Pistlar og pólitík
Unnur Brá Konráðsdóttir
Unnur Brá Konráðsdóttir
Skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

22.10.2010 Pistlar og pólitík

Þungur hnífur

 

Í umfjöllun um fyrirhugaðan niðurskurð í ríkisrekstri hefur umræða um heilbrigðismál verið fyrirferðarmikil enda birtast í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarflokkanna gríðarlega umfangsmikil niðurskurðaráform á því sviði, sérstaklega á landsbyggðinni. Hávær mótmæli hafa komið fram víðast hvar af landinu og ljóst að Hornfirðingar munu ekki að sætta sig við þá tillögu ríkisstjórnarinnar sem birtist í fjárlögum gagnvart HSSA.

 

Íslendingum hefur öllum verið ljóst allt frá falli íslensku bankanna að við stjórnvöldum blasir gríðarlega umfangsmikið verkefni við endurreisn efnahags landsins. Niðurskurður í rekstri hins opinbera er óhjákvæmilegur hluti þeirrar endurreisnar. Ábyrgð þeirra sem halda á hinum þunga niðurskurðarhníf er mikil. Niðurskurðurinn verður alltaf sársaukafullur og það viðamikill að við munum öll finna fyrir honum. Við hann er mikilvægt að beitt verði skýrri forgangsröðun og jafnræðis gætt. Það er nefnilega þannig að ef maður hefur sannfæringu fyrir því að þær aðgerðir sem ráðist er í séu nauðsynlegar, byggist á rökum, feli í sér raunverulega hagræðingu  og gangi jafnt yfir alla þá eru meiri líkur á því að sátt náist um aðgerðirnar. Mikilvægi þess að leita samráðs við þá aðila og stofnanir sem sæta eiga skertum fjárframlögum verður seint vanmetið.  Síðast en ekki síst þarf leggja á borðið þá framtíðarsýn sem stjórnvöld hafa þannig að allir séu meðvitaðir um hvert skuli stefnt að niðurskurðartímabili loknu.

 

Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2011 sem nú er til meðferðar á Alþingi ber þess því miður ekki merki að gætt hafi verið að þessum mikilvægu atriðum og af þeim sökum ríkir engin sátt um tillögurnar.

 

Auðvelt væri að segja að hlífa eigi heilbrigðiskerfinu, velferðarkerfinu og menntakerfinu við niðurskurði og vissulega væri óskandi að það væri hægt en það er hinsvegar ekki raunhæft. Ég tel rétt að forgangsröðun eigi að taka mið af því fyrst og fremst að öryggi landsmanna sé tryggt. Við þurfum að koma okkur saman um hvaða þjónustu við ætlum að verja, hvað er grunnþjónusta og hvaða öryggisstig við ætlum landsmönnum að búa við. 

 

Ljóst er að sú niðurskurðarkrafa sem gerð er til  HSSA gengur of langt og er aðför að starfsemi stofnunarinnar. Fjárlagafrumvarpið felur í raun í sér þá stefnu ríkisstjórnarflokkanna að flytja beri störf og verkefni af landsbyggðinni til Reykjavíkur.  Þá framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar mun ég aldrei samþykkja.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica