Stefnuskráin
Stefnuskráin
Nú er tilbúin stefnuskrá Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs á Hornafirði fyrir komandi kosningar. Hún ber vott um framsækið og stórhuga framboð. Umhverfismálin eru að sjálfsögðu stór hluti af okkar áherslum. Þar viljum við að náttúran fái að ráða og engar stórar ákvarðanir verði teknar sem geta skaðað hana. Við búum í nágrenni við stærsta þjóðgarði í Evrópu, Vatnajökulsþjóðgarði, og verðum að nýta hann okkur til framdráttar. Það gerum við ekki með því að vanvirða og eyðileggja, heldur með því að vernda og byggja upp. Við viljum að breyting á aðalskipulagi taki mið af verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Við viljum líka opna lýðræðið á Hornafirði, koma á viðtalstímum við bæjarfulltrúa og nýta kosti rafrænnar stjórnsýslu. Eitt af því sem við getum gert sem sparar peninga er að nýta kosti opinna stýrikerfa og tölvuforrita í stjórnsýslu og í skólum. Við viljum stefna að ókeypis leikskóla og fríum skólamáltíðum. Við vitum vel að það er dýrt og verður ekki gert á einum degi. Stjórnmál eru langhlaup en ekki spretthlaup, enda hefur sagan sýnt að þeir sem hafa ætlað sér að storma fram og breyta heiminum í einum vettfangi hafa ekki haft erindi sem erfiði. Sama hvort það eru góðar og gildar kenningar Karl Marx eða bullið í Milton Friedman og frjálshyggjupostulum hans.
Við viljum fyrirmyndarþjónustu við eldri borgarana. Fólkið sem vann myrkranna á milli til þess að við gætum haft það gott. Hugmynd VG er að auka við heimaþjónustu og hanna hana þannig að fólkið sem notar hana geti stýrt því sjálft, hvernig henni er háttað. Valdboðið þarf að koma neðanfrá, frá grasrótinni. Við setjum minnihlutahópa í forgang. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunnar að innflytjendur – það er þeir sem koma hingað í lengri eða styttri tíma – eiga rétt á að fá íslenskukennslu á vinnutíma, á launum. Það að geta gert sig skiljanlegan á því tungumáli sem talað er í landinu eru sjálfsögð mannréttindi og á mínum vinnustað get ég ekki annað séð en að það verði betra fyrir atvinnurekandann, ekki síður en verkamanninn að geta haft við hann orðaskipti á íslensku. Það að ætlast til þess að menn geti farið á námskeið og meðtekið það sem þar fer, eftir 10 – 12 tíma vinnu er ekki raunhæft. Ég vil beita mér fyrir því að ríki og sveitarfélagið styðji atvinnurekendur til þess að þeir geti sent það starfsfólk sem með þarf á íslenskunámskeið.
Ýmislegt er það á Höfn sem betur mætti fara. Gangstéttir hér í bænum eru fyrir neðan allar hellur. Það er greinilegt að sá sem hannaði það skipulag hefur ekki haft í huga að hér byggi barnafólk sem þyrfti að komast milli staða með barnavagn. Eins hefur mér verið starsýnt á þann furðulega frumskóg af loftnetum sem vaxið hafa á vatnstankinum á Fiskhólnum. Hvaða heilvita manni hefur dottið í hug að samþykkja svona lýti á það sem á að vera eitt af andlitum bæjarins. Komist ég í áhrifastöðu, þá vil ég loftnetskóginn burt!
Steinarr Bjarni Guðmundsson skipar 1. sæti á lista VG




Skrifa athugasemd