemd